
Kosningar 2016 Skoðun

Íhaldið breytir kerfinu
Ég hef heyrt ýmsa fullyrða að undir stjórn Sjálfstæðisflokksins verði engar kerfisbreytingar gerðar; flokkurinn standi fyrir íhald og kyrrstöðu. Þetta þykir mér undarlegur málflutningur.

Það varð alvarlegt bílslys!
Hver kannast ekki við fyrirsögn af þessum toga? Hún vekur ótta og kvíða hjá flestum og fólk veigrar sér við að lesa fréttina sem fylgir af ótta við að þekkja þann eða þá sem hún fjallar um. Váfréttir í þessum dúr eru því miður alltof algengar.

Kosið um gott líf á laugardaginn
Alþingiskosningar marka ákveðin tímamót fyrir okkur öll. Með nýjum stjórnvöldum koma nýjar áherslur sem í mörgum tilfellum varða mjög hagsmuni íslenskra fyrirtækja. Það er mikilvægt að allir átti sig á því að hagsmunir fyrirtækja í landinu eru ekki sérhagsmunir þeirra heldur er um að ræða sameiginlega hagsmuni okkar allra

Það þarf reynslu og hæfni - XS
Í kosningunum um næstu helgi stefnir allt í að breytingar verði á landsstjórninni og að núverandi stjórnarflokkar missi meirihluta sinn. Spár benda til að allt að 40 þingmenn af 63 verði nýir þingmenn. Mikill samhljómur er milli þeirra flokka sem að líkum verða í meirihluta og valið er því erfitt fyrir kjósendur.

Af þessu hef ég áhyggjur
Stjórnmálasagan sýnir og sannar, að þeim þjóðum vegnar best, þar sem jafnaðarstefnan hefur ráðið ferð. Í kosningunum á laugardag er mikilvægt að stöðva þróun ójafnaðar. Þess vegna ætla ég að greiða Samfylkingunni, Jafnaðarmannaflokki Íslands, atkvæði mitt.

Látum spárnar rætast!
Nú styttist í að landsmenn fái ómetanlegt tækifæri til að kjósa sér nýja ríkisstjórn. Væntanlega verða þessar kosningar mjög sögulegar, alla vega gefa þær kjósendum möguleika á að gera þær það.

Stórsókn í menntamálum
Stjórnmálamenn klifa gjarnan á því að menntun sé mikilvæg og brýnt sé að hlúa að henni. Fjárfesting til framtíðar, er sagt, eins og eina ástæða þess að mennta fólk eigi að vera sú að það skili arði en ekki af því að það sé rétt, en látum það vera, það er sama hvaðan gott kemur.

Að jafna kjör unga fólksins
Framtíð samfélagsins til lengri tíma litið ræðst af því að ungt fólk vilji búa hér og starfa.

Tími þöggunar er liðinn
Kynferðisofbeldi er raunveruleg ógn við jafnrétti kynjana. Vandinn er víðtækur og snertir allt samfélagið. Til þess að ná raunverulegum árangri þarf samhellt forvarnar- og fræðsluátak ásamt því að auka þjónustu við brotaþola og gera nauðsynlegar kerfisbreytingar.

Ísland er okkar allra
Þarf eitthvað að ræða það? Var það ekki ákveðið á Þingvöllum 1944? Jú, en nú í aðdraganda kosninga á 72 ára afmælisári litla lýðveldisins okkar er ágætt að skoða hvernig gengur. En hvern ættum við að spyrja?

Búvörusamningur Bjarna
Virk samkeppni á markaði skiptir máli. Fyrir almenning á þetta ekki síst við um vörurnar í matarkörfunni. Matarkarfan er stór hluti af lífi okkar allra, bæði hvað varðar útgjöld og hversdagshamingju.

Samsteypustjórnmál
Núverandi kosningakerfi er hannað með þeim hætti að hagsmuna- og hugsjónabandalög sem ná til um það bil 10% þjóðarinnar geta vænst þess að vinna þingmenn, og þá að jafnaði 5-7 manna þingflokk.

Kvótakerfið – sáttaleið
Nú takast stjórnmálaflokkarnir enn eina ferðina á um fiskveiðistjórnunarkerfið í tengslum við komandi þingkosningarnar. Í grundvallaratriðum snúast deilurnar um meiri félagshyggju eða meiri frjálshyggju.

Hver borgar?
Heilbrigðismálin eru enn bitbein í kosningabaráttu og einfaldar lausnir boðaðar án nokkurs rökstuðnings.

Svar til Halldórs Gunnarssonar um lífeyrismál
19. október birti ég grein í Fréttablaðinu um lífeyrismál þar sem hulunni var svipt af þeirri hugmynd Flokks fólksins að peningar sem samsvöruðu skatti af lífeyrisiðgjöldum frá árinu 1988 lægju í lífeyrissjóðunum og hægt væri að ganga að þeim þar til að bæta kjör aldraðra og öryrkja o.fl.

Látum ekki endurreisn fjölskyldunnar verða kosningamál í framtíðinni
Markmið hverrar þjóðar hlýtur að vera það að landsmenn séu það bjartsýnir á framtíð sína, að þeir hlakki til að stuðla að áframhaldandi fjölgun hennar. Við þurfum fólk, hamingjusamt fólk sem treystir því að ákvörðunin um að eignast barn verði gæfurík.

11% eða ekki 11%?
Kári Stefánsson krefst þess, og tæpir 90.000 Íslendingar með honum, að 11% vergrar landsframleiðslu verði varið í heilbrigðiskerfið. Nú skal ég síðastur manna mótmæla stórauknum framlögum til heilbrigðiskerfisins. En þessi tala er ekki heilög án fyrirvara.

Hvernig má nýta betur fé til að byggja upp heilbrigðisþjónustuna?
Auka þarf framlög til heilbrigðisþjónustu og um leið þarf að nýta betur það fé sem þegar er varið til þjónustunnar. Tækifæri eru til að gera skýrari samninga um þjónustu sem ríkið kaupir af stofnunum og sérfræðingum og tryggja hagkvæmari nýtingu fjár.

Sjálfstæðisflokknum rústað
Það er ekki öllum gefið að stjórna og leiða stjórnmálaflokk til góðra verka og uppskera aukið fylgi og frekari frama í þjóðlífinu. Leiðtogar Sjálfstæðisflokksins hafa illu heilli eina ferðina enn brugðist vonum vorum, hverjar svo sem væntingar okkar óbreyttra flokksfélaga voru eftir hrunið.

Framtíðarsýn mín sem gamalmenni
Ég á mér framtíðarsýn þar sem ég er hamingjusamt og farsælt gamalmenni. Þar sem börnin mín og þeirra kynslóð bera virðingu fyrir mér og hinum eldri borgurunum vegna þess að við erum búin að vera svo ansi dugleg í að byggja upp og gera og græja fyrir samfélagið sem við lifum í.

Hvers vegna að kjósa Bjarta framtíð?
Björt framtíð er frjálslyndur flokkur sem lætur sér umhverfismál varða, er málsvari umbóta og gagnsæis, fjölbreytni og aukinna tækifæra.

Hvar á menningin heima?
“Menning er að gera hlutina vel.” Þannig komst Þorsteinn Gylfason heimspekiprófessor eitt sinn að orði. En þegar spurt er hvað Íslendingar gera vel þá verða margir til þess að nefna bókmenntir eða listir.

Piratar vilja aðgerðir í loftslagsmálum
Með framsækinni aðgerðaáætlun viljum við að loftslagsmál verði tekin föstum tökum.

Forgangsröðum í þágu menntunar
Síðastliðna daga hefur mikið verið rætt um bága stöðu háskólanna undir yfirskriftinni Háskólar í hættu. Meðal þess sem fram hefur komið er að framlög á hvern nemanda í íslenskum háskólum er um það bil helmingi lægri en framlög á hvern nemanda í sambærilegum háskólum á Norðurlöndunum.

Löggæsla er alvörumál
Það er nauðsynlegt að horfa á löggæsluna og kerfið utan um sakamál á Íslandi heildstætt. Niðurskurður á einum stað verður til þess álag eykst á næsta stað í keðjunni.


Ísland sem fyrsti valkostur
Að geta boðið upp á samkeppnishæf lífskjör og atvinnutækifæri við hæfi er stærsta áskorun íslenskra stjórnmála í dag.

Skattatillaga Framsóknar - kanína upp úr hatti
Efst á blaði í kosningastefnuskrá Framsóknar og helsta útspil nýs formanns hennar í aðdraganda Alþingiskosninganna er tillaga um "eflingu miðstéttarinnar,“ með umbyltingu á skattkerfinu í samræmi við tillögur frá "Sjálfstæðri verkefnisstjórn“ innan "Samráðsvettvangs um aukna hagsæld“ (sic).

Við lifum á merkilegum tímum
Við lifum á merkilegum tímum. Tímum sem geta varðað leiðina til framtíðar þar sem við munum upplifa raunverulegar kerfisbreytingar. Það er sú draumsýn sem ég og margir aðrir hafa um þessar mundir.

Alþýðufylkingin valkostur í komandi kosningum
Nú er komið að kosningum og ég er búinn að finna mína hillu, svo blöskrar mér framganga ráðandi flokka og annarra sem staðið hafa að stjórnun Íslands síðustu áratugi, (og tel enga batavon hjá neinum þeirra), að ég hef tekið stöðu með Alþýðufylkingunni. Hún er afl sem er með réttláta stefnuskrá