Svíþjóð

Thunberg hafnaði norrænum verðlaunum í mótmælaskyni
Sænska táningsstúlkan sagði heiminn þurfa á loftslagsaðgerðum að halda, ekki fleiri umhverfisverðlaunum.

Hættu rannsókn á óléttum konum sem gengu fram yfir eftir að sex börn dóu
Vísindamenn í Svíþjóð hafa hætt rannsókn á óléttum konum sem gengu með börn sín lengur en 40 vikur eftir að sex börn dóu.

Umhverfismál og varnarmál í brennidepli á Norðurlandaráðsþingi
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kveðst skilja sátt við formennskutíð Íslands í Norrænu ráðherranefndinni sem er senn að ljúka. Hún auk annarra ráðherra og þingmanna sækir Norðurlandaráðsþing sem hefst í Stokkhólmi á morgun.

Fleiri leita til Svíþjóðar til að stunda nám
Sendiherra Svíþjóðar á Íslandi segir að árið 2018 hafi þrír Íslendingar hafið nám við hinn virta Chalmers-háskóla í Gautaborg, en 33 nú í haust.

Loftslagsmálin til umræðu á þingi Norðurlandaráðsins
Þing Norðurlandaráðs, hið 71. í röðinni, fer fram í Stokkhólmi í vikunni en þar koma saman þingmenn og ráðherrar frá öllum Norðurlöndunum. Loftslagsmál, sjálfbærni og þátttaka ungs fólks í mótun markmiða eru áberandi á dagskránni. Ísland fer með formennsku í ráðinu á næsta ári.

Zlatan kvaddi með hreðjataki
Ballið búið hjá Zlatan Ibrahimovic og félögum eftir tap í úrslitakeppni MLS-deildarinnar í nótt.

Birta mynd af grunuðum morðingja Karolin Hakim
Lögreglan í Malmö hefur birt mynd af manni sem sagður er einn þeirra sem átti þátt í morðinu á hinni 31 árs Karolin Hakim þann 26. águst síðastliðinn.

Vonar að tilraunameðferð hjálpi Ægi að geta áfram gengið
Móðir drengs með vöðvarýrnursjúkdóm bindur vonir við að hann geti áfram gengið og mögulega bætt sig með tilraunameðferð sem hann mun gangast undir í Svíþjóð á næsta ári. Móðirin segir þau fara á eigin vegum til Svíþjóðar þar sem hún hefur heyrt að betur sé hugað að fjölskyldum langveikra barna en hér heima.

Glódís Perla sænskur meistari
Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur í Rosengård tryggðu sér í dag sænska meistaratitilinn í fótbolta.

Félagsmálayfirvöld í Svíþjóð hafa tekið ungabarn af íslenskri konu
Félagsmálayfirvöld í Svíþjóð hafa tekið ungabarn af íslenskri konu. Landsréttur dæmi hana í 15 mánaða fangelsi í fyrra fyrir ofbeldi gegn fimm börnum sínum á Íslandi. Sænsk félagsmálayfirvöld fengu þýddan dóm yfir konunni sendan.

Fyrrverandi aðalritari sænsku nóbelsnefndarinnar látinn
Sara Danius, fyrrverandi aðalritari sænsku Nóbelsverðlaunanefndarinnar, er látin 57 ára að aldri eftir langvinn veikindi.

Koma upp eftirliti á landamærum Danmerkur og Svíþjóðar
Danski dómsmálaráðherrann segir þetta gert til að auka öryggi borgaranna.

Nóbelsverðlaunahafar heimsækja Laxness
Sýning með ljósmyndum þýska ljósmyndarans Peter Badge af Nóbelsverðlaunahöfum verður opnuð í sænska sendiherrabústaðnum við Fjólugötu 9 um helgina.

Zlatan gaf börnum frí í skólanum til að sjá styttu af sér
Zlatan Ibrahimovic ætlar að gefa öllum skólabörnum í Malmö frí frá skóla í dag til þess að mæta á afhjúpun styttu af honum.

Litlu sænsku prinsarnir og prinsessurnar ekki lengur á ríkisspenanum
Karl Gústaf Svíakonungur hefur ákveðið að svipta fimm afabörn sín titlunum prins og prinsessa.

Lögreglumenn sem skutu mann með Downs til bana sýknaðir
Maðurinn hafði strokið að heiman og var með leikfangabyssu sem lögreglumennirnir töldu vera ekta.

Gera nýja kvikmynd um Línu langsokk
Barnabarn hinnar sænsku Astrid Lindgren vinnur að nýrri kvikmynd.

Norski hundasjúkdómurinn til Svíþjóðar
Yfirvöld í Svíþjóð hafa staðfest að einn hundur hafi drepist úr sjúkdómi sem hefur sömu einkenni og komið hafa upp í Noregi undanfarnar vikur.

Siglir frá Íran eftir að hafa verið fast í tvo mánuði
Olíuflutningaskip sem siglir undir breskum fána er að undirbúa að sigla á brott frá Íran eftir að hafa verið fast í höfn þar í tvo mánuði.

Þegar Greta Thunberg rak augun í Trump
Á myndum má sjá ískalt augnaráð Thunberg þegar hún sér bandaríska forsetann ganga framhjá.

Regnbogafáni bannaður á byggingum
Bæjarstjórn Sölvesborg í Suður-Svíþjóð hefur ákveðið að banna að flagga regnbogafánanum á opinberum byggingum.

Annar handtekinn í tengslum við morðið á Karolin
Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í dag, grunaður um að aðild að morðinu á Karolin Hakim.

Viktoría krónprinsessa, forsætisráðherrar og fyrrum forsetaframbjóðandi á mælendaskrá Arctic Circle
Alþjóðaþing Hringborðs norðurslóða – Arctic Circle fer fram á Íslandi dagana 10. til 13. október næstkomandi. Hringborð norðurslóða er orðinn fastur liður í ráðstefnulífi Reykjavíkurborgar.

Þrír nýir ráðherrar í Svíþjóð
Stefan Löfven skipaði þrjá nýja ráðherra í ríkisstjórn Svíþjóðar. Efst á blaði er Ann Linde sem tekur við sem utanríkisráðherra af Margot Wallström.

Stytta af Zlatan í Malmö: „Flestir fá þetta þegar þeir eru fallnir frá en ég fæ hana þegar ég er enn á lífi“
Stytta verður reist af Zlatan Ibrahimovic í heimabæ hans, Malmö, til minngar um frábæran feril hjá þessum magnaða Svía.

Langir dagar í Stokkhólmi
"Ég hafði aldrei stigið fæti inn á Karólínska sjúkrahúsið áður en ég varð forstjóri,“ segir Björn Zoëga. Gríðarlegur rekstrarhalli og möguleg málaferli vofa yfir einu fullkomnasta og glæstasta sjúkrahúsi á Norðurlöndunum.

Utanríkisráðherra Svíþjóðar segir af sér
Margot Wallström hefur ákveðið að segja af sér sem utanríkisráðherra Svíþjóðar.

Þekktur lögmaður skotinn í Stokkhólmi
Karlmaður var skotinn í íbúð á Kungsholmen í sænsku höfuðborginni Stokkhólmi í morgun.

Morðið í Malmö: Nítján ára manninum sleppt úr gæsluvarðhaldi
Nítján ára manni hefur verið sleppt úr gæsluvarðhaldi í Malmö.

Katrín leggur áherslu á lífskjarasamninga á ársþingi norrænu verkalýðshreyfinganna
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ávarpaði ársþing norrænu verkalýðshreyfinganna í Malmö í Svíþjóð í dag.