Heilbrigðismál
30 31 32 33 34 35 36 37 38 … 213 ›
Konur eru betri skurðlæknar en karlar Eru konur betri skurðlæknar en karlar? Þessa spurningu lögðu vísindamenn í Kanada og Svíþjóð upp með fyrir nokkrum misserum og nú hefur svarið verið birt. Já, þær virðast vera talsvert betri skurðlæknar. Erlent 10.9.2023 14:02
Fær brjóstaminnkun ekki niðurgreidda vegna samningsdeilna lækna við SÍ Indíana Rós Ægisdóttir kynfræðingur þarf að greiða tæpa milljón fyrir brjóstaminnkunaraðgerð vegna samningsdeilna milli Sjúkratrygginga Íslands og Læknafélags Reykjavíkur. Ekki fæst niðurgreiðsla fyrir aðgerðina meðan samningsdeilur standa yfir. Innlent 9.9.2023 15:14
Hámarksaldur heilbrigðisstarfsfólks hækkar í 75 ár Á síðasta löggjafarþingi var frumvarp heilbrigðisráðherra um hækkun hámarksaldurs heilbrigðisstarfsfólks upp í 75 ár samþykkt. Frumvarpið tekur gildi þann 1. janúar 2024. Innlent 9.9.2023 10:16
„Við héldum satt að segja að þetta gæti ekki gerst í dag“ „Ég óska þess heitast að ég eigi aldrei í lífinu eftir að gera svo stór mistök í starfi eða daglegu amstri að það eigi eftir að kosta einhvern lífið. Hvað þá svona fallegt og saklaust barn,“ segir Sigurjón K. Guðmarsson. Einkadóttir hans, hin 22 ára gamla Jana Sif, lést í kjölfar hjartaaðgerðar í Svíþjóð síðastliðið vor. Innlent 9.9.2023 08:01
Óttar fer með himinskautum Eflaust fylgir einhver upphefð meðal fagaðila að fá birta eftir sig efni í Læknablaðinu. En þegar Óttar Guðmundsson hleypur með himinskautum á forsendum aðsends bréfs sem lendir honum drottningarviðtali í Kastljósi RÚV, skjótast upp ótal rauð flögg í mínum ástkæra athyglisbrostna heila! Skoðun 8.9.2023 17:01
Að lifa lífinu með gigt Alþjóðadagur sjúkraþjálfunar er haldinn ár hvert, þann 8. september. Heimssamband sjúkraþjálfara og sjúkraþjálfarar um allan heim nýta daginn til að vekja athygli á hvernig sjúkraþjálfarar geta aðstoðað við að bæta lífsgæði, færni og sjálfstæði einstaklinga. Skoðun 8.9.2023 12:01
Að greinast með gigt er ekki endastöð Í dag 8. september er alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfara og er hann tileinkaður gigtarfólki um allan heim. Já það er stór hópur sem glímir við gigtarsjúkdóma á heimsvísu því að talið er að 1 af hverjum 5 einstaklingum glími við gigt. Skoðun 8.9.2023 09:01
Gekkst undir fullt brjóstnám og greindist svo í annað sinn Ofurfyrirsætan Linda Evangelista hefur greint frá því að hafa tvívegis greinst með krabbamein og hafa gengist undir fullt brjóstnám. Hún segir horfurnar ágætar en ekki frábærar. Erlent 7.9.2023 07:36
Sjálfsvíg og fjölmiðlar Nú stendur yfir Gulur september sem er vitundarvakningarverkefni félaga og stofnana sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Í tilefni af því er rétt að skoða hlutverk fjölmiðla í sjálfsvígsforvörnum. Skoðun 6.9.2023 13:01
Krabbameinsgreiningum hjá yngri en 50 ára fjölgað um 80 prósent Einstaklingum sem greinast með krabbamein áður en þeir verða 50 ára fjölgaði um 79 prósent á árunum 1990 til 2019. Dauðsföllum af völdum krabbameins fjölgaði um 27 prósent í umræddum aldurshóp. Erlent 6.9.2023 07:27
Vilja flokka „rjómasprautugas“ sem fíkniefni Breska ríkisstjórnin vill skrá nituroxíðgas sem ávana- og fíkniefni og banna notkun þess fyrir árslok. Gasið er sérstaklega vinsælt á meðal ungs fólks sem sniffar það meðal annars úr rjómasprautuhylkjum. Erlent 5.9.2023 15:47
Framleiðandi Wegovy, Ozempic og Saxenda nú verðmætasta fyrirtæki Evrópu Danski lyfjarisinn Novo Nordisk er verðmætasta fyrirtæki Evrópu samkvæmt nýjustu tölum og tekur við titlinum af tískurisanum LVMH sem meðal annars framleiðir vörur undir merkjum Luis Vuitton og áfengi á borð við Moét og Hennessy. Viðskipti erlent 5.9.2023 08:15
Þriðji sem lætur lífið af völdum CJS á Íslandi Kona á miðjum aldri lést á síðasta ári skömmu eftir að hafa greinst með hinn sjaldgæfa Creutzfeldt-Jakob sjúkdóm. Sjúkdómurinn hafði tvisvar áður greinst hér á landi og létust báðir einstaklingar stuttu eftir greiningu vegna sjúkdómsins. Innlent 3.9.2023 21:09
Rannsóknirnar komnar heim og meðalbiðtíminn 12,5 dagar Öllum sýnasendingum til Danmerkur var hætt fyrir síðustu áramót og biðtími eftir niðurstöðum úr leghálsskimun er nú 12,5 dagar að meðaltali, ef miðað er við fyrstu sjö mánuði ársins. Innlent 1.9.2023 08:11
Viltu flytja á hjúkrunarheimili? Þessa spurningu höfum við margoft lagt fyrir okkar skjólstæðinga í gegnum tíðina. Langflestir svara því til að „nei þeir vilji það ekki en að eins og staðan sé þá sé það nauðsynlegt“. Skoðun 1.9.2023 07:31
Komum ósjúkratryggðra fjölgað um 50 prósent frá því í fyrra Komum ósjúkratryggðra einstaklinga á Sjúkrahúsið á Akureyri hefur fjölgað um 50 prósent frá fyrra ári, það sem af er ári. 512 hafa sótt þjónustu spítalans í ár en fjöldinn var 331 í fyrra. Innlent 1.9.2023 07:24
Rétta hlut tannskakkra með þreföldum styrk Styrkur til tannréttinga hefur tæplega þrefaldast með breytingu á reglugerð um þátttöku Sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar. Styrkur til meðferðar í báðum gómum hækkar úr 150 þúsund í 430 þúsund. Styrkur til meðferðar í einum gómi hækkar úr 100 þúsund krónum í 290 þúsund krónur. Innlent 31.8.2023 15:12
„Er það ósk allra að heilbrigðisstarfsfólk fari í gegnum svona ferli?“ Ásta Kristín Andrésdóttir, meðstjórnandi Heilsuhags, vill vekja fólk til umhugsunar um það hve flókin atvik geta verið sem upp koma á spítala og að yfirleitt sé aldrei neinum einum um að kenna. Hún kallar eftir breytingum á verkferlum lögreglu í slíkum málum og vill að hlutlaus nefnd fari yfir slík mál áður en lögregla taki þau til rannsóknar. Innlent 30.8.2023 22:55
Alvarleg atvik í heilbrigðisþjónustu hafa víðtækar afleiðingar Ég skrifa þennan pistil því ég er opin með tilfinningar mína, reynslu og pælingar. Ég veit að sumir hafa gott af því að lesa þetta. Því það er í alvöru til gott líf eftir svona rússíbanaferð. Skoðun 30.8.2023 19:01
Ríflega 100 veiktust í fjórum matartengdum hópsýkingum árið 2022 Fjórar stórar matartengdar hópsýkingar voru tilkynntar til sóttvarnalæknis árið 2022. Tvær voru af völdum nóróveiru, ein af völdum E. coli (EPEC) en í einu tilvikinu er orsakavaldurinn enn óþekktur. Innlent 30.8.2023 12:48
Segir aukningu á lekanda vera áhyggjuefni Mikil aukning hefur orðið á greindum tilfellum lekanda hér á landi og segir Guðrún Aspelund sóttvarnalæknir það vera áhyggjuefni. Á síðasta ári greindust 158 einstaklingar með lekanda samkvæmt ársskýrslu sóttvarna fyrir síðasta ár. Innlent 30.8.2023 12:25
„Fæ bara gæsahúð og tár í augun að hugsa um þetta“ Grínistinn og fyrrverandi borgarstjórinn Jón Gnarr hefur glímt við skerta heyrn um árabil. Hann segir að það sé tími til kominn að ræða opinskátt um heyrnarskerðingu og það eigi ekki að vera feimnismál að nota heyrnartæki til að heyra frekar en sjónskertir noti gleraugu til að sjá betur. Lífið 30.8.2023 10:31
213 látnir af völdum Covid og metfjöldi greindur með lekanda Samtals létust 213 einstaklingar árið 2022 þar sem Covid-19 var undirliggjandi orsök. Mynstur inflúensu var óvenjulegt og óvenjumikið um grúppu A streptókokkasýkingar, bæði hálsbólgu og skarlatssótt, og innlagnir á sjúkrahús vegna ífarandi sýkinga. Innlent 30.8.2023 07:15
„Það er okkar einlægi vilji að gera betur“ Yfirlæknir Livio segir reynslusögur kvenna af slæmri þjónustu fyrirtækisins teknar alvarlega og að þær verði notaðar sem hvati til að gera betur. Meðferðirnar séu krefjandi og oftar en ekki þurfi að endurtaka þær. Innlent 29.8.2023 21:01
Unnið hörðum höndum að því að útvega ADHD-undanþágulyf Lyfjastofnun og lyfjaheildsalar vinna nú hörðum höndum að því að útvega undanþágulyf vegna hins landlæga skorts á ADHD-lyfinu Elvanese Adult. Innlent 29.8.2023 12:31
Mögulegt að 83 ára maður með fjórða stigs beinkrabba verði sendur heim Hrund Traustadóttir segir betur fara um föður sinn en hann er kominn á aðra deild á Landakoti, í tveggja manna herbergi þar sem hann hefur sjónvarp útaf fyrir sig, og hefur fengið aukna verkjastillingu. Innlent 29.8.2023 10:41
Fæstir tilbúnir að hætta alveg að neyta vímuefna Sérfræðingur í skaðaminnkun frá Bandaríkjunum segir þær aðferðir og meðferðir sem standi vímuefnanotendum til boða úreltar og oft gagnslausar. Hann er á landinu til að fræða um nýja aðferð þar sem fólki er boðið í meðferð jafnvel þótt það sé enn í neyslu. Innlent 28.8.2023 22:40
Formaður Læknafélags Íslands til Hrafnistu Steinunn Þórðardóttir, sérfræðingur í öldrunar- og lyflækningum, hefur verið ráðin í nýja stöðu framkvæmdastjóra lækninga hjá Hrafnistu frá og með 1. nóvember. Viðskipti innlent 28.8.2023 14:30
„Hann á ekki að þurfa að upplifa óöryggi, vanvirðingu og kvalir“ Aðstandandi krabbameinssjúklings á níræðisaldri fordæmir þá meðferð sem hann hefur fengið á Landspítalanum og segist vera niðurbrotin og svefnlaus af áhyggjum. Innlent 28.8.2023 00:13
Landspítali, ertu að grínast? Pabbi minn, tæplega 83 ára gamall hefur legið inni á Krabbameinsdeild Landspítalans í nokkrar vikur. Hann er með beinkrabbamein á 4. stigi sem byrjaði í blöðruhálskirtli eins og algengt er. Skoðun 27.8.2023 23:40