Sport

Brynjar Björn til Reading

Tilboði enska 1.deildarliðsins Reading í íslenska landsliðsmanninn Brynjar Björn Gunnarsson sem leikur hjá Watford hefur verið samþykkt. Ekki er vitað hvert kaupverðið er sem stendur. Nú á Brynjar Björn eftir að standast læknisskoðunn og semja um eigin hagi áður en hann getur gengið frá félagaskiptum í Reading en fyrir hjá félaginu er fyrir Ívar Ingimarsson sem er fyrrum félagi Brynjars Björns hjá íslenska landsliðinu. En Ívar gefur ekki kost á sér í landsliðið sem stendur eða á meðan núverandi landsliðsþjálfarar eru við störf. Fari Brynjar Björn til Reading eru báðir Íslendingarnir sem léku með Watford á síðustu leiktíð farnir því fyrr í suamr fór Heiðar Helguson frá Watford til Fulham.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×