Flug
1 2 3 4 5 6 7 8 … 172 ›
Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Landsréttur hefur sýknað sjö kröfuhafa Wow air af kröfum þrotabús félagsins um riftun á mörg hundruð milljóna króna greiðslum sem félagið greiddi þeim skömmu fyrir gjaldþrot þess. Skúli Mogensen og stjórnarmenn í félaginu voru einnig sýknaðir af skaðabótakröfu upp á rúma tvo milljarða króna. Viðskipti innlent 26.3.2026 15:48
Leyniklefi áhafna uppi í rjáfri Atlanta-flugvéla Risaþotum af gerðinni Boeing 777 í flota Air Atlanta fjölgar upp í sex á árinu en þær eru núna stærstu flugvélar heims í fjöldaframleiðslu. Svo stórar eru þær að um borð er að finna leyniklefa uppi í rjáfri fyrir áhafnir sem farþegar vita almennt ekki um. Innlent 26.3.2026 07:47
Aflýsa og seinka flugferðum Morgunflugi Icelandair frá Keflavíkurflugvelli á morgun hefur ýmist verið aflýst eða því seinkað vegna veðurs. Komuflugi Icelandair frá Norður-Ameríku hefur verið seinkað frá morgni til hádegis og búist er við að veðrið muni hafa áhrif á innanlandsflug fyrri partinn. Innlent 25.3.2026 17:41
Bandarískt flugfélag í vetrarflug í fyrsta skipti eftir faraldur Beint áætlanaflug á milli Keflavíkur og Chicago á vegum United Airlines heldur áfram í vetur. Þetta er í fyrsta skipti sem bandarískt flugfélag hefur áætlanaflug á vetraráætlun frá því fyrir heimsfaraldur kórónuveirunnar. Viðskipti innlent 25.3.2026 09:54
Isavia ANS hefur hamskipti og verður Avians Flugleiðsöguþjónusta Isavia yfir Norður-Atlantshafi fékk nýja nafnið Avians í dag. Dótturfélagið hefur fram að þessu gengið undir heitinu Isavia ANS en breytingin er sögð eiga að aðgreina ólíka starfsemi samstæðunnar skýrar og ganga betur í erlenda viðskiptavini. Viðskipti innlent 24.3.2026 09:42
„Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Afísing flugvéla er einhver þýðingarmesti öryggisþáttur flugsins í vetrarveðrum eins og núna ganga yfir landið. Afísingarsérfræðingur á Keflavíkurflugvelli segir þá sem annast verkið vel meðvitaða um hvað sé í húfi. Innlent 23.3.2026 22:14
Öllu innanlandsflugi aflýst Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst vegna veðurs. Innlent 23.3.2026 15:48
LaGuardia lokað vegna áreksturs við slökkviliðsbíl Öll umferð um LaGuardia flugvöll í New York hefur verið stöðvuð um óákveðinn tíma eftir að farþegaþota frá Air Canada Express lenti í árekstri við ökutæki á flugvellinum. Erlent 23.3.2026 07:32
Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Íslendingar skipa stóran sess í flugsögu Grænlands. Íslenskir flugmenn gátu sér þar snemma gott orð. Talað var um að þeir treystu sér oftar til að fljúga í krefjandi landslagi og misjöfnu veðri en aðrir flugmenn. Innlent 22.3.2026 07:27
Ólíklegt að eignir dugi fyrir launakröfum Skiptastjóri þrotabús Play segir ólíklegt að eignir þrotabúsins dugi til að mæta öllum forgangskröfum á hendur því. Þá er ágreiningur milli starfsfólks og þrotabúsins um hvort starfsfólk eigi rétt á uppsagnarfresti upp á þrjá eða fjóra mánuði. Viðskipti innlent 21.3.2026 23:55
Öllu flugi dagsins aflýst Icelandair hefur aflýst öllu flugi sem var á áætlun dagsins, bæði innanlandsflugi og millilandaflugi. Öllu flugi annarra flugfélaga til og frá Keflavíkurflugvelli hefur sömuleiðis verið aflýst. Innlent 20.3.2026 11:52
Gular viðvaranir um allt vestanvert landið til morguns Gular veðurviðvaranir eru nú í gildi um allt vestanvert landið og einu svæðin sem eru undanskilin eru Norðurland eystra, Austurland og Austfirðir. Á höfuðborgarsvæðinu verður viðvörun í gangi í allan dag og fram á morgundaginn en spáð er suðvestan hvassviðri og dimmum éljum. Annars staðar er einnig spáð hvassviðri eða jafnvel stormi og er varasamt að vera á ferðinni. Veður 20.3.2026 07:21
Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Vegna veðurs hefur Icelandair aflýst öllum brottförum sínum fyrir hádegi á morgun og öllum komuflugum nema tveimur. Fleiri flugfélög hafa þurft að aflýsa flugferðum en gul viðvörun tekur gildi víða um land. Innlent 19.3.2026 21:01
Aflýsa tólf flugferðum frá Ameríku Á annað þúsund farþega eru strandaglópar í Ameríku þar sem Icelandair hefur aflýst tólf flugferðum í fyrramálið vegna veðurs. Gular viðvaranir taka gildi í kvöld. Innlent 19.3.2026 18:27
Ná sátt og geta haldið kjaraviðræðum áfram Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, hafa komist að samkomulagi um starfslokarétt flugmanna. Fyrst var greint frá á vef FF7 en Lára Sif Christiansen, framkvæmdastjóri FÍA, staðfestir það í samtali við fréttastofu. Viðskipti innlent 19.3.2026 13:31
Flugið er líflína milli byggða Grænlands Grænlendingar búa við eitt flóknasta og dýrasta samgöngukerfi allra þjóða. Þeir treysta mest á flugsamgöngur til að komast á milli byggða þar sem landið er án vegakerfis. Innlent 19.3.2026 07:07
Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) undirbúa aðra flugferð tilraunaflugvélarinnar X-59. Vonast er til þess að flugvél þessi eigi að geta rofið hljóðmúrinn án þess að því fylgi hinar hefðbundnu drunur og læti. Erlent 18.3.2026 14:03
Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Forsvarsmenn Vegagerðarinnar hafa hafnað tilboði Icelandair um rekstur flugleiðarinnar milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Samningaviðræður um framhaldið eru nú yfirstandandi milli Vegagerðarinnar og Icelandair. Innlent 17.3.2026 13:55
Kjaraviðræður í dvala og þarf að „hreinsa borðið“ áður en gerður er nýr samningur „Snúin mál“ sem lúta að réttindum um starfslok flugmanna Icelandair „þarf að leiða í jörð“ áður en hægt er að halda áfram eiginlegum viðræðum um nýjan kjarasamning, að sögn formanns Félags íslenskra atvinnuflugmanna, en þær hafa legið í dvala um nokkurt skeið. Náist þar saman geti „hlutirnir gerst hratt“ en síðasti formlegi samningafundur fór fram undir lok síðasta árs. Innherji 16.3.2026 11:58
Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Íslensk flugfélög hófu snemma flug til Grænlands. Fyrir 1950 voru bæði Flugfélag Íslands og Loftleiðir farin að sinna þar ýmsum verkefnum. Flugfélag Íslands, síðar Flugleiðir og nú Icelandair, hefur lengst af verið umvifamest íslenskra félaga í Grænlandsflugi. Innlent 15.3.2026 07:57
Allir sex látnir eftir að herflugvél brotlenti í Írak Allir sex í áhöfn bandarískrar eldsneytisflutningaflugvélar sem brotlenti í Írak í gær eru látnir. Ástæður slyssins eru enn til rannsóknar en svo virðist sem tvær flugvélar af gerðinni KC-135 hafi skollið saman við dælingu eldsneytis í háloftunum yfir Írak í gær. Önnur hafi þá hrapað til jarðar en flugmönnum hinnar tókst að lenda í Ísrael. Erlent 13.3.2026 10:44
Samtal hafið um Ísafjarðarflug Viðræður eru hafnar milli Icelandair og Vegagerðarinnar um framhald áætlunarflugs til Ísafjarðar. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir of snemmt að segja til um hvernig þeim vindur fram. Innlent 12.3.2026 14:07
„Öryggi okkar fólks það eina sem skiptir máli“ Hartnær sexhundruð manns, þar af um eitthundrað og fimmtíu Íslendingar, eru að störfum fyrir Atlanta-flugfélagið á áhrifasvæði stríðsátakanna í Miðausturlöndum. Forstjóri Air Atlanta segir félagið fara að öllu með gát og allt sé gert til að tryggja öryggi starfsfólksins. Innlent 11.3.2026 21:12
Icelandair meira virði í rekstri en brytjað niður Forstjóri Icelandair segir virði félagsins fyrst og fremst felast í rekstri þess og leiðakerfi. Það sé mun verðmætara að reka félagið áfram heldur en að brytja það niður. Innlent 10.3.2026 21:12
Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður „Það er alltaf góður díll í dag að kaupa félagið og leggja það niður. Það er auðvitað það sem gerir það hættulegt þjóðaröryggislega séð að þetta gæti verið freistnivandi fyrir einhverja aðila að skoða það einfaldlega að leysa félagið upp,“ segir Jón Karl Ólafsson fyrrverandi forstjóri Icelandair. Viðskipti innlent 9.3.2026 21:45
Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Smíði bílastæðahúss við Leifsstöð er ekki forgangsmál hjá Isavia á næstum árum. Yfirmaður flugvallarþróunar og innviða Keflavíkurflugvallar hafnar því að Isavia okri á bílastæðum. Innlent 9.3.2026 20:19
Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Vél Icelandair flutti leikmenn karlaliðs Liverpool í fótbolta til Istanbúl í dag. Liðið mætir Galatasaray í Tyrklandi í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu annað kvöld. Fótbolti 9.3.2026 18:01
„Við hefðum náð meiri árangri með því að vera innan Evrópusambandsins“ Íslensk stjórnvöld hefðu náð betri árangri í samningaviðræðum um undanþágur frá losunarheimildum ETS-kerfisins hefði Ísland verið hluti af Evrópusambandinu að mati utanríkisráðherra. Hún ítrekaði orð sín um að hún myndi ekki skrifa undir slæman samning. Innlent 8.3.2026 12:01
Algengasta tegundin sem skráð hefur verið á Íslandi Boeing 747-þotan er kölluð drottning himnanna enda var hún stærsta farþegaþota heims um áratugaskeið. Hin goðsagnakennda júmbóþota skipar einnig stærri sess í íslenskri flugsögu en flesta grunar. Innlent 5.3.2026 22:42
Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Icelandair og Coca-Cola á Íslandi hafa undirritað samstarfssamning sem felur í sér að gosdrykkjarvörumerki Coca-Cola á Íslandi verða aftur seld um borð í vélum félagsins. Neytendur 3.3.2026 07:17