Upp­gjörið: KR - FH 3-2 | Eiður Gauti hetja KR-inga

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Valur - KR Besta deild karla Sumar 2025
Valur - KR Besta deild karla Sumar 2025 vísir/Diego

KR tók á móti FH á AVIS vellinum í 13. umferð Bestu deildar karla í kvöld. KR-ingar sem höfðu unnið einn sigur í síðustu fimm leikjum sóttu langþráðan sigur eftir rasskellingu síðustu umferðar þegar liðið tapaði 6-1 fyrir Valsmönnum.

FH-ingar lágu neðarlega á vellinum og leyfðu KR-ingum að stýra spilinu og halda boltanum og reyndu að nýta sér skyndisóknir þegar þeir unnu boltann. Það gekk ágætlega enda skoruðu þeir fyrsta mark leiksins á 27. mínútu með frábæru marki Kjartans Kára Halldórssonar.

KR-ingar sóttu á mark FH-inga en þeir voru þéttir í vörninni og KR-ingar komu boltanum ekki í netið. Staðan því 0-1 fyrir gestina og þannig stóðu leikar í fyrri hálfleik.

KR-ingar komu af krafti út í seinni hálfleikinn og það tók heimamenn aðeins tvær mínútur að jafna leikinn. Ástbjörn Þórðarson tekur boltann í fyrsta eftir hornspyrnu frá Jóhannesi Kristni Bjarnasyni og staðan því 1-1.

Á 62. mínútu skoraði Kjartan Kári Halldórsson beint úr aukaspyrnu og tóku FH-ingar því aftur forystuna. KR-ingar voru ekki lengi að jafna en fjórum mínútum síðar voru KR-ingar á ferðinni aftur. Jóhannes Kristinn Bjarnason finnur Eið Gauta Sæbjörnsson einan og yfirgefin í teigi gestanna og nær hann að klára færið laglega.

Eftir seinna mark heimamanna tóku KR-ingar öll völd á vellinum og voru mun líklegri til þess að sækja sigur og öll þrjú stigin.

Eiður Gauti Sæbjörnsson klárar svo leikinn á fyrstu mínútu í uppbótartíma þegar Júlíus Mar Júlíusson er með langa fyrirgjöf inn í teiginn og þar er Aron Sigurðarson sem tekur boltann í fyrsta og Eiður Gauti kemur boltanum í netið, alvöru framherja mark.

Staðan því 3-2 fyrir heimamönnum þó ekki beint á heimavelli en langþráður sigur fyrir KR-inga sem koma sér af botninum og fyrir miðja töflu.

Atvik leiksins

Mörkin voru frábær og laglega kláruð. Langar að nefna það að Ívar Orri dómari leiksins gaf Eiði Gauta Snæbjörnssyni áminningu fyrr í leiknum og lét hann vita að næsta brot yrði gult spjald. Hann stóð þó ekki við það þegar Eiður Gauti braut af sér á annarri mínútu í uppbótartíma í fyrri hálfleik. Á 69. mínútu hefði Grétar Snær Gunnarsson hreinlega geta fengið sitt annað gula spjald þegar hann fer harkalega í bakið Jóhannesi Kristni Bjarnasyni.

Stjörnur og skúrkar

Eiður Gauti Sæbjörnsson virkilega góður í dag og náði að skila sínu með tveimur frábærum framherjamörkum ef það má segja það.

Kjartan Kári Halldórsson einnig með tvö góð mörk í kvöld.

Stemning og umgjörð

Góð stemning á vellinum og mikið um manninn. Styttri röð á kvennaklósettið en karla sem er eitthvað sem maður upplifir sjaldan. Það þarf líka að þrífa glerið á blaðamannaboxinu það er allt út í fuglaskít en annars allir hressir bara.

Dómarar

Ívar Orri Kristjánsson, Egill Guðvarður Guðlaugsson og Eysteinn Hrafnkelsson dæmdu leikinn í kvöld. Hef ekkert út á dómgæsluna þannig séð að setja, þetta var bara þokkalega gert.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira