
UMF Selfoss

Umfjöllun og viðtöl: Þór/KA - Selfoss 3-0 | Öruggt hjá heimaliðinu og gestirnir límdir við botninn
Þór/KA gerði sér lítið fyrir og rúllaði Selfoss upp í fyrsta leik 8. umferðar Bestu deildar kvenna í knattspyrnu. Selfoss situr sem fastast á botninum á meðan Þór/KA lyfti sér upp í 4. sæti. Liðin þurftu bæði á sigri að halda í dag enda hafði hvorugt liðið unnið leik síðan í 4. umferð deildarinnar sem fram fór um miðjan maí.

„Við ætlum að vera í topp sex“
„Þetta er mikil léttir og ég er gríðarlega ánægður með mitt lið í dag. Vilji, gæði, skipulag og agað spil skóp þennan sigur.“ sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þór/KA eftir góðan 3-0 sigur á Selfoss á Þórsvellinum í dag.

Margrét Lára segir pressu FH vera unaðslega
Þrátt fyrir að vera nýliði í Bestu deild kvenna þá er FH óhrætt við að pressa mjög hátt á móti andstæðingum sínum.

Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Selfoss 2-0 | Heimaliðið upp úr fallsæti en gestirnir í vondum málum
FH tók á móti Selfossi í einni af fjórum viðureignum kvöldsins í Bestu deild kvenna í fótbolta. Leiknum lauk með 2-0 sigri FH, sem skýtur sér með þessum sigri upp í 5. sæti deildarinnar en gestirnir sitja enn á botninum og hafa nú tapað þremur leikjum í röð. Mörk liðsins skoruðu Valgerður Ósk Valsdóttir og Sara Montoro.

Björn: Við þurfum meiri ákafa í boxið
Björn Sigurbjörnsson var að vonum svekktur eftir tap Selfoss gegn Breiðablik nú í kvöld. Breiðablik var komið yfir eftir innan við þriggja mínútna leik og það var nokkuð ljóst að Selfyssingar væru í vandræðum.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Breiðablik 0-3 | Blikar sóttu þrjú stig yfir heiðina
Breiðablik er komið upp í annað sæti Bestu deildar kvenna eftir öruggan 3-0 sigur á Selfossi í kvöld. Selfoss er áfram í fallsæti deildarinnar.

Hópurinn heldur tryggð við Selfoss og Perla og Harpa bætast við
Selfyssingar hafa heldur betur tryggt sér liðsstyrk fyrir komandi átök í Grill 66-deild kvenna í handbolta á næsta tímabili. Perla Ruth Albertsdóttir kemur til liðsins frá Fram og Harpa Valey Gylfadóttir kemur frá ÍBV.

Lena Margrét tók U-beygju á Hellisheiðinni
Handboltakonan Lena Margrét Valdimarsdóttir er hætt við að fara í Selfoss og er gengin í raðir Fram á nýjan leik.

Hrækti á leikmann Fjölnis: „Óafsakanlegt á alla vegu“
Gonzalo Zamorano, sóknarmaður Selfoss, var einn af þremur sem fengu rautt spjald í leik gegn Fjölni í Lengjudeildinni í fótbolta á dögunum. Ástæðan var óvenjuleg en Zamorano varð uppvís að því að hrækja á andstæðing.

Umfjöllun: Keflavík - Selfoss 1-0 | Keflavík hífir sig upp töfluna með sigri gegn Selfossi
Keflavík lagði Selfoss að velli með einu marki gegn engu þegar liðin mættust í 5. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta suður með sjó í kvöld.

Katla: Erum með góðan og breiðan hóp
Katla María Þórðardóttir skoraði tvö mörk í 3-1 sigri Selfoss á Tindastól. Leikurinn var hluti af fjórðu umferð Bestu deildar kvenna og fór fram fyrr í kvöld á JÁVERK-vellinum á Selfossi. Þetta var fyrsti sigur Selfoss það sem af er tímabils.

Handboltahjónin á Selfossi aftur til heimalandsins
Hjónin Karolis Stropus og Roberta Stropé hafa ákveðið að flytja heim til Litáen og munu því ekki leika með Selfossi á næstu leiktíð eftir tvö ár hjá félaginu. Raunar ætla þau bæði að leggja skóna á hilluna.

ÍR vann og Selfoss spilar í næstefstu deild á næstu leiktíð
Selfoss og ÍR mættust í oddaleik um sæti í Olís-deild kvenna í handbolta á næstu leiktíð. Fór það svo að ÍR vann leik kvöldsins með þriggja marka mun, 30-27, og spilar í efstu deild á næstu leiktíð.

Umfjöllun og viðtöl: Valur - Selfoss 1-1 | Botnliðið náði í stig gegn meisturunum
Íslandsmeistarar Vals tóku á móti Selfossi á Hlíðarenda í kvöld. Niðurstaða leiksins var 1-1 jafntefli. Bryndís Arna Níelsdóttir gerði mark Vals og Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir skoraði fyrir gestina. Bæði lið klífa upp töfluna með þessu jafntefli, Valur situr nú í 2. sæti en Selfoss færir sig upp af botninum og situr nú í 9. sæti deildarinnar.

Selfoss knúði fram oddaleik
Selfoss vann öruggan sigur á ÍR í fjórða leik liðanna í umspili um sæti í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð. Staðan í einvíginu er 2-2 og því oddaleikur framundan á Selfossi á miðvikudag.

„Þetta er greinilega ekki að hafa áhrif á spilamennskuna hennar“
Lena Margrét Valdimarsdóttir er í sérstakri stöðu sem leikmaður Stjörnunnar í úrslitakeppni Olís-deildarinnar í handbolta, en búin að semja við Selfoss sem berst fyrir lífi sínu í deildinni á sama tíma.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Þróttur 1-2 | Þróttur unnið fyrstu tvo en Selfoss enn án stiga
Þróttur vann góðan 2-1 útisigur er liðið heimsótti Selfoss í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Þróttur hefur nú unnið fyrstu tvo leiki sína á tímabilinu, en Selfyssingar eru enn án stiga.

„Þar finnst mér virðingaleysið vera algjört“
Björn Sigurbjörnsson, þjálfari Selfoss, var eðlilega svekktur eftir 2-1 tap liðsins gegn Þrótti á heimaveli í Bestu-deild kvenna í kvöld.

„Ýmsar upplýsingar sem bárust ekki til okkar og það var það sem fór í taugarnar á mér“
Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar í Bestu-deild kvenna, var að vonum ánægður með sigur síns liðs gegn Selfyssingum í kvöld. Leik kvöldsins hafði verið frestað í tvígang og Nik hafði hótað því að ræða ekki við fjölmiðlafólk á vegum Sýnar eftir leikinn, en eftir að hafa rætt málin snérist honum hugur.

Selfoss heldur í vonina um sæti í efstu deild
Selfoss hélt sér á lífi í umspili um sæti í Olís-deild kvenna í handknattleik með öruggum sigri á ÍR á heimavelli í kvöld. ÍR leiðir 2-1 í einvíginu.

Lena Margrét: Engin ákvörðun komin um hvað gerist ef Selfoss fellur
Lena Margrét Valdimarsdóttir, leikmaður Stjörnunnar, var afar svekkt eftir eins marks tap gegn Val í undanúrslitum Olís-deildar kvenna. Lena er búin að semja við Selfoss fyrir næsta tímabil en taldi það ekki vera truflandi í einvíginu gegn Val.

Segir vinnubrögð Sýnar og KSÍ vera til skammar og hótar löngu fjölmiðlabanni
Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar í Bestu-deild kvenna í knattspyrnu, er allt annað en sáttur við vinnubrögð KSÍ og Sýnar eftir að leik liðsins gegn Selfossi var frestað í annað sinn á innan við viku.

Hvað verður um stjörnurnar á Selfossi ef liðið fellur?
Ekki liggur fyrir hver framtíð leikmannanna sem hafa samið við Selfoss verður ef liðið fellur niður í Grill 66 deildina.

Félögin selja hamborgara, bjór og varning fyrir tugi milljóna
KSÍ og Deloitte munu í dag kynna skýrslu um fjármál íslenskrar knattspyrnu á síðustu fjórum árum. Vísir hefur fengið aðgang að skýrslunni og mun birta greinar upp úr henni í dag.

Breiðablik hefur fengið 390 milljónir frá UEFA á tveimur árum
KSÍ og Deloitte munu í dag kynna skýrslu um fjármál íslenskrar knattspyrnu á síðustu fjórum árum. Vísir hefur fengið aðgang að skýrslunni og mun birta greinar upp úr henni í dag.

Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Selfoss 1-0 | Eyjakonur unnu fyrsta sigur tímabilsins
ÍBV vann góðan 1-0 sigur er liðið tók á móti Selfyssingum í Suðurlandsslag í fyrstu umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu í kvöld.

Besta spáin 2023: Eitt skref aftur á bak til að taka tvö áfram
Eftir að hafa lent í 5. sæti á síðustu leiktíð, og leiktíðina þar á undan, þá dreymir Selfyssinga um að taka skref fram á við. Þolinmæði er hins vegar dyggð og það þurfa Sunnlendingar að muna gangi spá Vísis eftir.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - FH 24-33 | FH sendi Selfoss í sumarfrí
Selfoss er úr leik eftir að hafa fengið skell gegn FH á heimavelli. Leikurinn endaði með níu marka sigri FH-inga 24-33. Gestirnir settu tóninn strax í upphafi leiks og sigurinn var gott sem kominn í hálfleik.Tímabilinu er lokið hjá Selfyssingum en FH mætir ÍBV í undanúrslitum.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Selfoss 30-29 | Óbærileg spenna í fyrsta leik
FH tók forystuna í einvíginu við Selfoss í átta liða úrslitum Olís-deildar karla í handbolta með sigri í fyrsta leik liðanna í kvöld, 30-29. Einar Sverrisson gat jafnað fyrir Selfyssinga úr vítakasti eftir að leiktíminn var runninn út en skaut í stöng.

„Úrslitakeppnin, er hún ekki bara byrjuð?“
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var enn í miðju umróti tilfinninganna þegar hann mætti í viðtal eftir sigur sinna manna á Selfossi í kvöld, 30-29.