Eftirsjá Lionels Messi bar árangur Tveggja vikna bann Lionel Messi frá æfingum og leikjum Paris Saint-Germain styttist heldur betur í annan endann. Fótbolti 9. maí 2023 19:00
Pep segir að það yrðu risastór mistök að ætla að leita hefnda á móti Real Manchester City hefur aldrei unnið Meistaradeildina en liðið hefur sjaldan átt betri möguleika en á þessari leiktíð. Fótbolti 9. maí 2023 17:01
Tryggvi fluttur til kæró í Eyjum og lýsir boltanum Tryggvi Guðmundsson, markahæsti knattspyrnumaður á Íslandi frá upphafi, er óhræddur við að taka takast á við ný verkefni. Hann hefur nú tekið að sér að fjalla um leiki ÍBV í sumar fyrir knattspyrnuvefinn fotbolti.net. Fótbolti 9. maí 2023 15:25
Messi á leið til Sádí-Arabíu þótt konan vilji ekki fara Félagaskipti Lionels Messi til Al-Hilal í Sádi-Arabíu frá Frakklandsmeisturum Paris Saint-Germain eru frágengin. Þetta herma heimildir AFP fréttastofunnar. Fótbolti 9. maí 2023 12:30
„Það stoppaði bíll þarna og þurfti að bíða á meðan 80 naktir menn hlupu“ Ingimar Helgi Finnsson eða litla flugvélin eins og hann er oft þekktur mætti til Sverris Mar í hlaðvarpið „Ástríðan: hetjur neðri deildanna“ á dögunum og ræddi þar sinn feril í neðri deildum Íslands í fótbolta. Eins og gengur og gerist þá eru til ansi margar góðar sögur af liðum í neðri deildum og Ingimar fór yfir eina þeirra þar sem lið Árborgar á það til að fara í nektarhlaup. Íslenski boltinn 9. maí 2023 10:00
Ítalskur níðsöngur á Hlíðarenda Það er alþekkt að stuðningsfólk íþróttaliða syngi söngva til að styðja lið sitt og jafnvel til að ögra andstæðingnum. Það er þekkt að sama laglínan fari landanna á milli en það er þó sjaldan sem það er fréttnæmt, fyrr en nú. Körfubolti 9. maí 2023 09:02
„Held að íslenski fótboltinn sé ekki langt eftir á“ „Lífið utan fótboltans er mjög gott, er að koma mér fyrir og líður mjög vel þarna,“ sagði Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður norska knattspyrnuliðsins Rosenborg en hann er staddur hér á landi og ræddi við Stöð 2 og Vísi um veruna í Noregi. Fótbolti 9. maí 2023 07:01
Búinn að fá nóg af því að vera bendlaður við bölvun tengda Man City Yaya Touré, fyrrverandi miðjumaður Manchester City, er búinn að fá sig fullsaddan af því að fólk sé að bendla hann við umræðu um „bölvun“ sem fylgi enska knattspyrnuliðinu í Meistaradeild Evrópu. Fótbolti 8. maí 2023 23:31
Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 1-2 | Meistararnir mörðu nýliðana Íslandsmeistarar Breiðabliks þurftu að hafa fyrir hlutunum er liðið heimsótti nýliða Fylkis í Bestu-deild karla í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 2-1, Breiðablik í vil, og óhætt að tala um torsóttan sigur gestanna. Íslenski boltinn 8. maí 2023 22:57
„Djöfull er ég fúll“ Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, var að vonum svekktur eftir að ÍBV hafði haldið hreinu í 95 mínútur gegn Víking, heitasta liði landsins, en tapa samt. Íslenski boltinn 8. maí 2023 22:30
„Vorum mjög lélegir og ég get ekki glaðst yfir þessu“ Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var allt annað en sáttur við spilamennsku sinna manna þrátt fyrir 2-1 sigur liðsins gegn Fylki í kvöld. Fótbolti 8. maí 2023 22:29
Ágúst Gylfa: Þarf mikinn karakter til að snúa svona krísu við Þjálfari Stjörnunnar, Ágúst Gylfason, vildi ekki leggja mat á það strax eftir leik hvort hann væri óánægður með frammistöðu sinna manna í kvöld. Hann var hinsvegar svekktur með að hans menn hafi ekki fengið neitt út úr leiknum. Fram vann leikinn 2-1 og voru með yfirhöndina nánast allan leikinn. Fótbolti 8. maí 2023 21:41
Umfjöllun og viðtöl: Fram - Stjarnan 2-1 | Fram náði í sterkan og sannfærandi sigur Stjörnumenn sneru aftur í Garðabæinn stigalausir eftir að hafa lotið í gras fyrir Fram í sjöttu umferð Bestu deildar karla í dag. Fram átti sigurinn fyllilega skilið enda sköpuðu þeir meira og vörðust betur en Stjörnumenn gerðu þangað til í lok leiksins. Markaskorar Framara voru þeir Orri Sigurjónsson og Aron Jóhannsson Fótbolti 8. maí 2023 21:10
Dýrlingarnir sem gott sem fallnir eftir tap í Skírisskógi Nottingham Forest vann 4-3 sigur á botnliði Southampton í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Dýrlingarnir eru svo gott sem fallnir eftir tapið á meðan Forest lyfti sér upp úr fallsæti. Enski boltinn 8. maí 2023 21:06
Slæmt tap gæti hafa kostað Panathinaikos titilinn | Kristian Nökkvi allt í öllu Hörður Björgvin Magnússon og félagar í Panathinaikos töpuðu fyrir Olympiacos í grísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Tapið þýðir að Panathinaikos á litla möguleika á að vinna deildina þegar ein umferð er eftir. Kristian Nökkvi Hlynsson var magnaður í 4-2 sigri Jong Ajax í Hollandi. Fótbolti 8. maí 2023 20:30
Amanda skoraði og Hlín lagði upp í stórsigri | Guðrún á sigurbraut Það var nóg um að vera í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Íslendingarnir í deildinni létu að sér kveða. Fótbolti 8. maí 2023 19:20
FC Kaupmannahöfn tapaði og missti toppsætið Íslendingalið FC Kaupmannahöfn tapaði 3-2 fyrir FC Nordsjælland í eina leik dagsinsí dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Með sigrinum fór Nordsjælland upp á topp deildarinnar á kostnað FCK. Fótbolti 8. maí 2023 19:16
Sjáðu glæsimark Arons í dýrmætum sigri | Arnór og Sveinn Aron á skotskónum Það var nóg um að vera í sænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í dag. Þeir Aron Bjarnason, Arnór Sigurðsson og Sveinn Aron Guðjohnsen voru allir á skotskónum. Mark Arons var í glæsilegri kantinum. Fótbolti 8. maí 2023 19:01
Everton kláraði Brighton í fyrri hálfleik Everton vann magnaðan 5-1 útisigur á Brighton & Hove Albion í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Gestirnir frá Bítlaborginni eru í bullandi fallbaráttu á meðan Brighton lætur sig dreyma um að spila í Evrópu á næstu leiktíð. Enski boltinn 8. maí 2023 18:30
Aron Einar nældi í silfur í Katar Landsliðsmaðurinn Aron Einar Gunnarsson spilaði fyrri hálfleik í 2-0 sigri Al Arabi á Al Sadd í lokaumferð katörsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu. Fótbolti 8. maí 2023 18:16
Jóhann upp fyrir hundrað stig í tímamótaleik og Sunderland slapp inn í umspil Landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guðmundsson spilaði sinn 200. keppnisleik fyrir enska knattspyrnufélagið Burnley í dag þegar lokaumferð ensku B-deildarinnar var spiluð. Fótbolti 8. maí 2023 15:59
Vinicius undirbýr sig fyrir Man. City leikinn í sérstökum súrefnisklefa Vinícius Júnior og félagar í Real Madrid tryggðu sér spænska bikarmeistaratitilinn með sigri á Osasuna í úrslitaleik á laugardagskvöldið. Fótbolti 8. maí 2023 12:31
Rooney: Man. City mun ekki bara vinna Real Madrid, þeir munu rústa þeim Wayne Rooney telur að Evrópumeistarar Real Madrid verði ekki mikil fyrirstaða fyrir Manchester City í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en fyrri leikur liðanna fer fram á morgun. Fótbolti 8. maí 2023 10:00
Birkir Már: Alltaf gaman að vinna KR, hvað þá 5-0 Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörðurinn síungi, lagði upp þrjú marka Vals þegar liðið valtaði yfir KR, 5-0, í leik liðanna í Bestu deild karla í fótbolta á Origo-vellinum í kvöld. Fótbolti 7. maí 2023 22:50
Sex lið tryggðu sér sæti í 16-liða úrslitum Mjólkurbikarsins Sex leikir fóru fram í annarri umferð Mjólkurbikars kvenna í knattspyrnu í dag. Grótta, FHL, KR, Grindavík, Fram og Víkingur eru öll komin áfram í 16-liða úrslit eftir sigra í dag. Fótbolti 7. maí 2023 22:30
Nýbakaðir meistarar unnu og Verona náði í dýrmæt stig í fallbaráttunni Nýbakaðir Ítalíumeistarar Napoli í knattspyrnu unnu sigur á Fiorentina í Serie A í dag. Eftir leik voru leikmenn hylltir af stuðningsmönnum liðsins. Fótbolti 7. maí 2023 20:55
Ásgeir: Hugarfarið allt annað í seinni hálfleik Ásgeir Sigurgeirsson, leikmaður KA, var að vonum ánægður eftir sigur liðsins gegn HK í Bestu deild karla í dag en hann kom inná sem varamaður og skoraði bæði mörk gestanna. Fótbolti 7. maí 2023 19:48
Valgeir byrjaði í tapi meistaranna Valgeir Lunddal Friðriksson var í byrjunarliði Häcken sem tapaði 1-0 gegn Halmstad á útivelli í dag. Með tapinu er Häcken búið að missa Malmö FF sex stig fram úr sér í toppbaráttunni. Fótbolti 7. maí 2023 17:24
Birkir tryggði Viking stig Birkir Bjarnason tryggði Viking eitt stig í norsku úrvalsdeildinni þegar hann jafnaði metin einni mínútu fyrir leikslok gegn Strömgodset. Fleiri Íslendingar voru í eldlínunni í dag. Fótbolti 7. maí 2023 17:08
Dagný gat ekki komið í veg fyrir tap West Ham Íslenska atvinnu- og landsliðskonan í knattspyrnu, Dagný Brynjarsdóttir, var í byrjunarliði West Ham United og spilað allan leikinn er liðið laut í lægra haldi gegn Brighton í efstu deild Englands í dag. Fótbolti 7. maí 2023 17:01
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn