Ingibjörg og Selma Sól skildu jafnar í toppslag dagsins Íslendingaslag dagsins milli Rosenborg og Valerenga, sem jafnframt var toppslagur dagsins í úrvalsdeild kvenna í Noregi, lauk með markalausu jafntefli. Fótbolti 7. maí 2023 14:53
Sævar Atli og Kolbeinn hetjur Lyngby í mikilvægum sigri Sævar Atli Magnússon reyndist hetja danska úrvalsdeildarfélagsins Lyngby í dag er hann skoraði sigurmarkið í leik liðsins gegn Midtjylland. Vonir Lyngby um að halda sæti sínu í deildinni lifa enn. Fótbolti 7. maí 2023 14:41
Sjáðu markið: Willum tryggði GA Eagles stig Willum Þór Willumsson skoraði eina mark GA Eagles í 1-1 jafntefli liðsins við Groningen í hollensku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 7. maí 2023 14:28
Sjáðu myndbandið: Liðsfélagi Andra skallaði stöngina af reiði eftir ótrúleg mistök Jasper Cillessen, fyrrum landsliðsmarkvörður Hollands í knattspyrnu og núverandi markvörður NEC Nijmegen, gerði sig sekan um afar slæm mistök í leik liðsins gegn Heerenveen í hollensku úrvalsdeildinni í gær. Fótbolti 7. maí 2023 12:45
Hafa áhuga á að fá Greenwood til liðs við sig Ítalska stórveldið Juventus hefur áhuga á því að fá Mason Greenwood, sóknarmann Manchester United, til liðs við sig. Enski boltinn 7. maí 2023 11:00
Pep ósáttur með vítavesen gærdagsins Manchester City vann í gær góðan 2-1 sigur á Leeds sem færir liðið einu skrefi nær Englandsmeistaratitlinum í knattspyrnu. Pep Guardiola var þó ekki yfir sig ánægður eftir leik í gær. Enski boltinn 7. maí 2023 07:01
Tuttugasti bikartitill Real Madrid í höfn Real Madrid er spænskur bikarmeistari í knattspyrnu eftir 2-1 sigur á Osasuna í bikarúrslitaleik í kvöld. Rodrygo var hetja Real en hann skoraði bæði mörk liðsins í leiknum. Fótbolti 6. maí 2023 22:02
Gylfi Þór mættur í stúkuna að Hlíðarenda Fyrsti leikur Vals og Tindastóls í lokaúrslitum Subway-deildar karla í körfuknattleik er nú í gangi í Origo-höllinni að Hlíðarenda. Knattspyrnumaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson er á leiknum. Fótbolti 6. maí 2023 20:19
Rúnar Alex meiddur af velli í tapi Alanyaspor Landsliðsmarkvörðurinn Rúnar Alex Rúnarsson fór meiddur af velli hjá Alanyaspor sem tapaði 4-2 fyrir Adana Demirspor í tyrkensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 6. maí 2023 20:09
Kristall Máni ónotaður varamaður í tapi Rosenborg Ísak Snær Þorvaldsson var í byrjunarliði Rosenborg sem beið lægri hlut á heimavelli gegn Vålerenga í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Kristall Máni Ingason sat allan tímann á bekk Rosenborg. Fótbolti 6. maí 2023 18:15
Inter náði í þrjú risastór stig gegn lærisveinum Mourinho Inter hafði betur gegn Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Leikurinn var gríðarlega mikilvægur í baráttunni um sæti í Meistaradeild Evrópu að ári. Fótbolti 6. maí 2023 18:01
Fyrrum leikmaður Stjörnunnar vann mikið afrek Alexander Scholz, fyrrum leikmaður karlaliðs Stjörnunnar í knattspyrnu, var hluti af liði Urawa Red Diamonds frá Japan sem bar sigur úr býtum á móti sem líkja má við Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 6. maí 2023 17:01
Sara Björk kom inn af bekknum í jafntefli Juventus og Inter Sara Björk Gunnarsdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir mættust með liðum sínum Juventus og Inter í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Fótbolti 6. maí 2023 16:33
Glódís spilaði allan leikinn í sigri Bayern Íslenska landsliðskonan í knattspyrnu, Glódís Perla Viggósdóttir lék allan leikinn fyrir Bayern Munchen sem vann í dag 2-1 útisigur á SGS Essen í þýsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 6. maí 2023 15:00
Albert og Genoa upp í ítölsku úrvalsdeildina Genoa, félag íslenska landsliðsmannsins Alberts Guðmundssonar, tryggði sér í dag sæti í ítölsku úrvalsdeildinni á næsta tímabili. Fótbolti 6. maí 2023 14:39
Guðrún hrósaði sigri í Íslendingaslagnum Íslenska landsliðskonan í knattspyrnu, Guðrún Arnardóttir, var í hjarta varnarinnar hjá Rosengard og spilaði allan leikinn er liðið vann 2-0 sigur á Kristianstad í dag. Fótbolti 5. maí 2023 17:52
Messi rýfur þögnina og biðst afsökunar Argentínski knattspyrnumaðurinn Lionel Messi, leikmaður Paris Saint-Germain í Frakklandi hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem að hann biður liðsfélaga sína sem og stuðningsmenn félagsins afsökunar. Fótbolti 5. maí 2023 17:00
Kristall skammaður af yfirmönnum eftir svindlið: „Algjörlega ólíðandi“ Yfirmenn norska knattspyrnufélagsins Rosenborg tóku Kristal Mána Ingason á teppið eftir að hann viðurkenndi að hafa beitt leikaraskap í 2-0 tapinu gegn Brann á miðvikudag. Fótbolti 5. maí 2023 08:00
Flugeldar um alla borg þegar Napoli tryggði sér titilinn Síðast þegar Napoli vann ítalska meistaratitilinn var Diego Maradona í aðalhlutverki hjá liðinu. Það er því engin furða að gríðarleg fagnaðarlæti hafi brotist út í borginni eftir að liðið tryggði sér titilinn í kvöld. Fótbolti 4. maí 2023 23:30
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Þróttur 1-2 | Þróttur unnið fyrstu tvo en Selfoss enn án stiga Þróttur vann góðan 2-1 útisigur er liðið heimsótti Selfoss í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Þróttur hefur nú unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu, en Selfyssingar eru enn án stiga. Fótbolti 4. maí 2023 23:06
„Þar finnst mér virðingaleysið vera algjört“ Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss, var eðlilega svekktur eftir 2-1 tap liðsins gegn Þrótti á heimaveli í Bestu-deild kvenna í kvöld. Fótbolti 4. maí 2023 22:57
„Ýmsar upplýsingar sem bárust ekki til okkar og það var það sem fór í taugarnar á mér“ Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar í Bestu-deild kvenna, var að vonum ánægður með sigur síns liðs gegn Selfyssingum í kvöld. Leik kvöldsins hafði verið frestað í tvígang og Nik hafði hótað því að ræða ekki við fjölmiðlafólk á vegum Sýnar eftir leikinn, en eftir að hafa rætt málin snérist honum hugur. Fótbolti 4. maí 2023 22:30
Ágúst: Skilaboðin frá þjálfurum andstæðinganna eru að brjóta og sparka niður Ágúst Gylfason, þjálfari Stjörnunnar, var afar svekktur eftir 2-0 tap hans manna gegn Íslandsmeisturum Breiðabliks í Garðabænum nú í kvöld. Stjarnan lenti 2-0 undir snemma leiks og þrátt fyrir ágætis sprett í fyrri hálfleik náði liðið aldrei að koma sér almennilega inn í leikinn aftur. Fótbolti 4. maí 2023 22:27
FCK í bikarúrslit eftir ótrúlegan markaleik en Silkeborg féll úr leik Íslendingalið FCK í Danmörku er komið í úrslit dönsku bikarkeppninnar eftir 5-3 sigur á Nordsjælland í undanúrslitum í kvöld. Stefán Teitur Þórðarson og félagar hans í Silkeborg eru hins vegar úr leik. Fótbolti 4. maí 2023 21:34
Napoli ítalskur meistari í fyrsta sinn í þrjátíu og þrjú ár Napoli er ítalskur meistari knattspyrnu eftir jafntefli við Udinese í kvöld. Liðið er nú með sextán stiga forystu þegar fimm umferðir eru eftir af deildinni. Fótbolti 4. maí 2023 20:51
Diljá Ýr skoraði fyrir Norrköping í tapi Diljá Ýr Zomers skoraði mark Norrköping sem beið lægri hlut í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Arnór Sigurðsson og Arnór Traustason voru báðir í byrjunarliði karlaliðs Norrköping sem einnig vann sigur. Fótbolti 4. maí 2023 19:25
Mætti með hljóðnema á sér til að verja sig fyrir „versta dómaranum“ Jose Mourinho, þjálfari Roma, kann betur en flestir að koma sér í fréttirnar og nú mætti halda að hann væri að leika aðalhlutverkið í leynilögreglusögu. Fótbolti 4. maí 2023 16:30
PSG fordæmir stuðningsmennina sem sátu um heimili Neymars Paris Saint-Germain hefur fordæmt þá stuðningsmenn sem söfnuðust saman fyrir utan heimili hans og hvöttu hann til að yfirgefa félagið. Fótbolti 4. maí 2023 14:31
Hissa og hneyksluð þegar hún sá íslenska fánann Norska landsliðskonan Emilie Haavi vissi ekki hvort hún ætti að hlæja eða gráta þegar hún sá íslenska fánann í fagnaðarlátunum eftir að hafa orðið ítalskur meistari í fótbolta með Roma um helgina. Fótbolti 4. maí 2023 11:01
Spila íslensku fótboltalandsliðin heimaleiki sína á Tene? Íslensku landsliðin í fótboltanum gætu þurft að spila heimaleiki sína yfir vetrarmánuðina utan Íslands. Þetta segir framkvæmdastjóri KSÍ en hún segir jafnframt að mögulega fari leikirnir fram á Tenerife eða annars staðar í Evrópu. Fótbolti 4. maí 2023 09:32
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn