Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Shigeru Ishiba mun áfram gegna embætti forsætisráðherra Japans þrátt fyrir að flokkur hans, Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn, og stuðningsflokkar hafi misst meirihluta á þingi í þingkosningum sem fram fóru í lok október. Erlent 11. nóvember 2024 10:28
Sendiherrann vinsæli á útleið Ryotaro Suzuki, sendiherra Japans á Íslandi, hefur verið skipaður sendiherra Japans á Samóa og mun því yfirgefa landið á næstunni. Innlent 8. nóvember 2024 10:56
Japanska ríkisstjórnin missti meirihluta sinn Samsteypustjórn Shigeru Ishiba, forsætisráðherra Japans, missti meirihluta sinn í þingkosningum sem fóru fram um helgina. Úrslitin eru sögð skapa óvissu í japönskum stjórnmálum þrátt fyrir að ólíklegt sé talið að stjórnarskipti verði. Erlent 28. október 2024 08:50
Verðugir verðlaunahafar Í liðinni viku var tilkynnt að friðarverðlaun Nóbels fyrir árið 2024 færu til Nioh Hidankyo, samtaka eftirlifenda kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasakí. Samtök þessi voru stofnuð árið 1956 í tvíþættum tilgangi. Skoðun 13. október 2024 12:01
Eftirlifendur kjarnorkusprengjanna hlutu friðarverðlaun Nóbels Japönsku samtökin Nihon Hidankyo sem voru stofnuð af eftirlifendum kjarnorkuárásanna á Hiroshima og Nagasaki hljóta friðarverðlaun Nóbels í ár. Verðlaunin fá þau fyrir baráttu sína fyrir kjarnorkuvopnalausum heimi og fyrir að sýna með eigin vitnisburði hvers vegna aldrei megi beita kjarnavopnum aftur. Erlent 11. október 2024 09:05
Skilnaður handan við hornið hjá Kanye og Biöncu Rapparinn Kanye West og arkitektinn Bianca Censori eru sögð vera á barmi skilnaðar eftir tveggja ára hjónaband. Ekki hefur sést til hjónanna saman meðal almennings í tvær vikur. Lífið 7. október 2024 22:20
Watson skal áfram sæta gæsluvarðhaldi Dómstóll í Nuuk í Grænlandi hefur úrskurðað að kanadíski hvalveiðiandstæðingurinn Paul Watson skuli sæta gæsluvarðhaldi í þrjár vikur til viðbótar, eða til 23. október næstkomandi. Erlent 2. október 2024 13:25
Mun boða til kosninga um leið og hann tekur við Shigeru Ishiba, leiðtogi japanska stjórnarflokksins Frjálslynda lýðræðisflokksins, segir að hann muni boða til þingkosninga í landinu þann 27. október um leið og hann tekur formlega við embætti forsætisráðherra á morgun. Erlent 30. september 2024 07:40
Ishiba verður næsti forsætisráðherra Japans Frjálslyndi lýðræðisflokkurinn í Japan hefur valið Shigeru Ishiba, fyrrverandi varnarmálaráðherra, sem næsta formann flokksins. Hann verður því næsti forsætisráðherra landsins og mun hann taka við af Fumio Kishida sem tilkynnti í síðasta mánuði að hann hugðist ekki sækjast eftir endurkjöri og láta af embætti. Erlent 27. september 2024 07:52
Sýknaður eftir meira en 50 ár á dauðadeild Iwao Hakamada, sem dæmdur var til dauða í Japan árið 1968, hefur verið formlega sýknaður. Enginn í heiminum hefur setið lengur á dauðadeild en Hakamada. Erlent 26. september 2024 08:49
Skutu skotflaug í Kyrrhafið í fyrsta sinn í rúm fjörutíu ár Kínverjar framkvæmdu í morgun tilraun með langdræga skotflaug sem borið getur kjarnorkuvopn. Eldflaugin bar gervi-sprengiodd og var henni skotið í Kyrrahafi en þetta er í fyrsta sinn í nokkra áratugi sem Kínverjar gera tilraun sem þessa. Erlent 25. september 2024 14:01
Hlutu IG Nóbelinn fyrir rannsóknir á öndun gegnum endaþarminn Japanskir vísindamenn hafa hlotið IG Nóbelsverðlaunin fyrir þá uppgötvun sína að spendýr geta „andað“ með endaþarminum. Uppgötvunin hefur leitt til rannsókna á því hvort hægt sé að meðhöndla andnauð „neðan frá“. Erlent 13. september 2024 12:40
Segja Kínverja hafa ógnað fullveldi Japan Japönsk stjórnvöld segja kínverska herinn hafa brotið gegn fullveldi landsins og ógnað öryggi þegar kínversk herflugvél flaug inn í lofthelgi Japan í gær. Erlent 27. ágúst 2024 06:23
Týnd skæri ollu usla á flugvelli í Japan Þrjátíu og sex flugferðum var aflýst og um tvöhundruð frestað á flugvellinum í Hokkaido í Japan um helgina. Erlent 20. ágúst 2024 08:34
Forsætisráðherra Japan sækist ekki eftir endurkjöri Forsætisráðherra Japans Fumio Kishida ætlar ekki að sækjast eftir endurkjöri sem formaður Frjálslynd demókrataflokksins en kosið verður í embættið á næsta landsfundi í september. Það er því ljóst að hann mun einnig hætta sem forsætisráðherra Japans en Kishida, sem er 67 ára gamall, hefur gegnt embættinu frá árinu 2021. Erlent 14. ágúst 2024 08:12
Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Japönsk stjórnvöld hafa gefið út viðvörun vegna mögulegs ofurjarðskjálfta í kjölfar stórs skjálfta sem reið yfir á þriðjudag sem mældist 7,1 að stærð. Erlent 9. ágúst 2024 16:41
Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Nikkei-hlutabréfavísitalan japanska skaust upp um rúm tíu stig í dag, aðeins sólarhring eftir mesta hrun hennar í hátt í fjóra áratugi sem skók vestræna hlutabréfamarkaði. Aðrir asískir markaðir tóku einnig við sér eftir minni lækkun. Viðskipti erlent 6. ágúst 2024 08:30
Hvalavinurinn stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist Aðgerðarsinninn og hvalavinurinn Paul Watson stendur frammi fyrir allt að fimmtán ára fangelsisvist í Japan. Hann var handtekinn við höfnina í Nuuk fyrr í mánuðinum en hann hefur vakið athygli hér á landi fyrir að hafa meðal annars sökkt tveimur hvalveiðibátum Hvals hf. á níunda áratugnum. Erlent 31. júlí 2024 14:07
Send heim af Ólympíuleikunum fyrir að reykja Fyrirliði japanska fimleikalandsliðsins keppir væntanlega ekki á Ólympíuleikunum í París eins og til stóð. Hún var nefnilega gripinn við að reykja. Sport 19. júlí 2024 08:41
Vilja fá að verða ófrjóar og höfða mál á hendur stjórnvöldum Fimm konur hafa höfðað mál á hendur stjórnvöldum í Japan vegna löggjafar sem gerir konum afar erfitt fyrir sem vilja gangast undir ófrjósemisaðgerð. Erlent 21. júní 2024 10:46
Guðlaug Edda fékk brons og Ólympíudraumurinn er innan seilingar Þríþrautarkappinn Guðlaug Edda Hannesdóttir fór langleiðina með að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í sumar þegar hún lenti í þriðja sæti í Asia Triathlon Cup í Osaka í Japan. Sport 26. maí 2024 01:18
Suzuki mun flytja inn í höll Björgólfs Björgólfur Guðmundsson athafnamaður seldi í síðasta mánuði einbýlishús sitt að Vesturbrún 22 í Laugardalnum til sendiráðs Japans. Kaupverðið er 540 milljónir króna og var fasteignin afhent í síðasta mánuði. Lífið 24. apríl 2024 10:02
Síðasti hvalkjötsfarmur skilaði 2,8 milljarða gjaldeyristekjum Síðasta farmi af hvalkjöti, sem fluttur var út frá Íslandi, var landað í Japan í febrúar í fyrra. Síðan hefur ekkert hvalkjöt verið flutt úr landi, ef marka má útflutningsskýrslur Hagstofu Íslands. Það þýðir að hvalaafurðir eftir síðustu vertíð eru enn á Íslandi. Viðskipti innlent 10. apríl 2024 11:45
Segir alla munu heita Sato árið 2531 að óbreyttu Prófessorinn Hiroshi Yoshida hefur komist að þeirri niðurstöðu að ef stjórnvöld í Japan ráðast ekki í breytingar á lögum og heimili einstaklingum að halda eftirnöfnum sínum þegar þeir ganga í hjónaband, muni allir í Japan heita Sato árið 2531. Erlent 2. apríl 2024 07:02
Blendnar tilfinningar á frumsýningu Oppenheimer í Japan Stórmyndin Oppenheimer var frumsýnd í Japan í dag, rúmum átta mánuðum eftir að hún var heimsfrumsýnd. Skiptar skoðanir eru meðal japanskra bíógesta á myndinni. Bíó og sjónvarp 29. mars 2024 10:58
Japanskt fyrirtæki skiptir ungbarnableyjum út fyrir fullorðinsbleyjur Oji Holdings, fyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu ýmissa pappírsvara, hefur tilkynnt að það hyggist hætta að framleiða bleyjur fyrir ungabörn og auka þess í stað framleiðslu sína á bleyjum fyrir fullorðna. Erlent 27. mars 2024 07:14
„Mannkynið mun ekki lifa framhald af Oppenheimer“ Bandaríkin og Japan standa saman að ályktun sem hefur verið lögð fram í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um bann gegn kjarnorkuvopnum í geimnum. Erlent 19. mars 2024 08:54
Bríet umkringd stórstjörnum í Japan Tónlistarkonan Bríet Isis Elfar var umkringd heimsfrægum stórstjörnum á veitingastað á The Tokyo Edition Ginze hótelinu í Japan í gærkvöldi. Bríet birti myndir af þessu glæsilega kvöldi á samfélagsmiðlinum Instagram. Lífið 15. mars 2024 15:19
Ný geimflaug sprakk í loft upp Fyrsta geimskot japanska fyrirtækisins Space One sprakk í loft upp við geimskot í nótt. Forsvarsmenn fyrirtækisins vonuðust til þess að Space One yrði fyrsta einkafyrirtæki í Japan til að koma gervihnetti á braut um jörðu en það misheppnaðist. Erlent 13. mars 2024 10:09
Íbúar í Fukuyama beðnir um að halda sig frá eitruðum ketti Íbúar í Fukuyama í vesturhluta Japan hafa verið varaðir við því að nálgast hvorki né snerta kött sem virðist hafa dottið í tank fullan af sexgildu krómi, sem er mjög eitrað og meðal annars krabbameinsvaldandi. Erlent 13. mars 2024 08:04
„Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent