ÍBV

Umfjöllun og viðtöl: Fram - ÍBV 1-3 | ÍBV með þriðja sigurinn í röð
Fram tók á móti ÍBV í þriðju umferð neðri hluta Bestu-deildar karla í fótbolta í dag. Það var mikið undir fyrir ÍBV sem þurfti sigur til að vera öruggt frá fallsæti. ÍBV byrjaði leikinn töluvert betur og leiddi 3-0 yfir í hálfleik. Framarar minkuðu muninn í seinni hálfleik en það dugði ekki til og 3-1 sigur ÍBV staðreynd. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Umfjöllun og viðtal: ÍBV - Ionias 27-22 | ÍBV áfram í sextán liða úrslit í Evrópu
ÍBV tók á móti Ionias frá Grikklandi í seinni leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópubikars kvenna í handbolta. Fyrri leikurinn endaði með eins marks sigri Ionias en ÍBV vann leik dagsins með fimm mörkum, 27-22, og eru því komnar áfram.

Ólgusjór í Vestmannaeyjum | Jonathan Glenn rekinn frá ÍBV
Jonathan Glenn, þjálfara ÍBV, hefur verið sagt upp störfum sem aðalþjálfari kvennaliðs félagsins í fótbolta. ÍBV er harðlega gagnrýnt á samfélagsmiðlum fyrir ákvörðunina, meðal annars frá leikmönnum íslenska landsliðsins.

Umfjöllun og viðtöl: Ionias - ÍBV 21-20 | Grikkirnir unnu fyrri leik liðanna
ÍBV mætti Ionias frá Grikklandi í fyrri leik liðanna í 32-liða úrslitum Evrópubikars kvenna í handbolta. Hrun Eyjaliðsins í undir lok síðari hálfleiks varð til þess að Ionias vann eins marks seiglusigur, 21-20.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Keflavík 2-1 | Seiglusigur Eyjamanna sem fóru langt með að tryggja sætið að ári
ÍBV vann 2-1 sigur á Keflavík á heimavelli í Bestu deild karla í knattspyrnu. Þetta er annar sigur Eyjamanna í röð í úrslitakeppni neðri hluta deildarinnar og stigin þrjú eru gríðarlega mikilvæg fyrir ÍBV í fallbaráttunni.

Hermann: Karakterinn í klefanum náði í þessi stig
„Þetta var mikilvægt, það er gott að byrja þetta svona vel með tveimur heimaleikjum og tveimur sigrum. Við erum kampakátir,“ sagði Hermann Hreiðarsson þjálfari ÍBV eftir góðan sigur á Keflavík í Bestu deild karla í dag en sigurinn færir Eyjamönnum skrefi nær sæti í deildinni að ári.

ÍBV vann öruggan sigur á HK
Eyjakonur áttu ekki í vandræðum með HK í Olís-deild kvenna í dag. ÍBV vann 13 marka útisigur, 18-31.

Flýta og seinka leikjum í Bestu deildinni vegna slæmrar veðurspár um helgina
Knattspyrnusamband Íslands hefur gert breytingar á þremur leikjum í úrslitakeppni Bestu deildar karla og bæði fært leiki fram og aftur í tímann.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Stjarnan 36-27 | Eyjamenn áfram ósigraðir eftir stórsigur
Eyjamenn voru, ásamt Valsmönnum, eina taplausa lið Olís-deildar karla fyrir leik kvöldsins. Þeir fengu Stjörnumenn í heimsókn í fyrsta leik 5. umferðar og unnu sannfærandi níu marka sigur, 36-27.

Sjáðu Danijel fylltan hetjumóð og glæsimark Telmo gegn FH
Víkingar gerðu endanlega út um vonir Vals um Evrópusæti með mögnuðum 3-2 endurkomusigri í Bestu deild karla í fótbolta og FH er enn í fallsæti eftir 2-1 tap í Vestmannaeyjum. Mörkin úr leikjunum má nú sjá hér á Vísi.

Umfjöllun: ÍBV 2-1 FH | FH-ingar áfram í fallsæti eftir tap í Eyjum
ÍBV vann öflugan 2-1 sigur á FH í Vestmannaeyjum í fyrstu umferð úrslitakeppni neðri helmings Bestu-deildarinnar. Með sigrinum er ÍBV nú fjórum stigum fyrir ofan FH með 23 stig á meðan Hafnfirðingar eru enn þá í næst neðsta sæti með 19 stig.

Margrét skorar á Eyjamenn: „Þær munu bara sitja eftir“
Margrét Lára Viðarsdóttir flutta eldræðu um aðstöðuna sem knattspyrnulið ÍBV hafa yfir vetrartímann, í lokaþætti Bestu markanna á Stöð 2 Sport, og Mist Rúnarsdóttir sagðist vonast til þess að bæjarstjórnin í Vestmannaeyjum fengi ræðuna senda.

Umfjöllun og viðtal: ÍBV - Hörður 43-25 | Greinilegir yfirburðir Eyjamanna
ÍBV og Hörður mættust í Vestmannaeyjum í Olís-deild karla í handbolta í dag. Aldrei í sögu deildarinnar hefur verið eins langt á milli heimabæja liðanna sem mætast. Það voru Eyjamenn sem unnu þægilegan átján marka sigur.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Afturelding 3-0 | Þriggja marka Eyjasigur á föllnum Mosfellingum
Afturelding kvaddi Bestu deildina í bili með tapi gegn ÍBV í Vestmannaeyjum í lokaumferð deildarinnar. ÍBV vann sannfærandi þriggja marka sigur í rokinu og rigningunni á Hásteinsvelli.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - ÍBV 31-31 | Jafnt í háspennuleik í Suðurlandsslagnum
Selfoss og ÍBV gerðu 31-31 jafntefli er liðin mættust í háspennuleik í fjórðu umferð Olís-deildar karla í handbolta í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - ÍBV 1-2 | ÍBV aftur á sigurbraut
ÍBV komst aftur á sigurbraut en ÍBV hafði ekki tekist að vinna í síðustu fjórum leikjum. Leikurinn fór rólega af stað en ÍBV komst yfir þegar 40 mínútur voru liðnar af leiknum. Keflavík brotnaði algjörlega við þetta mark og ÍBV bætti við öðru marki tveimur mínútum síðar.Keflavík minnkaði forystu ÍBV í seinni hálfleik en gerði lítið til að jafna leikinn og Eyjakonur fögnuðu 1-2 sigri. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Stjarnan 22-24 | Garðbæingar höfðu betur í Eyjum
ÍBV og Stjarnan unnu bæði flottan sigur í fyrstu umferð Olís-deildar kvenna í handbolta en það voru Garðbæingar sem fóru með tveggja marka sigur með sér í Herjólf að leik loknum.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV-ÍR 43-28 | Stórsigur Eyjamanna gegn nýliðum ÍR
ÍBV tók á móti ÍR í Olís-deild karla í handbolta í Vestmannaeyjum í kvöld. Eyjamenn í leit að sínum fyrsta sigri en ÍR með það í huga að sjokkera annað stórlið eftir sigur á Haukum. Golíat hafði hinsvegar betur gegn Davíð og vann ÍBV með fimmtán mörkum, 43-28.

Heimir: Hemmi var hugrakkur að fara inn í mótið með þennan hóp
Heimir Hallgrímsson kom þjálfara ÍBV, Hermanni Hreiðarssyni, til aðstoðar eftir hörmungarbyrjun Eyjamanna í Bestu-deildinni en þeir unnu ekki leik fyrr en í 13. umferð. Eftir komu Heimis á bekkinn skánaði gengi liðsins mikið.

Valskonur einar um að fljúga frá Íslandi
Tvö íslensku liðanna sem leika í 2. umferð Evrópubikars kvenna í handbolta munu leika einvígi sín alfarið á heimavelli en bikarmeistarar Vals spila hins vegar báða leiki sína á útivelli.

Umfjöllun og viðtöl: KA-ÍBV 35-35 | Dramatískt jafntefli tryggði liðunum sín fyrstu stig
KA og ÍBV gerðu 35-35 jafntefli í annari umferð Olís-deildar karla í handbolta í KA-heimilinu í dag. Heimamenn leiddu með þremur mörkum í hálfleik en Eyjamenn sýndu styrk sinn í þeim seinni og komust yfir þegar fjórar mínútur voru eftir. KA tókst þó að jafna og liðin skiptu því stigunum á milli sín.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV-Valur 0-3 | Tíu fingur og níu tær á titlinum
Valskonur gátu komið í það minnsta níu og hálfum fingri á Íslandsmeistarartitilinn með sigri gegn ÍBV í 16. umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu. Leikurinn endaði með sannfærandi 0-3 sigri þeirra rauðklæddu.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik-ÍBV 3-0 | Blikar í kjörstöðu fyrir úrslitakeppnina
Breiðablik, topplið Bestu-deildar karla í knattspyrnu, vann 3-0 sigur á móti ÍBV í lokaumferð deildarinnar. Liðið er í kjörstöðu fyrir skiptingu deildarinnar en Víkingur og KA eru átta stigum á eftir Blikum í dag.

ÍBV vann KA/Þór með minnsta mun
KA/Þór var í heimsókn í Vestmannaeyjum og mætti ÍBV í Olís-deild kvenna. Fór það svo að heimaliðið vann með minnsta mun, lokatölur 28-27.

„Þetta er mjög óíþróttamannslegt“
Sérfræðingarnir í Bestu mörkunum sökuðu Önnu Petryk um afar óíþróttamannslega tilburði í leik Breiðabliks gegn ÍBV í Vestmannaeyjum síðastliðinn föstudag.

Olís-spá kvenna 2022-23: Með fullhlaðnar byssur
Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir ÍBV 2. sæti Olís-deildar kvenna í vetur.

Sýndum mikinn karakter
„Ég held að þetta hafi verið sanngjörn niðurstaða í þessum leik, hann var fremur kaflaskiptur og opinn,“ sagði Perry John James Mclachan þjálfari Þór/KA eftir 3-3 jafntefli við ÍBV á Akureyri í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA 3-3 ÍBV | Jafnt í markaleik á Akureyri
Þór/KA og ÍBV gerðu jafntefli í sex marka leik í lokaleik 15. umferðar Bestu-deildar kvenna í fótbolta.

Heimir ekki með ÍBV í dag - Sagður í viðræðum erlendis
Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson var hvergi sjáanlegur á Hásteinsvelli í dag þegar ÍBV og Fram gerðu 2-2 jafntefli í Bestu deildinni í fótbolta.

ÍBV örugglega áfram í Evrópubikarkeppninni
Eyjamenn lögðu ísraelska liðið Holon að velli öðru sinni í Vestmannaeyjum í dag og eru komnir áfram í aðra umferð Evrópubikarkeppninnar.