Sett í bann eftir kynjapróf í fyrra en er með á HM kvenna í ár Leikmaður sem mátti ekki taka þátt í Afríkukeppninni í fyrra eftir að hafa ekki staðist kynjapróf hefur fengið grænt ljós hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu að taka þátt í heimsmeistaramóti kvenna sem hefst í vikunni. Fótbolti 18. júlí 2023 08:31
Cristiano Ronaldo: Evrópski boltinn hefur misst mikil gæði Cristiano Ronaldo og Lionel Messi spila kannski í sitthvorri heimsálfunni en metingurinn heldur áfram, að minnsta kosti Ronaldo megin. Fótbolti 18. júlí 2023 07:31
Höskuldur um Evrópuleik kvöldsins: „Þurfum að vera trúir okkur sjálfum“ „Menn eru spenntir, stressaðir og tilhlökkunarsamir. Þetta er stór leikur og gaman að taka þátt í svona stórum viðburði. Það er alvöru tilhlökkun,“ sagði Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, um leik kvöldsins gegn Shamrock Rovers í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Íslenski boltinn 18. júlí 2023 07:17
Rashford framlengir í Manchester þrátt fyrir erlend gylliboð Marcus Rashford, leikmaður enska knattspyrnuliðsins Manchester United, hefur framlengt samning sinn við félagið þrátt fyrir að gylliboð frá öðrum félögum. Enski boltinn 17. júlí 2023 23:31
Jóhann Ægir frá út árið Jóhann Ægir Arnarsson, varnarmaður FH í Bestu deild karla, mun ekki spila meira á þessari leiktíð eftir að slíta krossband í hné. Hann fer í aðgerð þann 9. ágúst og stefnir því í að hann missi einnig af meirihluta næstu leiktíðar. Íslenski boltinn 17. júlí 2023 22:30
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Valur 2-0 | Stjarnan í efri hlutann en Valur að missa af toppliðinu Stjarnan vann nokkuð öruggan 2-0 sigur er liðið tók á móti Val á Samsung-vellinum í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Stjörnumenn stukku upp um þrjú sæti með sigrinum, en Valsmönnum mistókst að minnka bilið í topplið Víkings. Fótbolti 17. júlí 2023 22:02
„Þeim leið bara illa frá fyrstu mínútu“ „Þetta var bara frábær sigur. Við gefumst aldrei upp og þeim leið bara illa frá fyrstu mínútu,“ sagði Eggert aron Guðmundsson, sem skoraði annað mark Stjörnunnar er liðið vann 2-0 sigur gegn Val í kvöld. Íslenski boltinn 17. júlí 2023 21:21
Hákon Arnar kynntur til leiks með eldfjallamyndbandi: Fær sjöuna Franska efstu deildarliðið Lille hefur kynnt Hákon Arnar Haraldsson til leiks. Hann kemur frá Danmerkurmeisturum FC Kaupmannahafnar en er uppalinn hjá ÍA á Akranesi. Engu var til sparað í kynningunni og þá mun Hákon Arnar klæðast treyju númer 7 hjá félaginu. Fótbolti 17. júlí 2023 20:41
„Þykir gríðarlega miður að upplifun einstaka foreldra hafi verið neikvæð“ Mótastjóri Símamótsins harmar slæma upplifun iðkenda og foreldra á mótinu um helgina en afreksfólk í íþróttum hefur greint frá slíku á samfélagsmiðlum. Hann segir mótið heilt yfir hafa farið afar vel fram. Fótbolti 17. júlí 2023 19:45
FH í félagaskiptabann Karlalið FH í knattspyrnu er í félagaskiptabanni. Félagið fékk nýverið 30 daga til að greiða kröfu danska framherjans Morten Beck upp á 24 milljónir króna sem og sekt upp á 150 þúsund krónur. Íslenski boltinn 17. júlí 2023 19:01
Hóta að skera þrjá putta af Vlahovic ef hann kemur til PSG Stuðningsmenn Paris Saint-Germain virðast ekkert alltof spenntir fyrir því að fá serbneska framherjann Dusan Vlahovic frá Juventus og hafa hótað honum limlestingum. Fótbolti 17. júlí 2023 13:00
Fullorðið fólk grætti dóttur Sifjar á Símamótinu: „Vantar meiri foreldrafræðslu“ Sif Atladóttir, fyrrverandi landsliðskona í fótbolta, var í Bítinu í morgun þar sem rætt var um framkomu foreldra á Símamótinu í fótbolta um helgina. Dóttir Sifjar upplifði leiðinlegt atvik á Símamótinu en hún er aðeins átta ára gömul. Íslenski boltinn 17. júlí 2023 11:31
Allt að verða klappað og klárt og Hákon fer í læknisskoðun hjá Lille í dag FC Kaupmannahöfn og Lille hafa komist að samkomulagi um kaup franska liðsins á íslenska landsliðsmanninum Hákoni Arnari Haraldssyni. Fótbolti 17. júlí 2023 11:00
Rooney: MLS-deildin verður ekki auðveld fyrir Messi Lionel Messi er mættur í bandarísku MLS-deildin og margir haldi að það verði ekki mikið vandamál fyrir einn besta leikmann sögunnar að leika listir sínar þar. Wayne Rooney hefur aftur á móti varað argentínska snillinginn við. Fótbolti 17. júlí 2023 09:41
Írsku landsliðskonurnar óttuðust um líkama sína Írland og Kólumbía eru á leið á HM kvenna í fótbolta og mættust í vináttulandsleik um helgina. Það þurfti aftur á móti að flauta leikinn af eftir aðeins tuttugu mínútur. Fótbolti 17. júlí 2023 09:00
Sjáðu mörkin og rauða spjaldið úr Eyjum í gær ÍBV og Keflavík gerðu 1-1 jafntefli er liðin mættust í Bestu-deild karla í knattspyrnu í gær. Keflvíkingar léku seinasta hálftíman manni færri, en heimamenn náðu ekki að nýta sér liðsmuninn. Fótbolti 17. júlí 2023 07:02
Fyrirliðabandið tekið af Maguire Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur ákveðið að taka fyrirliðabandið af Harry Maguire. Enski varnarmaðurinn hefur gegnt stöðu fyrirliða í rúm þrjú ár. Fótbolti 16. júlí 2023 22:02
Hluti af mótstjórn Símamótsins hafi kallað eftir „allsherjar kælingu“ á dóttur Björgvins Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, segir frá slæmri upplifun dóttur sinnar af Símamótinu í fótbolta sem fram fór um helgina. Hann segir meðal annars að hluti af þeim sem sitja í mótsjórn hafi kallað eftir því að dóttir hans yrði sett í „allsherjar kælingu“. Fótbolti 16. júlí 2023 21:31
Guðjón Pétur sakaður um að ráðast á mótherja: „Það er bara bull“ Guðjón Pétur Lýðsson, leikmaður Grindavíkur í Lengjudeild karla í knattspyrnu, er sakaður um að ráðast á mótherja sinn eftir leik liðsins gegn Gróttu í kvöld. Guðjón þvertekur fyrir að þetta atvik hafi átt sér stað. Fótbolti 16. júlí 2023 20:51
Mosfellingar enn taplausir á toppnum | Þróttur stal stigi af Fjölni Afturelding trónir enn taplaus á toppi Lengjudeildar karla eftir góðan 3-1 útisigur gegn Þór frá Akureyri í dag. Á sama tíma vann Fjölnir mikilvægan 2-1 útisigur gegn Þrótti Reykjavík. Fótbolti 16. júlí 2023 18:27
Arnór bætti upp fyrir vítaklúður með tveimur mörkum Arnór Ingvi Traustason skoraði bæði mörk Norrköping er liðið vann góðan 2-1 útisigur gegn Mjallby í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 16. júlí 2023 17:27
Birkir Bjarnason með sigurmark Viking í uppbótartíma Sjö leikir eru á dagskrá í norsku úrvalsdeildinni í dag og var sex þeirra að ljúka nú rétt í þessu. Bodø/Glimt styrktu stöðu sína á toppnum með sigri meðan að Tromsø laut í gras fyrir Rosenborg. Fótbolti 16. júlí 2023 17:05
Gróttumenn þokast upp töfluna | Lánleysi Grindvíkinga heldur áfram Heil umferð verður leikin í Lengjudeild karla í dag. Skagamenn náðu ekki að skjóta sér í 2. sætið en þeir gerðu jafntefli heima gegn Vestra 1-1. Fótbolti 16. júlí 2023 15:55
Elfsborg áfram á toppnum eftir jafntefli við Gautaborg Elfsborg er áfram á toppnum í sænsku úrvalsdeildinni, en naumlega þó, eftir 1-1 jafntefli gegn Gautaborg í dag. Fótbolti 16. júlí 2023 15:28
Riga FC á fleygiferð í bikarnum Það er þétt dagskrá hjá Riga FC, andstæðingum Víkings í Sambandsdeildinni, þessa dagana. Liðið fór auðveldlega í gegnum bikarleik sinn í dag og mætir svo Víkingum á fimmtudaginn. Fótbolti 16. júlí 2023 11:54
Jankto fyrsti opinberlega samkynhneigði leikmaðurinn í topp fimm deild í Evrópu Tékkneski landsliðsmaðurinn Jakub Jankto er genginn til liðs við Cagliari sem leikur í Seríu A á Ítalíu. Jankto brýtur þar með blað í sögunni en hann er fyrsti opinberlega samkynhneigði leikmaðurinn til að spila í topp fimm deild í Evrópu. Fótbolti 16. júlí 2023 11:26
Gengur hvorki né rekur hjá Messi og félögum Inter Miami situr sem fastast á botni MLS deildarinnar í Bandaríkjunum, en liðið tapaði nokkuð örugglega fyrir Saint Louis City á útivelli í nótt, 3-0. Lionel Messi á enn eftir að leika sinn fyrsta leik fyrir félagið. Fótbolti 16. júlí 2023 09:42
Ramsey-feðgar skrifuðu undir hjá uppeldisfélagi föðursins Velski knattspyrnumaðurinn Aaron Ramsey, fyrrverandi leikmaður Arsenal og Juventus, er genginn til liðs við uppeldisfélag sitt, Cardiff. Elsti sonur hans, Sonny, skrifaði einnig undir samning. Fótbolti 16. júlí 2023 09:01
Sýndu að konurnar geti kallað fram sömu tilfinningar og karlarnir Franska fjarskiptafyrirtækið Orange sendi frá sér magnaða auglysingu í aðdraganda heimsmeistaramóts kvenna í knattspyrnu þar sem sýnt er fram á að kvennaliðið geti auðveldlega kallað fram sömu tilfinningar hjá aðdáendum og karlaliðið. Fótbolti 15. júlí 2023 23:32
Rice þakkar fyrir sig: „Metnaðurinn alltaf legið í að spila á hæsta getustigi“ Enski landsliðsmaðurinn Declan Rice varð fyrr í dag dýrasti leikmaður Arsenal frá upphafi er hann gekk í raðir félagsins frá West Ham fyrir 105 milljónir punda. Fótbolti 15. júlí 2023 22:46