Fótbolti

Arnar hrósar Sölva í há­stert: „Gerði liðið að sínu strax í fyrsta leik.“

Aron Guðmundsson skrifar
Arnar Gunnlaugsson fylgdist stressaður en stoltur með leik Víkings Reykjavíkur gegn Panathinaikos í Sambandsdeildinni á dögunum
Arnar Gunnlaugsson fylgdist stressaður en stoltur með leik Víkings Reykjavíkur gegn Panathinaikos í Sambandsdeildinni á dögunum Vísir/Samsett mynd

Arnar Gunn­laugs­son, lands­liðsþjálfari og fyrr­verandi þjálfari Víkings Reykja­víkur fylgdist stoltur með liðinu ná í einn af stærstu sigrum ís­lensks félagsliðs í Evrópu í er liðið lagði Pan­at­hinai­kos af velli, 2-1 í Sam­bands­deildinni. Arnar segir arf­taka sinn hafa gert liðið að sínu strax í fyrsta leik.

„Ég var eigin­lega meira stressaður að horfa á leikinn í sjón­varpinu heldur en frá hliðar­línunni alla jöfnu,“ segir Arnar. „Maður elskar þessa stráka og félagið það mikið að þetta var bara erfitt. Erfitt að fylgja þessu eftir. Bara geggjaður sigur.“

Sigurinn sé með glæstustu sigrum ís­lensks félagsliðs í Evrópu. Víkingar nú einum leik, jafn­tefli eða sigri, frá 16-liða úr­slitum Sam­bands­deildarinnar.

„Það hafa verið nokkrir stórir sigrar. Þessi er alla­vegana uppi með þeim. Þetta var bara svo vel upp settur leikur hjá þjálfara­t­eyminu. Maður man ekki eftir því að liðið hafi lent í teljandi vand­ræðum allan leikinn. Þá líka bara miðað við hvernig undir­búningi beggja liða var háttað fyrir leikinn. Bara hrós á Víkingana. Þetta er flott fyrir ís­lenska boltann. Klár­lega einn af stóru Evrópu­sigrunum í sögu Ís­lands.“

Víkingar á hálf­gerðu undir­búningstíma­bili með lykil­menn frá vegna meiðsla en Pan­at­hinai­kos, þó einnig með menn frá, en á miðju tíma­bili heima fyrir.

„Þetta var alltaf að fara verða mikil áskorun. Ég fékk magasár yfir þessu í byrjun janúar, hvernig þessu yrði háttað. Það er bara svo mikil jákvæðni í gangi þarna í Víkinni, Sölvi kemur inn ferskur og með nýjan blæ. Nær að virkja strákana vel og nýir að­stoðar­menn kynntir til leiks. Þetta gengur eins og vel smurð vél.

En nú sé ekki tíma­punktur til að fara fram úr sér. Aðeins sé hálf­leikur í ein­víginu og fram­u erfitt verk­efni í Grikk­landi.

„Ef ég má tala til strákana þá verða þeir að halda fókus. Þetta gefur byr undir báða vængi en Grikkirnir eru særð ljón og verða dýr­vit­lausir á sínum eigin heima­velli. Stuðnings­menn þeirra líka. En ég held að Víkingarnir hafi fengið það sem þeir vildu út úr þessum leik. Að vera í góðum séns, virki­lega góðum séns þegar að seinni leikurinn hefst því það verður líka brekka fyrir Grikkina að vera undir þessari pressu frá sínum eigin stuðnings­mönnum. Þeir verða pirraðir ef þeir ná ekki að skora á fyrsta stundar­fjórðungnum. Víkingarnir verða að láta þennan meðbyr njóta sín í leiknum úti.“

Eins marks for­ysta sem hefði verið tveggja marka ef óskiljan­leg ákvörðun dómara leiksins, að dæma víta­spyrnu undir lok leiks, hefði ekki skotið upp kollinum og gefið Grikkjunum sterkari líflínu.

„Ég er nú búinn að dá­sama VAR í Evrópu­keppninni hjá Víkingum hingað til. Mér fannst þetta skrítið víti í gær. Núna er ég ekki að væla, því ég er ekki þjálfari Víkings lengur heldur segi þetta sem stuðnings­maður. Mér fannst þetta skrítið. Í fyrsta lagi var dæmt á hendi en svo finnur dómarinn ein­hverja af­sökun og segist hafa séð brot en ef hann hefði sleppt því að flauta þá hefði þetta aldrei sést. Í ein­hverri hægri endur­sýningu í tíunda skipti má mögu­lega dæma eitt­hvað en fyrir mér var þetta aldrei víti.“

Arnar lík­legast síðasti maðurinn sem rekur upp stór augu í kjölfar þessarar góðu frammistöðu Víkinga.

„Þetta er eins og að ala upp barn, svo sendirðu barnið út í lífið og það heldur áfram að gera góða hluti. Maður var eins og stolt for­eldri að horfa á þeirra fram­göngu en ég vissi allan tímann að liðið væri í topp­höndum. Það er búið að vinna geggjað starf, góð stjórn þarna á bak við og Kári með svipuna á lofti. Sölvi er orðinn góður þjálfari og verður toppþjálfari. Hann hefur allt til brunns að bera til að verða toppþjálfari og sýndi kænsku sína gær því að liðið var ekkert að spila eftir svipuðum áherslum og ég var með. Það var tölu­vert um nýjunga. Hann var að færa menn til og gerði liðið að sínu strax í fyrsta leik.“


Tengdar fréttir

„Þetta er allt svona hálfóraunverulegt núna“

Davíð Örn Atlason skoraði fyrra mark Víkinga í kvöld í frábærum 2-1 sigri á gríska félaginu Panathinaikos í Sambandsdeild Evrópu. Leikurinn fór fram í Helsinki í Finnlandi en var heimaaleikur Víkinga.

„Við þurfum heldur betur að rífa okkur í gang“

Sverrir Ingi Ingason stóð vaktina í vörn Panathinaikos í 2-1 tapi gegn Víkingi í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í umspili Sambansdeildarinnar. Sverrir segir liðið þurfa að gera betur á öllum sviðum leiksins ef það ætlar ekki að detta úr leik í næstu viku.

Uppgjörið: Víkingur - Panathinaikos 2-1 | Ótrúlegar senur á köldu Evrópukvöldi í Helsinki

Víkingur vann gríðarsterkan 2-1 sigur gegn Panathinaikos í fyrri umspilsleik liðanna. Davíð Örn skoraði sitt fyrsta Evrópumark og varamaðurinn Matthías Vilhjálmsson bætti svo við fyrir Víkinga. Gestirnir minnkuðu muninn af vítapunktinum undir blálokin. Seinni leikur liðanna fer fram á heimavelli Panathinaikos í Grikklandi eftir viku, sigurvegari einvígisins heldur áfram í sextán liða úrslit Sambandsdeildarinnar.

Sölvi sáttur en svekktur með vítadóminn: „Hefði verið betra en eins marks forskot“

Sölvi Geir Ottesen stýrði Víkingum til 2-1 sigurs gegn Panathinaikos í sínum fyrsta alvöru leik sem aðalþjálfari liðsins. Hann var ánægður með, nánast, fullkomna byrjun í starfi en ósáttur við vítaspyrnudóminn. Upplegg hans skilaði sér inn á völlinn, leikmenn sýndu ákefð á öllum sviðum leiksins og Sölvi er bjartsýnn á góð úrslit í seinni leiknum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×