Innlent

Ís­lendingar segja já eða nei 29. ágúst

Árni Sæberg og Jón Þór Stefánsson skrifa
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var flutningsmaður þingsályktunartillögunnar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var flutningsmaður þingsályktunartillögunnar. Vísir/Anton Brink

Íslendingar ganga að kjörborðinu þann 29. ágúst næstkomandi þar sem spurt verður hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið.

Þetta varð niðurstaða Alþingis í atkvæðagreiðslu um þingsályktunartillögu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópu­sambandinu.

Samkvæmt tillögunni, eftir breytingar, verður spurningin svohljóðandi: „Á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Svarmöguleikar verða einfaldlega „Já“ og „Nei“.

Nokkuð harkalega hefur verið tekist á í þinginu um málið undanfarna daga og þingmenn komu saman á aukafundi í dag til þess að afgreiða málið. 

Að loknum umræðum og atkvæðagreiðslum um tvær breytingartillögur minni hluta utanríkismálanefndar, sem var hafnað, og eina frá meiri hluta, sem var samþykkt, samþykktu þingmenn þingsályktunartillöguna svo breytta með 34 atkvæðum gegn átta. Fjórtán greiddu ekki atkvæði.

Líkt og búast mátti við greiddu þingmenn stjórnarflokkanna með tillögunni. Þingmenn stjórnarandstöðunnar ýmist sátu hjá eða sögðu nei, en í grófum dráttum skiptust atkvæði þeirra þannig að Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn sátu hjá en Miðflokksmenn sögðu nei. Ein undantekning var á þessu, Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði nei.

Sjö þingmenn voru fjarverandi.

Atkvæðin skiptust svona:


Alma D. Möller - Já

Arna Lára Jónsdóttir - Já

Árni Helgason – Sat hjá

Ása Berglind Hjálmarsdóttir - Já

Sigurður Örn Hilmarsson – Sat hjá

Ásthildur Lóa Þórsdóttir - Já

Bergþór Ólason - Fjarverandi

Bryndís Haraldsdóttir - Sat hjá

Dagbjört Hákonardóttir - Já

Dagur B. Eggertsson – Já

Diljá Mist Einarsdóttir - Sat hjá

Eiríkur Björn Björgvinsson - Já

Eydís Ásbjörnsdóttir - Já

Eyjólfur Ármannsson - Já

Grímur Grímsson – Já

Guðlaugur Þór Þórðarson - Sat hjá

Guðmundur Ingi Kristinsson - Já

Guðmundur Ari Sigurjónsson - Já

Guðrún Hafsteinsdóttir - Sat hjá

Halla Hrund Logadóttir - Sat hjá

Hanna Katrín Friðriksson – Já

Hildur Sverrisdóttir - Sat hjá

Rúnar Sigurjónsson - Já

Ingibjörg Davíðsdóttir - Nei

Ingibjörg Isaksen - Sat hjá

Ingvar Þóroddsson - Já

Jens Garðar Helgason - Fjarverandi

Jóhann Páll Jóhannsson - Já

Jón Gnarr - Já

Jón Gunnarsson - Nei

Jón Pétur Zimsen - Sat hjá

Grétar Már Jónsson - Já

Karl Gauti Hjaltason - Nei

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir - Já

Kristján Þórður Snæbjarnarson - Já

Kristrún Frostadóttir - Já

Lilja Rafney Magnúsdóttir - Já

Logi Einarsson - Já

María Rut Kristinsdóttir - Já

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir - Nei

Njáll Trausti Friðbertsson - Fjarverandi

Ólafur Adolfsson - Sat hjá

Pawel Bartoszek - Já

Ragna Sigurðardóttir - Já

Ragnar Þór Ingólfsson - Já

Rósa Guðbjartsdóttir - Sat hjá

Sandra Sigurðardóttir - Já

Sigmar Guðmundsson - Já

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson - Nei

Sigmundur Ernir Rúnarsson - Fjarverandi

Sigríður Á. Andersen - Nei

Sigurður Ingi Jóhannsson - Sat hjá

Sigurður Helgi Pálmason - Fjarverandi

Sigurjón Þórðarson - Já

Snorri Másson - Nei

Stefán Vagn Stefánsson - Fjarverandi

Vilhjálmur Árnason - Fjarverandi

Víðir Reynisson - Já

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir - Já

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir - Já

Þorgrímur Sigmundsson - Nei

Þórarinn Ingi Pétursson - Sat hjá

Þórunn Sveinbjarnardóttir - Já


Fréttin var uppfærð með upplýsingum um hvernig einstakir þingmenn greiddu atkvæði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×