Skoðun

Flug­nám - Annar hluti: Menntasjóður náms­manna og ECTS einingar

Matthías Arngrímsson skrifar

Í áratugi hefur flugnám á Íslandi hvílt á herðum áhugasamra einstaklinga og án aðstoðar frá yfirvöldum að mestu leyti. Það hefur oft borið á því að yfirvöld setji frekar stein í götu flugnámsins með hækkandi gjöldum, skattlagningu, íþyngjandi reglugerðum og takmörkunum alls konar á flugvöllum frekar en að ýta undir það og búa flugnemum betra umhverfi til að læra flug í sínu heimalandi. Skilning og þekkingu skortir oft á málaflokknum innan stjórnkerfisins og þeim embættum sem hafa flugið á sinni könnu og almannaflugið (General aviation) og flugnámið sett undir sama hatt og stór áætlunarflugfélög þegar kemur að rekstrarkostnaði og viðhaldi.

Það er í raun og veru alveg furðulegt að sjaldnast virðist leitað til þeirra sem til þekkja varðandi innleiðingu reglugerða og laga þegar haft er í huga að þjóðin býr á afskekktri eyju og að flugið er lífæð þjóðarinnar við umheiminn. Þetta er nefnilega alls ekki sjálfsagt mál, heldur þarf að búa almannafluginu sérstaklega betra umhverfi og styðja við það að öllu leyti þar til ástandið verður orðið ásættanlegt. Almannaflugið er stundum kallað "grasrótin" og eins og nafnið gefur til kynna er hún grunnstoð alls flugs á Íslandi.

„Grasrótin“

Allir flugmenn byrja á að læra flug í grasrótinni og fljúga svo sína fyrstu tíma þar til að öðlast reynslu. Flugkennsla á flugvél má byrja 16 ára þar sem fyrstu réttindi eru ekki veitt fyrr en 17 ára. Einkaflug, fisflug, svifflug(má byrja 13 ára), listflug, þyrluflug, mótorsvifflug, svifvængjaflug, mótordrekar, fallhlífastökk, svifdrekaflug, fjarstýrðar flugvélar, drónakappflug, heimasmíðaðar flugvélar og atvinnuflugmannsnám(má byrja 18 ára)...er allt hluti af grasrótinni.

Grasrót flugsins á Íslandi - Grunnstoð fyrir flugfélögin og þróun þeirra

Kostir Íslands fyrir hagkvæmt flugnám

Ísland er einstakt land til flugnáms. Stuttar vegalengdir í flugskólana fyrir nemendur til og frá flugvöllum Reykjavíkur og Akureyrar sem lækkar kostnað við námið, stutt flug frá velli í æfingasvæði og til snertilendinga og ægifagurt landslag hvert sem litið er. Nú er reyndar æfingasvæði flugkennslunar í Reykjavík og svifflugkennslu á Sandskeiði ógnað vegna fyrirhugaðra vindmylla á Mosfellsheiði.

Fyrsta sóló sumarsins hjá Svifflugfélagi Íslands þegar Alexander Tryggvi Hjartarson flaug sitt fyrsta sóló á svifflugu. Friðjón Bjarnason
Baldur Jónsson aldursforseti félagsins afhenti honum A-prófs merkið. Friðjón Bjarnason

Flugnám á flugvél krefst þeirra skilyrða að það sé framkvæmt við stjórnaða flugvelli með flugturni og flugumferðarstjórn enda er sá þáttur í fjarskiptum mikilvægur í þjálfun flugmanna auk þess að venjast því að þekkja og kunna vel á merkingar, ljósabúnað, umferðarreglur og flug með annarri flugumferð. Á flugvél má byrja 16 ára að læra flug. Fyrsta skrefið er Soloprófið svokallaða (Einflugsleyfi) og gerir flugnemum kleift að fljúga einir án þess að mega fljúga með farþega. Næsta skref er einkaflugmannsprófið sem veitir þeim réttindi 17 ára til að fljúga á einshreyfils flugvél með farþega án endurgjalds. Eftir það koma næturáritun(NIT), fjölhreyflaáritun(MEP), blindflugsáritun(IR), atvinnuflugmannsréttindin(CPL) og flugkennararéttindi(FI) fyrir þá sem stefna á þau.

Flugnám á Reykjavíkurflugvelli.Jón Björgvin Jónsson

Ef flugnemar fá ekki það umhverfi sem til þarf til að öðlast flugréttindi á hagkvæman hátt verður skortur á flugmönnum í landinu og íslensku flugfélögin fá þá ekki þá flugmenn sem þau þurfa á að halda. Það yrði alvarlegt mál og augljóst að á næstu árum muni vanta flugmenn um allan heim og ef við styðjum ekki Íslendinga til flugnáms á Íslandi missum við þá til erlendra flugskóla sem margir eru með samninga við erlend flugfélög um að sjá þeim fyrir nýjum flugmönnum.

Höfundur er flugkennari, skólastjóri flugskóla og starfandi flugstjóri.




Skoðun

Sjá meira


×