Skoðun

Eru siðareglur lífeyrissjóða gluggaskraut?

Ólafur Hauksson skrifar

Icelandair Group er að langmestu leyti í eigu lífeyrissjóðanna, sem eru í eigu meirihluta Íslendinga. Ætla mætti að fulltrúar lífeyrissjóða á aðalfundi Icelandair Group hefðu siðareglur þeirra í heiðri við val stjórnarmanna. En slíkar reglur virðast ekki flækjast fyrir, í ljósi þeirrar staðreyndar að fulltrúar lífeyrissjóðanna velja Sigurð Helgason sem stjórnarformann Icelandair Group.

Ekki er langt síðan Icelandair, dótturfélag Icelandair Group, var dæmt í Hæstarétti til að greiða 80 milljóna króna sekt vegna grófra samkeppnislagabrota þegar Sigurður Helgason var þar forstjóri. Þessi brot áttu sér stað á árunum 2003 og 2004, en þá fórnaði Icelandair farþegatekjum upp á 18 milljarða króna til að drepa nýjan keppinaut í fæðingu.

Sem þáverandi forstjóri bar Sigurður ábyrgð á samkeppnislagabrotum Icelandair. Af einhverjum undarlegum ástæðum hafa þessi lögbrot og hrikalegt tekjutap sem þeim fylgdu engin áhrif haft á framgang hans í viðskiptalífinu. Þess í stað hefur Sigurði verið lyft á stall stjórnarformanns Icelandair Group.

Metnaðarfullar siðareglur

Aðaleigendur Icelandair Group, Framtakssjóður með Landsbankann og lífeyrissjóðina innanborðs, ásamt flestöllum lífeyrissjóðum landsins, hafa sett sér metnaðarfullar siðareglur. Rauði þráðurinn í þeim er að sýna samfélagslega ábyrgð. Mikil áhersla er lögð á góða viðskiptahætti í samræmi við almennt og gott viðskiptasiðferði.

Með valinu á Sigurði Helgasyni í stjórn Icelandair Group láta lífeyrissjóðirnir og Landsbankinn eins og siðareglurnar séu gluggaskraut en ekki til alvöru notkunar.

Sem forstjóri Icelandair vann Sigurður beinlínis gegn hagsmunum eigenda lífeyrissjóðanna, fólksins í landinu. Undir stjórn hans gerði Icelandair atlögu að hagsmunum almennings með misnotkun á markaðsráðandi stöðu félagsins. Tilgangurinn var að koma í veg fyrir samkeppni í millilandaflugi, samkeppni sem tryggði neytendum lægri flugfargjöld en áður höfðu þekkst.

Farþegatekjur Icelandair hrundu

Árin 2001 og 2002 voru heildarfarþegatekjur Icelandair 85 milljarðar króna, framreiknað til dagsins í dag. Næstu tvö ár, 2003 og 2004, fyrstu ár samkeppninnar frá Iceland Express, lækkuðu heildarfarþegatekjur Icelandair niður í 67 milljarða króna. Samt fækkaði farþegum félagsins ekkert. Undir stjórn Sigurðar Helgasonar fórnaði Icelandair sem sé 18 milljarða króna farþegatekjum til að drepa nýja keppinautinn. Þá, líkt og nú, voru lífeyrissjóðir stórir hluthafar í félaginu. Sjóðfélagar töpuðu því beint á þessum lögbrotum í gegnum verri afkomu Icelandair.

Ekki skyldi gleyma áhrifunum af miskunnarlausu framferði Sigurðar á stofnendur Iceland Express. Vegna þessara lögbrota töpuðu þeir margra ára undirbúningsvinnu, milljarða króna viðskiptahugmynd og lífvænlegu fyrirtæki, þegar þeir neyddust til að láta það af hendi vegna lögbrota Icelandair.

Á að kjósa Sigurð áfram?

Framferði Icelandair, á ábyrgð Sigurðar Helgasonar, stríddi gegn öllu viðskiptasiðferði. Siðlaus framkoma af því tagi fyrnist ekki. Ef fulltrúar lífeyrissjóðanna og Landsbankans ætla að kjósa hann aftur til setu í stjórn Icelandair Group, þá afhjúpa þeir sig sem hræsnara sem halda að siðareglur séu bara til að sýnast.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×