„Mjög spennandi leikir framundan hjá Val“ Ein efnilegasta knattspyrnukona landsins gekk til liðs við Íslandsmeistara Vals á dögunum frá sænska liðinu Kristianstad. Hún segir tímann úti hafa verið fínan og stefnir aftur á atvinnumennsku. Fótbolti 14. júlí 2023 10:30
Sjáðu N1-mótið á Akureyri: „Maður getur ekki alltaf unnið“ N1-mótið á Akureyri fór fram um síðustu helgi. Mótið hefur fyrir löngu skapað sér sess sem eitt stærsta sumarmótið á hverju ári og tóku um 2000 drengir þátt á mótinu í ár. Stefán Árni Pálsson mætti á mótið og fór yfir allt það helsta í nýjasta þætti Sumarmótanna á Stöð 2 Sport. Fótbolti 14. júlí 2023 10:01
Levy átti fund með framkvæmdastjóra Bayern vegna Kane Daniel Levy, eigandi Tottenham Hotspurs, hitti framkvæmdastjóra Bayern Munchen í gær til að ræða möguleg félagaskipti Harry Kane til þýska liðsins. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Levy hittir forráðamenn Bayern á fundi. Enski boltinn 14. júlí 2023 09:30
FIFA gefur miða á HM kvenna í fótbolta vegna slakrar miðasölu Heimsmeistaramót kvenna í fótbolta fer fram í tveimur löndum að þessu sinni eða Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Það er mikill munur á áhuga á mótinu eftir því hvort leikirnir fara fram í Ástralíu eða í Nýja-Sjálandi. Fótbolti 14. júlí 2023 09:01
„Ótrúlega mikill heiður að hafa fengið að spila hundrað leiki fyrir landið sitt“ „Ég er mjög spennt fyrir þessum leik og vonandi verður fullur völlur, frábær stemning og góður fótbolti,“ sagði Glódís Perla Viggósdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu fyrir leik liðsins gegn Finnlandi sem fram fer í kvöld. Fótbolti 14. júlí 2023 07:02
„Tekur því verkefni sem kemur og gerir það eins vel og maður getur“ Selma Sól Magnúsdóttir, leikmaður Rosenborg og íslenska landsliðsins, er spennt fyrir komandi verkefni með landsliðinu þar sem íslensku stelpurnar taka á móti Finnum annað kvöld og heimsækja svo Austurríki næstkomandi þriðjudag. Fótbolti 13. júlí 2023 23:31
Reynsluboltinn Young genginn í raðir Everton Hinn 38 ára gamli Ashley Young er genginn í raðir Everton á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Aston Villa rann út fyrr í sumar. Fótbolti 13. júlí 2023 23:00
Umfjöllun og viðtöl: HK - KR 1-1 | Þrumufleygur Atla tryggði HK-ingum stig HK og KR skiptu stigunum á milli sín er liðin mættust í 14. umferð Bestu-deildar karla í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 1-1 í leik þar sem Kristján Flóki Finnbogason kom gestunum í KR í forystu áður en Atli Arnarson jafnaði metin stuttu fyrir leikslok. Fótbolti 13. júlí 2023 22:03
Hallgrímur Jónasson: Þurfum að spila vel í Wales til að komast áfram KA er í ansi góðri stöðu í fyrstu umfer undankeppni Sambandsdeildar Evrópu eftir að hafa lagt Connah´s Quay Nomads af velli 2-0 í Úlfarsárdal fyrr í kvöld. Hallgrímur Mar Steingrímsson og Daníel Hafsteinsson sáu um markaskorun heimamanna og tryggðu KA gott veganesti til Wales í seinni leikinn sem er eftir viku. Þjálfari KA Hallgrímur Jónasson var að vonum ánægður með úrslitin en var um sig að það þurfti að klára verkefnið í næstu viku. Fótbolti 13. júlí 2023 20:34
Umfjöllun, viðtöl og myndir: KA - Connah's Quay Nomads 2-0 | Öruggur sigur í fyrsta Evrópuleiknum í tuttugu ár KA vann öruggan 2-0 sigur er liðið tók á móti Connah's Quay Nomads frá Wales í Úlfarsárdalnum í kvöld í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Þetta var fyrsti Evrópuleikur KA síðan árið 2003 og sá fimmti í sögunni. Fótbolti 13. júlí 2023 19:53
Umfjöllun: Riga - Víkingur 2-0 | Bikarmeistararnir með bakið upp við vegg Víkingar töpuðu í kvöld gegn Riga FC ytra, sannfærandi, lokatölur 2-0. Var leikurinn liður í undankeppni fyrir Sambandsdeild Evrópu. Heimamenn í Riga stjórnuðu ferðinni í fyrri hálfleik og náðu að skora eitt mark og skoruðu svo snemma í síðari hálfleik. Víkingar ógnuðu marki Riga FC lítið og miðað við þennan leik eiga Víkingar á brattann að sækja í síðari leik liðanna eftir viku. Fótbolti 13. júlí 2023 19:33
Pulisic sá tíundi sem fer frá Chelsea Bandaríski knattspyrnumaðurinn Christian Pulisic er genginn í raðir AC Milan frá Chelsea. Hann er tíundi leikmaðurinn sem yfirgefur félagið í sumar. Fótbolti 13. júlí 2023 19:31
Dagný og Glódís Perla búnar að fá málverkin sín Tvær landsliðskonur fengu afhent málverk eftir Tolla í landsliðsverkefninu sem stendur nú yfir hjá kvennalandsliðinu. Fótbolti 13. júlí 2023 15:01
Mótherjar Víkinga í kvöld keyptu leikmann á dögunum á 236 milljónir Bikarmeistarar Víkinga sækja lettneska liðið Riga heim í kvöld í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar. Fótbolti 13. júlí 2023 14:15
Æstir foreldrar með frammíköll fá bleika spjaldið Tæplega þrjú þúsund stelpur keppa á Símamótinu sem hefst í kvöld og fer fram um helgina. Áhersla verður lögð á framkomu foreldra á mótinu og verður þeim foreldrum sem sýna vanvirðingu á hliðarlínunni veitt áminning með svokölluðu bleiku spjaldi. Innlent 13. júlí 2023 12:12
Manchester City fékk 600 milljónir frá FIFA Manchester City var það félag sem fékk mest greitt frá FIFA vegna leikmanna sem tóku þátt á heimsmeistaramótinu í Katar á síðasta ári. Alls fékk City um 600 milljónir í sinn vasa. Fótbolti 13. júlí 2023 12:02
Sú fyrsta til að keppa með slæðu á heimsmeistaramótinu Marokkóska landsliðskonan Nouhalia Benzina verður fyrsti leikmaðurinn í sögunni til að spila með slæðu á heimsmeistaramóti kvenna sem hefst eftir viku. Fótbolti 13. júlí 2023 10:00
Sjö í lífstíðarfangelsi fyrir morð á ungum stuðningsmanni Sjö grískir karlmenn eyða restinni af lífi sínu í fangelsi eftir að þeir voru dæmdir sekir um morð á nítján ára gömlum fótboltaáhugamanni. Fótbolti 13. júlí 2023 09:10
Lærisveinar Heimis úr leik í Gullbikarnum Jamaíka er úr leik í Gullbikarnum í knattspyrnu eftir 3-0 tap gegn Mexíkó í undanúrslitum í nótt. Fótbolti 13. júlí 2023 07:30
KA leikur sinn fyrsta Evrópuleik í 20 ár: „Stór stund og mjög spennandi“ KA spilar í dag sinn fyrsta Evrópuleik í 20 ár. Liðið þarf að spila leikinn í Reykjavík en það dregur þó ekki úr stærð leiksins samkvæmt Hallgrími Jónassyni, þjálfara liðsins. Leikurinn hefst klukkan 18.00 og er sýndur beint á Stöð 2 Sport 5. Íslenski boltinn 13. júlí 2023 07:01
Fjórar efnilegar til að fylgjast með á HM Það styttist óðfluga í HM kvenna í knattspyrnu sem fram fer í Ástralíu og Nýja-Sjálandi. Mótið hefst þann 20. júlí og líkur sléttum mánuði síðar, 20. ágúst. Fótbolti 12. júlí 2023 23:30
Barcelona kaupir efnilegasta framherja Brasilíu síðan Ronaldo skaust fram á sjónarsviðið Spánarmeistarar Barcelona tilkynntu í dag kaup félagsins á brasilíska framherjanum Vitor Hugo Roque Ferreira. Hann kemur frá Athletico Paranaense í heimalandinu. Fótbolti 12. júlí 2023 23:00
„Frammistaðan gefur okkur byr undir báða vængi hvað framhaldið varðar“ Fylkir tapaði naumlega gegn Val á Hlíðarenda í Bestu deild karla í knattspyrnu, lokatölur 2-1 í kvöld. Fylkismenn voru heilt yfir betra liðið og sköpuðu sér mörk marktækifæri sem þeim tókst ekki að nýta. Íslenski boltinn 12. júlí 2023 22:31
Sjáðu þegar Björn Zoëga kom úr stúkunni og kippti Ólafi Kristófer aftur í lið Ólafur Kristófer Helgason varð fyrir því óláni að fara úr lið á fingri þegar Fylkir beið lægri hlut gegn Val að Hlíðarenda í Bestu deild karla í knattspyrnu í kvöld, lokatölur 2-1 Val í vil. Sem betur fyrir Ólaf Kristófer var Björn Zoëga, forstjóri Karólínska-sjúkrahússins í Svíþjóð, á staðnum. Íslenski boltinn 12. júlí 2023 22:00
Afturelding áfram taplaust | Leiknir kom til baka Fimm leikir fóru fram í Lengjudeild karla í knattspyrnu í kvöld. Topplið Aftureldingar vann 1-0 sigur á Þrótti Reykjavík. Þá kom Leiknir Reykjavík til baka gegn Ægi frá Þorlákshöfn. Íslenski boltinn 12. júlí 2023 21:40
Skotfóturinn verið í kælingu Damir Muminovic var hetja Breiðabliks í leik liðsins við Shamrock Rovers í Dyflinni í gær. Glæsimark hans eykur á tilkall hans til að taka fleiri aukspyrnur. Íslenski boltinn 12. júlí 2023 20:30
Aston Villa fær landsliðsmann Spánar í vörnina Enska úrvalsdeildarfélagið hefur tilkynnt spænska miðvörðinn Pau Torres sem nýjasta leikmann liðsins. Sá kemur frá Villareal á Spáni. Enski boltinn 12. júlí 2023 19:46
Valgeir Lunddal og félagar í góðri stöðu fyrir seinni leikinn Sænsku meistararnir í BK Häcken eru í góðum málum eftir fyrri leik liðsins gegn The New Saints frá Wales í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Valgeir Lunddal Friðriksson byrjaði leikinn í hægri bakverðinum hjá Häcken og lagði sitt af mörkum í 3-1 sigri kvöldsins. Fótbolti 12. júlí 2023 19:01
Á leið í bann eftir brot á veðmála reglum Það stefnir allt í að Harry Toffolo, varnarmaður Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, feti í fótspor Ivan Toney og verði dæmdur í margra mánaða bann vegna brota á veðmála reglum enska knattspyrnusambandsins. Enski boltinn 12. júlí 2023 18:30
Man Utd lagði Leeds: Heiðruðu minningu McQueen fyrir leik Erkifjendurnir Manchester United og Leeds United mættust í fyrsta vináttuleik tímabilsins 2023/2024. Leiknum lauk með 2-0 sigri Man United sem leikur í Meistaradeild Evrópu á komandi leiktíð á meðan Leeds leikur í ensku B-deildinni eftir fall á síðustu leiktíð. Enski boltinn 12. júlí 2023 17:00