Sagðir hafa boðið yfir 100 milljónir í heimsmeistara Argentínska ungstirnið Enzo Fernández heillaði marga á leið Argentínu að heimsmeistaratitlinum í fótbolta í Katar. Félag hans, Benfica, mun berjast fyrir því að halda honum með kjafti og klóm. Enski boltinn 28. desember 2022 13:16
Goðsögn í Genoa snýr aftur og verður liðsfélagi Alberts Goðsögn í Genoa er snúin aftur til félagsins eftir að hafa tilkynnt að skórnir væru farnir upp í hillu í síðasta mánuði. Hann verður því liðsfélagi Alberts Guðmundssonar. Fótbolti 28. desember 2022 12:31
Jörundur Áki og Vanda um skýrslu Grétars Rafns: „Við treystum okkar félögum“ „Þessi vinna sem Grétar Rafn [Steinsson] lagði á sig skilur eftir sig samantekt á hans starfi. Þar fer hann yfir bæði starf okkar í KSÍ og aðeins inn í starf félaganna,“ segir Jörundur Áki Sveinsson, sviðsstjóri Knattspyrnusviðs KSÍ. Hann og Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, mættu í Bítið á Bylgjunni á morgun og ræddu skýrslu Grétars Rafns og málefni tengd KSÍ. Íslenski boltinn 28. desember 2022 11:45
Dæmdur svindlari sakar aðra um svindl Luciano Moggi, fyrrum framkvæmdastjóri Juventus, segir Roma hafa með hjálp knattspyrnuyfirvalda stolið ítalska meistaratitlinum af fyrrnefnda félaginu tímabilið 2000-2001. Fótbolti 28. desember 2022 10:30
„Hann er betri en Mbappé og Haaland“ Iván Zamorano, fyrrum framherji Inter Milan og Real Madrid, segir ungstirni Manchester City, Julián Álvarez, hafa upp á meira að bjóða en tveir bestu framherjar heims. Fótbolti 28. desember 2022 09:30
Þjálfarinn hvorki séð né heyrt frá Ramsey eftir HM Lucien Favre, þjálfari Nice í Frakklandi, hefur ekkert heyrt frá velska miðjumanninum Aaron Ramsey eftir að velska landsliðið féll úr keppni á heimsmeistaramótinu í Katar fyrir tæpum mánuði síðan. Fótbolti 28. desember 2022 09:00
Skalf af stressi þegar hann hitti Messi Alexis Mac Allister, nýkrýndur heimsmeistari og leikmaður Brighton Hove & Albion á Englandi, vissi ekki hvernig hann átti að haga sér þegar hann mætti fyrst á landsliðsæfingar með stjörnunni Lionel Messi. Fótbolti 28. desember 2022 08:00
Farsælir í faraldri, lánlaust landslið og verðlaunaóðir Valsmenn Íþróttaárið 2022 hófst í miðjum heimsfaraldri sem setti stórt strik í reikninginn hjá íslenska karlalandsliðinu í handbolta sem keppti á EM í upphafi árs. Þrátt fyrir það vann liðið einn sinn stærsta sigur í sögunni. Sport 28. desember 2022 07:01
Fjórði deildarsigurinn í röð hjá Jóhanni og félögum Jóhann Berg Guðmundsson og félagar hans í Burnley sitja enn á toppi ensku B-deildarinnar eftir öruggan 3-0 sigur gegn Birmingham í kvöld. Fótbolti 27. desember 2022 21:59
United kláraði nýliðana í fyrri hálfleik Manchester United vann góðan 3-0 sigur er liðið tók á móti nýliðum Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Enski boltinn 27. desember 2022 21:55
Alfons genginn til liðs við Twente Landsliðsbakvörðurinn Alfons Sampsted er genginn til liðs við hollenska úrvalsdeildarfélagið Twente. Alfons gerir þriggja og hálfs árs samning við félagið. Fótbolti 27. desember 2022 21:25
Starfsmenn KSÍ fá 200 þúsund króna launauppbót vegna EM álags Starfsmenn Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, fá 200 þúsund króna launauppbót vegna álags í kringum Evrópumót kvenna í knattspyrnu í sumar. Var þetta samþykkt á stjórnarfundi sambandsins þann 8. desember síðastliðinn. Fótbolti 27. desember 2022 21:14
Fyrsti deildarsigur Chelsea í rúma tvo mánuði Eftir að hafa ekki unnið deildarleik síðan þann 16. október síðastliðinn vann Chelsea loksins deildarleik er liðið tók á móti Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur 2-0 og Chelsea situr nú í áttunda sæti deildarinnar. Enski boltinn 27. desember 2022 19:26
Gaf Haaland leyfi til að vera meiddur fyrir leikinn á morgun Jesse Marsch, knattspyrnustjóri Leeds í ensku úrvalsdeildinni, gerir sér fulla grein fyrir því að sínir menn þurfi að vera á tánum til að stöðva norsku markamaskínuna Erling Haaland er liðið mætir Manchester City annað kvöld. Fótbolti 27. desember 2022 18:31
Hefur skorað á móti öllum liðum sem hann hefur mætt í deildinni Harry Kane, framherji Tottenham í ensku úrvalsdeildinni, skoraði fyrra mark liðsins er Tottenham gerði 2-2 jafntefli gegn Brentford í gær. Fótbolti 27. desember 2022 17:45
Jón Daði snéri aftur í leikmannahóp Bolton Jón Daði Böðvarsson og félagar hans í Bolton þurftu að sætta sig við markalaust jafntefli er liðið tók á móti Derby County í ensku C-deildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 27. desember 2022 16:55
Messi fær frí fram á nýtt ár Nýkrýndi heimsmeistarinn Lionel Messi mun ekki leika með félagi sínu Paris Saint-Germain í Frakklandi fyrr en á nýju ári. Christophe Galtier, stjóri liðsins, greindi frá í dag. Fótbolti 27. desember 2022 16:01
Real Madrid hefur auga á ungstirni Bayern München Spænska stórveldið Real Madrid er sagt fylgjast náið með samningsstöðu hins 22 ára bakvarðar Alphonso Davies hjá Bayern München. Fótbolti 27. desember 2022 15:30
Gakpo skrifar undir sex ára samning við Liverpool Hollenski framherjinn Cody Gakpo er á leið til Liverpool frá PSV Eindhoven þegar félagsskiptaglugginn opnar í janúar. Hann mun skrifa undir sex ára samning við félagið. Fótbolti 27. desember 2022 15:01
Hengdu upp borða til stuðnings Vialli sem berst við krabbamein Stuðningsmenn ítalska félagsins Sampdoria hafa hengt upp borða fyrir utan sjúkrahús í London þar sem fyrrum leikmaður félagsins, Gianluca Vialli, liggur inni og berst við krabbamein. Fótbolti 27. desember 2022 14:30
Segir stuðningsmönnum að láta sig dreyma um titilinn Eddie Howe, knattspyrnustjóri Newcastle á Englandi, hefur hvatt stuðningsmenn félagsins að dreyma stórt. Liðið situr óvænt í öðru sæti ensku deildarinnar. Enski boltinn 27. desember 2022 14:01
United og Arsenal í bestri stöðu til að fá Félix Manchester United og Arsenal leiða kapphlaupið um undirskrift Portúgalans João Félix sem er á förum frá Atlético Madrid. Chelsea sækist einnig eftir kappanum. Fótbolti 27. desember 2022 13:01
Metfjöldi sá hetjuna Albert Albert Guðmundsson var allt í öllu í 2-1 sigri liðs hans Genoa á Bari í toppslag í ítölsku B-deildinni í fótbolta í gær. Met var sett á leiknum. Fótbolti 27. desember 2022 12:01
Lewandowski í þriggja leikja bann eftir misheppnaða áfrýjun Barcelona Pólski framherjinn Robert Lewandowski mun ekki leika með Barcelona á Spáni næstu vikur. Félaginu tókst ekki að fá þriggja deildarleikja banni hann hnekkt. Fótbolti 27. desember 2022 10:31
Fjölskyldu fótboltahetju meinað um brottför frá Íran Fjölskyldu Ali Daei, mestu knattspyrnuhetju í sögu Íran, var meinað um að yfirgefa landið. Fyrrum framherjinn hefur talað gegn yfirvöldum í ríkinu. Fótbolti 27. desember 2022 10:00
Ræddi við van Dijk og fer í læknisskoðun í dag Fátt virðist geta komið í veg fyrir kaup Liverpool á hollensku HM-stjörnunni Cody Gakpo frá PSV Eindhoven. Hann mun gangast undir læknisskoðun í Liverpool-borg í dag. Enski boltinn 27. desember 2022 09:31
Ronaldo á leið í læknisskoðun í Sádi-Arabíu Portúgalinn Cristiano Ronaldo er á leið í læknisskoðun hjá sádíska félaginu Al-Nassr í aðdraganda skipta sinn til liðsins. Sádar gera sér vonir um að ganga frá samningum fyrir áramót. Fótbolti 27. desember 2022 08:31
„Pabbi hótaði að lemja mig ef ég færi ekki“ Fyrrum fótboltamaðurinn Gennaro Gattuso segir föður sinn hafa haft mikið að segja um skipti hans til Glasgow Rangers í Skotlandi snemma á ferli hans. Gattuso átti stutt stopp á Skotlandi áður en hann varð margfaldur Evrópumeistari með AC Milan og heimsmeistari með Ítalíu. Fótbolti 27. desember 2022 08:01
Ánægður að sjá Wenger: „Vonandi kemur hann oftar“ Mikel Arteta, stjóri Arsenal, var að vonum ánægður eftir 3-1 sigur liðs hans á West Ham í fyrsta deildarleik liðanna eftir HM-pásu í gær. Fyrrum stjóri hans hjá félaginu var í stúkunni. Enski boltinn 27. desember 2022 07:32
Albert Guðmundsson skoraði sigurmark Genoa annan leikinn í röð Albert Guðmundsson skoraði í 1-2 sigri Genoa á Bari í Seriu B-deildinni. Þetta var annar leikurinn í röð sem Albert reynist hetja Genoa en hann skoraði sigurmarkið gegn Frosinone í síðasta leik. Sport 26. desember 2022 21:30