FH

Þögn ríkir hjá FH um málefni Eggerts
Fundað var um stöðu knattspyrnumannsins Eggerts Gunnþórs Jónssonar hjá FH í Kaplakrika í gær vegna gagnrýni á veru hans í liði FH á sama tíma og embætti héraðssaksóknara er með mál hans til skoðunar.

Sjáðu mörkin: Íslandsmeistararnir sneru taflinu við
Íslands- og bikarmeistarar Víkings lögðu FH í fyrsta leik Bestu deildar karla í fótbolta. Gestirnir úr Hafnafirði komust yfir eftir aðeins þrjátíu sekúndna leik en Víkingar svöruðu með tveimur mörkum og hófu mótið því á sigri.

FH-ingar stigalausir eftir fyrstu umferð í fyrsta sinn í ellefu ár
Besta deild karla í fótbolta hófst með stórleik. Íslands- og bikarmeistarar Víkings fengu FH í heimsókn og fór það svo að heimamenn unnu 2-1 sigur í stórskemmtilegum leik. Það er lítið óvanalegt við að tvöfaldir meistarar vinni heimaleik en sigur heimamanna var þó merkilegur fyrir nokkrar sakir.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - FH 2-1 | Íslandsmeistararnir hefja titilvörnina á sigri
Besta deild karla í knattspyrnu hófst í dag með opnunarleik milli Íslands- og bikarmeistara Víkinga og FH-inga úr Hafnarfirði en liðin mættust á heimavelli Víkinga í Fossvogi. Leikurinn fór fjörlega af stað og átti eftir að vera frábær skemmtun allt til lokaflautu. Víkingar fóru með sigur af hólmi, 2-1, og halda þar með sigurgöngu sinni frá síðasta tímabili áfram.

Þjálfari FH tjáir sig ekki um mál Eggerts: „Ég svara því ekki“
Ólafur Jóhannesson, þjálfari FH, vildi ekki tjá sig um þá umræðu sem skapaðist í kringum leik liðsins gegn Víkingum í Bestu-deild karla í kvöld um þá staðreynd að Eggert Gunnþór Jónsson hafi verið í byrjunarliði FH-inga.

Martin Hermannsson gagnrýnir liðsval FH-inga
Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, setur stórt spurningarmerki við það að Eggert Gunnþór Jónsson sé í byrjunarliði FH-inga gegn Víkingum í opnunarleik Bestu-deildarinnar sem nú fer fram.

Íslandsmeistarar ekki tapað opnunarleik undanfarin fjögur ár
Besta deildin í fótbolta hefst í kvöld þegar ríkjandi Íslandsmeistarar Víkings fá FH í heimsókn í Víkina.

Besta-spáin 2022: Níunda líf Óla Jó
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir FH 4. sæti Bestu deildar karla í sumar.

Hjörtur Logi hefur lagt skóna á hilluna
Hjörtur Logi Valgarðsson hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna. Hann lék með FH í efstu deild karla í fótbolta síðasta sumar en samningur hans rann út í kjölfarið. Óvíst var hvað hann myndi gera í sumar en hann tók alla vafa af er hann tilkynnti að skórnir væru farnir upp í hillu.

Jóhannes Berg í FH
Jóhannes Berg Andrason hefur skrifað undir þriggja ára samning við FH. Jóhannes, sem er 19 ára, skiptir yfir til FH úr uppeldisfélagi sínu Víkingi Reykjavík. Jóhannes ætti þó ekki að vera ókunnugur í Hafnarfirði þar sem faðir hans, Andri Berg Haraldsson, lék um árabil með FH.

„Ég get ekki leynt því að ég er svekktur, ég vildi vinna þennan titil“
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var sáttur með sigurinn er liðið tók á móti nágrönnum sínum í FH í Olís-deild karla í handbolta í dag. Eftir erfiða byrjun náðu Haukar forystunni undir lok fyrri hálfleiks og héldu henni út seinni hálfleikinn. Lokatölur 32-31.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - FH 32-31 | Haukar sigruðu Hafnarfjarðarslaginn
Haukar sigruðu nágranna sína í FH í lokaumferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld. FH-ingar voru með forystuna bróðurpart fyrri hálfleiks en Haukar snéru blaðinu við undir lok fyrri hálfleiks og héldu forystunni út allan leikinn. Lokatölur 32-31.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Afturelding 27-21 | Öruggur FH-sigur og Mosfellingar í vandræðum
Eftir þrjá leiki í röð án sigurs vann FH öruggan sigur á Aftureldingu, 27-21, í 21. og næstsíðustu umferð Olís-deildar karla í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Fram - FH 24-24 | Framarar stálu stigi á lokasekúndunni
FH og Fram skildu jöfn í Olís-deild karla í handbolta í kvöld, 24-24, en sú úrslit þýða að FH á ekki lengur möguleika á deildarmeistaratitlinum.

Sigursteinn Arndal: Það er uppskrift af svona tapi
FH tapaði sannfærandi í kvöld gegn ÍBV í Kaplakrika. Fimm marka tap staðreynd. Lokatölur 29-34.

Umfjöllun og viðtöl: FH 29-34 ÍBV | Eyjamenn sannfærandi í Hafnarfirði
FH fékk ÍBV í heimsókn í kvöld í frestuðum leik úr 16. umferð Olís-deildar karla í handbolta. Leikurinn var langt frá því að vera spennandi og endaði með öruggum sigri ÍBV 29-34

Seinni bylgjan: Ásbjörn í miklu basli eftir kinnhestinn
„Þetta var ljótt djók. Þetta er bara leiðinlegt fyrir hann,“ sagði Róbert Gunnarsson um FH-inginn Ásbjörn Friðriksson í Seinni bylgjunni í gærkvöld eftir gríninnslag tengt markametsfíaskóinu í síðustu viku.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Stjarnan 24-27 | Fyrsti sigur Stjörnumanna á árinu
Stjarnan vann sinn fyrsta leik á árinu þegar liðið lagði FH að velli, 24-27, í Kaplakrika í kvöld. Þetta var fyrsta tap FH-inga á heimavelli í vetur.

Reynsluboltinn Ásbjörn: „Þegar þú ert með börn og heimili þá er oft gott að komast á æfingu með strákunum“
Hinn stórskemmtilegi liður „Eina“ með hinum eina sanna Guðjóni Guðmundssyni eða Gaupa eins og alþjóð þekkir hann betur sem var á sínum stað í síðasta þætti Seinni bylgjunnar. Þar var rætt við Ásbjörn Friðriksson, einn besta leikmann FH sem og Olís-deildar karla í handbolta.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur - FH 1-2 | FH Lengjubikarmeistari þökk sé marki í blálokin
FH lagði ríkjandi Íslands- og bikarmeistara Víkings í úrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu í kvöld. Ástbjörn Þórðarson skoraði sigurmark leiksins með síðasta skoti leiksins undir lok uppbótartíma, lokatölur 2-1 Hafnfirðingum í vil.

Sogndal heldur áfram að kaupa leikmenn frá FH
Norska B-deildarliðið Sogndal hefur keypt Jónatan Inga Jónsson frá FH. Samningur kantmannsins við Sogndal gildir til loka tímabilsins 2024.

Ekki rétt að Ásbjörn sé sá markahæsti frá upphafi
Í gær tilkynntu FH-ingar að Ásbjörn Friðriksson sé orðinn markahæsti leikmaður efstu deildar frá upphafi en þegar tölfræðin var skoðuð betur kom í ljós að FH-ingurinn öflugi á enn nokkuð langt í land með að taka metið.

Sjáðu Ásbjörn „klobba“ landsliðsmarkvörðinn og verða sá markahæsti í sögunni
FH-ingurinn Ásbjörn Friðriksson er nú orðinn markahæsti leikmaður efstu deildar karla frá upphafi en hann bætti metið í stórsigrinum á Val í Olís-deild karla í gær.

Ásbjörn eftir merkan áfanga og góðan sigur: Þetta er viðurkenning að maður hafi verið að gera gott síðustu ár
Ásbjörn Friðiriksson leikmaður FH, náði þeim merka áfanga að verða markahæsti leikmaður Olís-deildar karla frá upphafi í kvöld er FH mætti Val í 18. umferð Olís-deildar karla í handbolta. Hann hefur nú skorað 1412 mörk í Olís-deildinni.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Valur 30-22 | Heimamenn hefndu fyrir tapið í bikarnum
FH-ingar fengu nýkrýnda bikarmeistara Vals í heimsókn í 18. umferð Olís-deildar karla í kvöld. Liðin mættust síðast í undanúrslitum Coca-cola bikarsins þar sem Valsmenn slóu FH út og því við hörkuleik að búast. Lokatölur 30-22.

Sogndal horfir áfram í Hafnafjörðinn: Vilja Jónatan Inga
Norska B-deildarfélagið Sogndal hefur mikinn áhuga á leikmönnum FH þessa dagana. Ekki er langt síðan bakvörðurinn Hörður Ingi Gunnarsson gekk í raðir félagsins og nú gæti vængmaðurinn Jónatan Ingi Jónsson farið sömu leið.

Upphitun Seinni bylgjunnar: „Valsararnir líta ógeðslega vel út“
Gríðarleg spenna er á toppi Olís-deildar karla í handbolta nú þegar fram undan eru fimm síðustu umferðirnar á aðeins þremur vikum. Algjör lykilleikur í bráttunni um sæti í úrslitakeppninni er í Safamýri í kvöld.

FH í úrslit Lengjubikarsins eftir sigur á Stjörnunni: Sjáðu mörkin
FH vann 3-1 sigur á Stjörnunni í undanúrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu í dag. FH mætir Íslands- og bikarmeisturum Víkings í úrslitum.

FH staðfestir komu Einars Braga
Skyttan efnilega Einar Bragi Aðalsteinsson mun ganga til liðs við FH í sumar og hefur skrifað undir samning til tveggja ára við félagið.

„Verður að vera skap í þessu og menn þurfa stundum að láta aðra heyra það“
Pétur Viðarsson er aftur búinn að setja fótboltaboltaskóna upp á hillu og nú endanlega. Gaupi hitti kappann og fór yfir ferilinn og ákvörðunina um að hætta.