
Þjóðadeild karla í fótbolta

Tyrkir á toppnum eftir stórsókn en nauman sigur
Tyrkir eru í efsta sæti í riðli Íslands í Þjóðadeildinni eftir 1-0 heimasigur á Svartfjallalandi í kvöld.

Twitter um leikinn: Haltu bara áfram að skína Logi
Líkt og áður þegar íslenska landsliðið í knattspyrnu spilar höfðu stuðningsmenn liðsins mikið að segja á samfélagsmiðlum. Þetta hafði þjóðin að segja um leik Íslands og Wales.

Kári sagði að Kolbeinn ætti að biðja um skiptingu í hálfleik
Íslenska landsliðið fékk á sig tvö mörk á fyrsta hálftímanum á móti Wales í Þjóðadeildinni í kvöld og fyrrum miðverðir íslenska landsliðsins voru allt annað en sáttir með varnarleikinn í mörkum Wales.

Logi jafnar með tveimur mörkum á þremur mínútum: Sjáðu mörkin
Íslenska landsliðið bryjaði ekki vel á móti Wales á Laugardalsvellinum í Þjóðadeildinni í kvöld en íslensku strákarnir eru að spila miklu betur í seinni hálfleiknum og það hefur skilað liðinu tveimur mörkum og jafnri stöðu.

Uppgjörið: Ísland - Wales 2-2 | Logi sem þarf að verða að báli
Varamaðurinn Logi Tómasson sá til þess að Ísland næði þó að minnsta kosti í stig gegn Wales í kvöld, þegar liðin gerðu 2-2 jafntefli í Þjóðadeildinni í fótbolta, í leik tveggja gjörólíkra hálfleika.

Byrjunarlið Íslands: Gylfi á bekknum og Orri og Andri Lucas frammi
Åge Hareide hefur tilkynnt byrjunarlið Íslands sem mætir Wales á Laugardalsvelli í kvöld, í mikilvægum slag í Þjóðadeildinni í fótbolta.

Heimir segist aldrei hafa fengið annan eins stuðning á útivelli
Þjálfari írska fótboltalandsliðsins, Heimir Hallgrímsson, var afar sáttur með stuðninginn sem það fékk í sigrinum í Finnlandi í Þjóðadeildinni í gær. Hann sagðist aldrei hafa upplifað annan eins stuðning í útileik.

Ben Davies: Synd að hafa ekki spilað með Gylfa
„Við reiknum með erfiðum leik. Það eru margir erfiðir útivellir í Evrópu og þetta er einn af þeim,“ segir Tottenham-maðurinn Ben Davies sem verður fyrirliði Wales gegn Íslandi á Laugardalsvelli í kvöld, í Þjóðadeildinni í fótbolta.

Saka fór meiddur út af
Bukayo Saka, leikmaður Arsenal, fór meiddur af velli þegar England tapaði fyrir Grikklandi í Þjóðadeildinni í gær.

„Draumur frá því ég var lítill“
Orri Steinn Óskarsson kemur inn í landsliðsverkefni Íslands með rólegri huga en í síðasta mánuði. Það hefur gengið á ýmsu hjá framherjanum unga síðustu vikur.

Bellamy: Jói lyklakippan en kann alveg að tuða
„Því meira sem ég sé af íslenska landsliðinu því hrifnari er ég,“ segir Craig Bellamy, þjálfari velska landsliðsins í fótbolta, sem ætlar með þrjú stig heim af Laugardalsvelli í kvöld. Hann þekkir fyrirliða íslenska liðsins, Jóhann Berg Guðmundsson, ansi vel.

Vandasamt að greina velska liðið: „Við erum á betri stað núna“
Åge Hareide, landsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, er bjartsýnn á að sitt lið geti sýnt fram á góða frammistöðu gegn Wales á heimavelli í kvöld í Þjóðadeild UEFA. Hann segir liðið á betri stað núna samanborið við síðasta landsliðsverkefni.

Grikkir vildu ekki spila við Englendinga vegna fráfalls Baldocks
Leikmenn gríska fótboltalandsliðsins vildu ekki spila leikinn gegn Englandi í Þjóðadeildinni vegna fráfalls Georges Baldock. Hann fannst látinn á heimili sínu í Aþenu á miðvikudaginn, aðeins 31 árs.

Býst ekki við að landa starfinu stóra eftir óvænt tap
Lee Carsley, landsliðsþjálfari enska karlalandsliðsins í fótbolta til bráðabirgða, býst ekki við því að vera ráðinn landsliðsþjálfari Englands til frambúðar.

Heiglar sem ráðast á vinalega Íslendinginn
„Þessi sigur sýnir það hljóða starf sem Heimir Hallgrímsson hefur unnið fyrir Írland á bakvið tjöldin,“ skrifar Írinn Pat Dolan, fyrrverandi leikmaður og knattspyrnustjóri, í pistli í Irish Mirror eftir fyrsta sigur Heimis sem landsliðsþjálfari Íra. Heimir sé ekki vandamál írsks fótbolta en gæti verið lausnin.

„Vonandi getum við nýtt okkur mína kunnáttu“
„Hann er frábær þjálfari sem veit nákvæmlega hvernig hann vill spila fótbolta," segir Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, sem þekkir vel til þjálfara Wales sem Ísland mætir í Þjóðadeild UEFA í kvöld. Hann vonast til að fólk fjölmenni á leik kvöldsins og að Laugardalsvöllur verði aftur að því vígi sem hann var á sínum tíma.

Lærisveinar Heimis með sinn fyrsta sigur
Fjölmargir leikir fóru fram í Þjóðadeildinni í kvöld. Írland fagnaði sínum fyrsta sigri í deildinni þegar liðið lagði Finnland en þetta var fyrsti sigur liðsins undir stjórn Heimis Hallgrímssonar í þremur tilraunum.

Möguleiki á að Albert komi til móts við landsliðið: „Verðum bara að bíða og sjá“
Möguleiki er á því að Albert Guðmundsson komi til móts við íslenska landsliðið í yfirstandandi landsliðsverkefni. Þetta segir Age Hareide landsliðsþjálfari Íslands.

Bellingham og VAR gátu ekki bjargað Englendingum
England og Grikkland mættust í Þjóðadeildinni í kvöld en bæði lið voru með fullt hús stiga fyrir leikinn. Það var þó ekki að sjá á leik Englendinga í kvöld að um mikilvægan leik væri að ræða.

Åge óviss varðandi Albert: „Gæti verið ómögulegt“
Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide svaraði því ekki hvort reynt yrði að freista þess að fá Albert Guðmundsson inn í landsliðshópinn sem mætir Wales á morgun og Tyrklandi á mánudag, í Þjóðadeildinni í fótbolta.

Åge ræður hvort kallað verði í Albert
Eftir að landsliðsmaðurinn Albert Guðmundsson var í dag sýknaður af ákæru um nauðgun er það í höndum landsliðsþjálfarans Åge Hareide að ákveða hvort hann taki þátt í leikjunum við Wales og Tyrkland, í Þjóðadeildinni.

Svona var fundur KSÍ fyrir leikinn við Wales
Åge Hareide landsliðsþjálfari og Jóhann Berg Guðmundsson fyrirliði sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Laugardalsvelli í dag, fyrir leikinn mikilvæga við Wales í Þjóðadeildinni í fótbolta annað kvöld.

„Við þurfum að taka okkar sénsa“
„Við þurfum að taka okkar sénsa þegar að við fáum þá,“ segir landsliðsmaðurinn í fótbolta. Sverrir Ingi Ingason sem mætti í góðu formi og sáttur með lífið til móts við íslenska landsliðið sem á framundan tvo mikilvæga leiki í Þjóðadeild UEFA.

Heimir um ummæli Dunne: „Ykkar starf að safna áskrifendum“
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, ætlar ekki að láta ummæli Richards Dunne trufla sig í aðdraganda leiksins við Finnland í dag, í Þjóðadeild UEFA í fótbolta. Svona sé bransinn og menn vilji sífellt reyna að bæta við sig áskrifendum.

Miklar líkur á vandræðalegri stöðu fyrir Ísland
Tölfræðiveita telur áttatíu prósent líkur á því að íslenska karlalandsliðið í fótbolta spili umspilsleiki í Þjóðadeild UEFA í mars á næsta ári. Ekki yrði hægt að spila á Laugardalsvelli og því góð ráð dýr.

Arnór Ingvi skoðar sín mál í janúar
Íslenski landsliðsmaðurinn í fótbolta, Arnór Ingvi Traustason, segir liðið hafa fundið ákveðnar leiðir í gegnum næsta mótherja sinn í Þjóðadeild UEFA sem það mun reyna nýta sér til sigurs. Arnór hefur verið að ganga í gegnum krefjandi tíma með félagsliði í Svíþjóð og segir landsliðsverkefnið koma á fullkomnum tímapunkti.

Heimir hristir upp í hlutunum: „Ég vil gera þetta svona“
Til þess að freista þess að koma írska fótboltalandsliðinu á sigurbraut hefur Heimir Hallgrímsson hrist upp í hlutunum hjá því.

Skilaboðum lekið og Haaland ósáttur
Markahrókurinn Erling Haaland hefur lýst yfir óánægju sinni með það að einhver úr herbúðum norska landsliðsins í fótbolta hafi lekið skilaboðum í blaðamenn, og að þau hafi verið birt í bók.

Þriðji Maldini-ættliðurinn sem er valinn í landsliðið
Daniel Maldini, leikmaður Monza, var í fyrsta sinn í valinn ítalska landsliðshópinn sem mætir Belgíu og Ísrael í Þjóðadeildinni. Hann er þriðji Maldini-ættliðurinn sem er valinn í ítalska landsliðið.

„Getur ekki stjórnað áliti annarra“
Knattspyrnumaðurinn Davíð Kristján Ólafsson segist kitla í puttana að fá aftur tækifæri með íslenska landsliðinu í knattspyrnu. Hann hefur ekki verið valinn undanfarin ár.