Enn einu sinni Einar Helgason skrifar 17. desember 2021 13:00 Enn einu sinni verður maður vitni af því þegar stjórnmálamaður sem er utan stjórnar skrifar hjartnæma grein um bág kjör aldraða og öryrkja. Þetta voru einmitt orðin sem mér datt í hug þegar ég las grein Björns Leví Gunnarssonar í morgunblaðinu 15/12. Enn einu sinni tjáir stjórnmálmaður sig um þessi mál á þann hátt að það mætti halda að hann væri tárvotur við skriftirnar. Nú ætla ég að taka það fram að ég hef frekar góðan þokka á þessum þingmanni sem þarna heldur á penna. Og ég ætla líka taka það fram að hversu góður sem hann er og hversu góðar meiningar sem hann hefur þá mun hann aldrei standa við þær frekar en aðrir stjórnmálamenn ef hann kemst í stjórn. Þar sem ég er orðin sjötíu og tveggja ára gamall og hef fylgst með stjórnmálum á Íslandi svo lengi sem ég man þá veit ég nákvæmlega hvernig kaupin ganga á eyrinni. Ég gæti meira að segja skrifað fyrir hann stjórnarsáttmála um þessi mál ef hann einhvern tímann kæmist það langt að komast í ríkisstjórn. Hún myndi einhvern vegin hljóma á þennan hátt um þessi mál. Stefnt skal að bæta kjör aldraða og öryrkja á kjörtímabilinu. Eða, skipa skal nefnd sem mun hafa það hlutverk að kanna kjör aldraða og öryrkja á kjörtímabilinu. Og svo líður kjörtímabilið og ekkert skeður með því fólki sem áður var grátbólgið yfir kjörum sem þessu fólki var boðið uppá. Það er jafnvel svo forhert að halda því fram að kjörin hafi batnað þótt ótal útreikningar hafi sýnt fram á hið gagnstæða eins og dæmin sanna með Katrínu Jakopsdóttir. Það er jafnvel til myndskeið af henni frá þeim tíma þegar hún var utan stjórnar þar sem hún hélt því fram að þessi mál þyrfti að leiðrétta ekki seinna en strax því að þau þyldu enga bið. Ég hef, á minni löngu ævi ávallt mætt samviskulega á kjörstað þegar blásið er til kosninga á Íslandi. Og alltaf ráðstafað atkvæði mínu í þá áttina að trúa því fólki sem býður sig fram og er með þær skoðanir sem mér þóknast. Svo kemst maður að því smátt og smátt að helsti tilgangurinn hjá því er að skara eld að sinni eigin köku. Jú reyndar getur það áfram hamast í greinarskrifum og tuði í ræðustól alþingis ef það er utan stjórnar um þetta óréttlæti sem ellilífeyrisþegar og öryrkjar eru beittir en lengra nær það ekki. Augljósasta dæmið um þetta er stjórnarþátttaka Vinstri Grænna sem einhverjir héldu að væri mesti félagshyggjuflokkur á Íslandi. Ég spyr bara eins og fáviti, hvaða bjánar kusu hann aftur í síðustu kosningum eftir reynslu síðustu fjögurra ára. Og ef þið haldið að þetta séu einhverjar ýkjur sem ég er að tala um þá skulið þið kynna ykkur stórhækkaða ríkisstyrki til flokkanna sem allir á þingi stóðu einhuga um. Um þetta er fjallað í grein þessa dagana á Kjarnanum. Eins hefur komið fram að á síðustu árum hefur stöðugt verið bætt við greiðslur fyrir aukastörf sem þingmenn vinna sem eru ekkert annað en að duldar hækkanir á kaupi án þess að nokkur ágreiningur hafi orðið. Svo má ekki gleyma fáránleikanum þegar mynduð er stjórn og flokkarnir sem að því standa fara skipta á milli sín titlum og stólum. Þá eru til nógir peningar þótt ríkisbáknið þenjist út á kostnað almennings sem ekki er til neins nema að þjóna stjórnlausri valdagræðgi fólksins sem komst að kjötkötlunum. Kannski er ég bara bitur karlfuskur sem er að komast að því eftir að hafa borgað samviskusamlega í lífeyrissjóð alla mína starfsævi að þessi framfærsla sem mér er ætlað að lifa á dugar ekki. Eða það er kannski hægt að orða það þannig að vegna skerðinga og skatta sem hver einasta persóna sem komin er á þing hefur lýst yfir á einhverjum tímapunti með grátstafinn í kverkunum að sé óréttlátt dugar ekki til að lifa af. Eitt lítið dæmi um þetta er einhver desemberuppbót sem átti að koma nú í byrjun desember. Sú upphæð var auðvita skattlögð og skert duglega af hinu opinbera þannig að það sem eftir stóð var ekki nóg fyrir einni hangikjötsmáltíð um jólin. Mér er satt að segja forvitni á að vita hvort desemberuppbótin sem þingmennirnir fengu á sama tíma hafi verð skattlögð það mikið að þeir eigi ekki fyrir jólamatnum. En verði ykkur samt að góðu og gleðileg jól. Höfundur er fyrrverandi sendibílstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Félagsmál Eldri borgarar Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar