Innlent

Verndar­tollar marki vatna­skil í sam­skiptum við ESB

Jón Ísak Ragnarsson og Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifa
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins. Sýn

Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, segir að ákvörðun Evrópusambandsins að leggja verndartolla Ísland og Noreg marki vatnaskil í samskiptum þjóðanna sem standa að EES-samningnum. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir ákvörðunina mikið áfall fyrir íslenskt atvinnulíf sem skapi mikla óvissu.

Aðildarríki Evrópusambandsins samþykktu tillögu um verndartolla á innflutt járnblendi á fundi í morgun. Framkvæmdastjórnin segist ætla að eiga í reglulegu samráði við íslensk og norsk stjórnvöld um aðgerðirnar.

Bæði íslensk og norsk stjórnvöld lögðu fast að framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að veita þeim undanþágu frá tollunum en án árangurs.

„Hvar er hagsmunagæslan búin að vera?“

Guðrún Hafsteinsdóttir segir að þetta mál hafi verið í gangi í ellefu mánuði og veltir því fyrir sér hvar hagsmunagæslan hefur verið, en hún og Bergþór Ólason fóru yfir málið í kvöldfréttum Sýnar.

„Það hófust samningar við ESB í desember í fyrra, og þetta er niðurstaðan. Maður hlýtur að spyrja sig hvar er hagsmunagæslan búin að vera og hvernig hefur hún gengið,“ segir Guðrún.

„Við Íslendingar höfum byggt allt okkar atvinnulíf á EES samningnum, og þess vegna er hann kominn í algjört uppnám. Mér hefur þótt ríkisstjórnin stíga frekar léttvægt til jarðar í dag.“

Ekkert plan hjá stjórninni

Bergþór segir að upp sé komin gjörbreytt staðan sem hljóti að kalla á miklu meira afgerandi viðbrögð en ríkisstjórnin hefur sýnt í dag.

„Mér hefur svona þótt allt benda til þess að það sé ekkert plan hjá stjórninni. Þessi umræða um að vísa málinu til gerðardóms, er byggð á einhverjum misskilningi sýnist mér.“

„Evrópusambandið er búið að segja með hvaða hætti samskiptin verða um þetta, það verður tekinn kaffibolli á þriggja mánaða fresti til að fara yfir stöðuna. Þannig mér sýnist ráðherrarnir dáldið vera berrassaðir í raun, eins og þeir hafi hver um annan þveran farið á taugum eftir þessa niðurstöðu.“

„Eina konkret svarið sem frá þeim kemur er að það þurfi að flýta atkvæðagreiðslu um aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu. Það getur ekki verið niðurstaðan í þessum efnum,“ segir Bergþór.

Guðrún segir að furðu sæti hvernig umræðan hafi verið frá ríkisstjórninni í dag.

„Niðurstaðan í þessu máli, að það sér brotið á EES-samningnum, að það eigi að þýða að við eigum að hlaupa hér á harðahlaupum inn með glæpamanninum.“

Hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni í spilaranum ofar í fréttinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×