„Við stýrðum þessum leik“ Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, var afar niðurlútur eftir 2-1 tap á móti Fylki í Árbænum í dag. Þetta er fimmta tap Eyjamanna í Bestu deildinni og virðist lítið ganga hjá Vestmanneyingum um þessar mundir. Fótbolti 28. maí 2023 20:08
Börsungar unnu stórsigur | Atlético Madrid heldur í við nágranna sína Níu leikir í næstsíðustu umferð spænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu voru leiknir samtímis í dag. Barcelona vann öruggan 3-0 sigur gegn Mallorca og Atlético Madrid getur enn stolið öðru sætinu af nágrönnum sínum í Rea Madrid eftir 2-1 sigur gegn Real Sociedad. Fótbolti 28. maí 2023 19:00
Sveinn Aron á skotskónum í toppslagnum Sveinn Aron Guðjohnsen skoraði fyrsta mark Elfsborg er liðið vann mikilvægan 3-0 sigur gegn Malmö í toppslag sænsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Fótbolti 28. maí 2023 18:00
Manchester United gulltryggði þriðja sætið Manchester United endar í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir 2-1 sigur gegn Fulham í lokaumferð deildarinnar í dag. Fótbolti 28. maí 2023 17:44
Doucoure hélt Everton uppi | Leeds og Leicester féllu Vísir var með beina textalýsingu frá gangi mála í lokaumferðinni í ensku úrvalsdeildinni. Mesta spennan var í botnbaráttunni þar sem Everton, Leicester City og Leeds United kepptust um að forðast fallið. Fótbolti 28. maí 2023 17:31
Sjáðu markið: Valgeir með gullfallegt mark gegn Helsingborg Valgeir Valgeirsson skoraði eina mark Örebro í 1-1 jafntefli liðsins við Helsingborg í næstefstu deild Svíþjóðar í dag og í sænsku úrvalsdeildinni vann Kalmar Íslendingaslaginn gegn Norrköping. Fótbolti 28. maí 2023 14:59
Glódís á skotskónum er Bayern tryggði sér titilinn Glódís Perla Viggósdóttir skoraði eitt marka Bayern Munchen er liðið vann 11-1 sigur á Potsdam í efstu deild Þýskalands í dag og tryggði sér um leið þýska meistaratitilinn í knattspyrnu. Fótbolti 28. maí 2023 13:49
Markvörður PSG liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi á Spáni Sergio Rico, markvörður franska úrvalsdeildarfélagsins Paris Saint-Germain, liggur þungt haldinn á sjúkrahúsi í Sevilla á Spáni eftir að hafa slasast alvarlega eftir fall af hestbaki fyrr í dag. Fótbolti 28. maí 2023 13:18
Ólík örlög Íslendinganna í MLS-deildinni í nótt Þrír Íslendingar komu við sögu í bandarísku MLS-deildinni í knattspyrnu í nótt, tveir þeirra voru í sigurliði. Fótbolti 28. maí 2023 11:46
Sjáðu myndbandið: Grét yfir stuðningi fólksins á erfiðri stundu Borussia Dortmund horfði í gær á þýska meistaratitilinn í knattspyrnu renna sér úr greipum er liðið tapaði stigum gegn Mainz í lokaumferð deildarinnar á meðan að Bayern Munchen kláraði sitt verkefni gegn Köln og tryggði sér titilinn. Fótbolti 28. maí 2023 11:01
Al-Nassr og Ronaldo úr leik í titilbaráttunni Al-Nassr verður ekki sádi-arabískur meistari í knattspyrnu þetta tímabilið. Það varð ljóst eftir 1-1 jafntefli liðsins gegn Al-Ettifaq. Fótbolti 28. maí 2023 10:30
Þjálfari Dagnýjar hjá West Ham lætur gott heita Paul Konchesky hefur yfirgefið starf sitt sem þjálfari kvennaliðs West Ham United í knattspyrnu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá félaginu. Fótbolti 28. maí 2023 09:23
Draumkennd byrjun lagði grunninn að góðum sigri Inter Milan Inter Milan vann í kvöld mikilvægan 3-2 sigur á Atalanta er liðin mættust í ítölsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 27. maí 2023 21:31
PSG franskur meistari annað tímabilið í röð Paris Saint-Germain tryggði sér í kvöld Frakklandsmeistaratitilinn í knattspyrnu með 1-1 jafntefli gegn Strasbourg. Fótbolti 27. maí 2023 20:47
Karaktersigur Real Madrid gegn Sevilla Leikmenn Real Madrid sýndu í kvöld mikinn karakter er liðið vann endurkomusigur á Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni. Lokatölur á Ramón Sánchez Pizjuán, 2-1 sigur Real Madrid. Fótbolti 27. maí 2023 19:30
Fiorentina með magnaða endurkomu gegn lærisveinum Mourinho Fiorentina vann í dag magnaðan endurkomusigur á Roma er liðin mættust í ítölsku úrvalsdeildinni. Lokatölur á Stadio Artemio Franchi leikvanginum 2-1 sigur Fiorentina. Fótbolti 27. maí 2023 18:24
Aron lagði upp sigurmark Sirius Aron Bjarnason, leikmaður sænska úrvalsdeildarliðsins Sirius, lagði upp sigurmark liðsins í leik gegn Brommapojkarna í dag. Fótbolti 27. maí 2023 17:45
Ingibjörg hafði betur gegn Selmu Sól í Íslendingaslag Valerenga hafði í dag betur gegn Rosenborg í Íslendinga- og toppslag norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Fótbolti 27. maí 2023 16:55
Goðsögnum sagt upp störfum hjá Bayern: Tryggðu sér titilinn í dag Bayern Munchen tryggði sér í dag Þýskalandsmeistaratitilinn í knattspyrnu eftir ótrúlega atburðarás í leikjum dagsins í Þýskalandi. Hins vegar var ekki langt um liðið frá titilfögnuðinum þegar að yfirlýsing barst frá Bæjaralandi. Fótbolti 27. maí 2023 16:53
Sara og stöllur enduðu tímabilið á stórsigri gegn toppliðinu Sara Bjrök Gunnarsdóttir og stöllur hennar í Juventus unnu afar sannfærandi 5-2 sigur er liðið tók á móti nýkrýndum Ítalíumeisturum Roma í lokaumferð ítölsku deildarinnar í dag. Fótbolti 27. maí 2023 16:20
Chelsea enskur meistari fjórða árið í röð Chelsea tryggði sér í dag Englandsmeistaratitilinn í knattspyrnu kvenna er liðið vann öruggan 3-0 útisigur gegn þegar föllnu liði Reading. Fótbolti 27. maí 2023 15:47
Bayern München hrifsaði titilinn úr höndum Dortmund Bayern München er þýskur meistari í knattspyrnu ellefta árið í röð eftir dramatískan 2-1 útisigur gegn Köln í lokaumferð deildarinnar í dag. Dortmund þurfti sigur gegn Mainz til að halda toppsætinu og tryggja sér titilinn, en liðið þurfti að sætta sig við 2-2 jafntefli og misstu þar með titilinn frá sér. Fótbolti 27. maí 2023 15:34
Rice vilji fara til Arsenal þrátt fyrir áhuga frá öðrum stórliðum Svo virðist sem Declan Rice, miðjumaður West Ham, vilji ganga í raðir Arsenal í sumar þrátt fyrir áhuga frá öðrum liðum á borð við Manchester United, Chelsea og Bayern München. Fótbolti 27. maí 2023 13:31
Búist við að Real Madrid kynni Bellingham til leiks í næstu viku Búast má við því að enska ungstirnið Jude Bellingham verði kynntur til leiks sem nýr leikmaður spænska stórveldisins Real Madrid í næstu viku. Fótbolti 27. maí 2023 12:46
Hefur engar áhyggjur af framtíð Salah hjá Liverpool Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segist ekki hafa neinar áhyggjur af framtíð Mohamed Salah hjá félaginu. Fótbolti 27. maí 2023 12:01
Haaland valinn besti leikmaður tímabilsins á Englandi Norska markamaskínan Erling Braut Haaland hefur verið valinn besti leikmaður tímabilsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Fótbolti 27. maí 2023 10:45
Refsing Valencia fyrir kynþáttaníð í garð Vinícius milduð Eftir áfrýjun hefur refsing spænska úrvalsdeildarfélagsins Valencia fyrir kynþáttaníði í garð Vinícius Júnior verið milduð. Fótbolti 27. maí 2023 10:01
Segir það ekki skipta máli hvort Evrópukvöldin séu á fimmtudögum eða öðrum dögum Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, reyndi að gera gott úr því að lið hans hafi misst af sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Hann segir það ekki skipta máli hvort Evrópuleikir séu spilaðir á þriðjudögum og miðvikudögum eða fimmtudögum. Fótbolti 27. maí 2023 08:00
Verðlaunaður með nýjum samning eftir tvo leiki á fjórum árum Scott Carson hefur skrifað undir eins árs framlengingu á samningi sínum við Englandsmeistara Manchester City. Fótbolti 26. maí 2023 23:15
Aron Elís hafði betur í Íslendingaslag Aron Elís Þrándarson og félagar hans í OB unnu góðan 2-1 sigur er liðið tók á móti Aroni Sigurðarsyni og félögum hans í Horsens í Íslendingaslag í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 26. maí 2023 22:01
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn