Skagafjörður „
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 13 ›
„Þvílíku tækifæri var engan veginn hægt að hafna“ „Í lok síðasta árs var haft samband við okkur og okkur boðið að ferðast um Norðurlandið að spila tónlist Geirmundar Valtýssonar. Þvílíku tækifæri var engan veginn hægt að hafna og þetta hefur reynst vera hið mesta ævintýri,“ segir Gunnar Hinrik Hafsteinsson meðlimur hljómsveitarinnar Undirleikararnir Tónlist 9.10.2021 14:11
Útköll björgunarsveita í gærkvöldi bundin við Siglufjörð og Skagafjörð Björgunarsveitir voru kallaðar út á Siglufirði og í Skagafirði vegna ýmissa fokverkefna í gærkvöldi. Óveður var víða á landinu í gærkvöldi, en Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir að björgunarsveitir hafi ekki verið kallaðar út annars staðar á landinu. Innlent 8.10.2021 08:29
Búið að aflétta lokunum innanbæjar á Sauðárkróki Búið er að aflétta lokunum innanbæjar á Sauðárkróki sem voru settar á vegna gruns um krapastíflu í Sauðá. Skoðun sérfræðinga eftir að veður gekk niður leiddi í ljós að rennsli er orðið eðlilegt að nýju. Innlent 28.9.2021 20:57
Lögreglustjórinn á Norðurlandi vestra: Vegfarendur hefðu mátt hlýta viðvörunum Talsverður erill hefur verið hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra í veðurofsanum í dag. Birgir Jónasson lögreglustjóri sagði í samtali við fréttastofu að nokkuð hafi mætt á hans fólki og björgunarsveitarfólki við að aðstoða vegfarendur vegna veðurs og ófærðar. Margir hefðu mátt taka til sín viðvaranir sem gefnar voru út í gær. Innlent 28.9.2021 18:04
Sauðá á Króknum svo til hætt að renna Lögreglan á Norðurlandi vestra hefur sent frá sér áríðandi tilkynningu þar sem fram kemur að boð hafi borist þess efnis að Sauðá á Sauðárkróki sé hætt að renna að mestu leyti. Innlent 28.9.2021 15:36
Hentu upp hlaðborði í einum grænum fyrir farþega í rútuslysi Um sjötíu bandarískir ferðamenn sitja nú í vellystingum á Hótel Laugarbakka eftir að hafa tekið hressilega til matar síns á hlaðborði sem skellt var upp fyrir hópinn. Önnur af tveimur rútum hópsins fór út af veginum suður af Laugarbakka á bökkum Miðfjarðarár í hádeginu. Innlent 28.9.2021 15:19
Varð ekkert var við bílinn sem keyrði út af í símamyndbandi „Þetta var allt Glúmi að kenna. Bílstjórinn hefur séð hann og ekki trúað eigin augum,“ segir Guðmundur Franklín Jónsson, formaður Frjálslynda lýðræðisflokksin, um myndband sem hann tók á ferðalagi um landið vegna Alþingiskosninganna. Innlent 24.9.2021 18:50
Fjölskyldan sitji hjá meðan ævistarfið er skorið niður „Niðurskurður sauðfjárstofnsins á Syðra-Skörðugili er óhjákvæmileg niðurstaða. Við fjölskyldan stöndum hjá á meðan sýkt hjörðin verður keyrð á endastöð þar sem kveikt verður í 30 ára gjöfulu ræktunarstarfi.“ Innlent 24.9.2021 17:54
Guðni hættur með Stólana Guðni Þór Einarsson er hættur sem þjálfari kvennaliðs Tindastóls í fótbolta, eftir fyrsta tímabil liðsins í efstu deild í sögu félagsins. Fótbolti 15.9.2021 16:30
Munu þurfa að skera niður allt fé á Syðra-Skörðugili vegna riðu Allt fé á bænum Syðra-Skörðugili í Skagafirði verður skorið niður eftir að riða greindist á bænum. Ráðist verður í mikið skimunarátak fyrir riðu í Skagafirði í haust. Innlent 11.9.2021 14:24
Nýtt tilfelli riðu í Skagafirði Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Syðra-Skörðugili í Skagafirði. Um 1.500 fjár eru á bænum, fullorðið fé og lömb. Tæpt ár er síðan riða greindist á fimm bæjum í Skagafirði, sem þó tilheyra öðru varnarhólfi en bærinn þar sem riðan hefur komið upp nú. Innlent 10.9.2021 19:13
Hlaup hafið í Vestari-Jökulsá í Skagafirði Hlaup er hafið í Vestari-Jökulsá í Skagafirði en upptakakvíslar hennar koma undan norðanverðum Hofsjökli. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi vestra. Íbúi á Úlfsstöðum nærri Varmahlíð segist ekki muna eftir haustflóðum í sinni tíð. Innlent 10.9.2021 16:16
27 milljón króna miðar keyptir á Þingeyri og í Varmahlíð Tveir ljónheppnir þátttakendur í Lottóinu skiptu með sér aðalvinningi kvöldsins. Hvor fær 27,4 milljónir í sinn hlut. Innlent 7.8.2021 19:48
Áhyggjur af skriðuföllum á Sauðárkróki Kallað hefur verið eftir því að hættumat verði gert eins fljótt og auðið er fyrir Varmahlíð vegna aurskriðanna sem féllu þar í júní. Þá eru einnig áhyggjur um skriðuföll á Sauðárkróki og hefur sveitarstjóri Skagafjarðar lagt fram formlega beiðni um að hættumat verði gert á ákveðnum svæðum þar. Innlent 6.8.2021 11:42
Bíll valt á Þverárfjallsvegi en allir sluppu með skrekkinn Bíll valt af Þverárfjallsvegi á Skaga rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Tveir voru í bílnum þegar hann valt, kona og karl frá Þýskalandi. Bæði komust þau sjálf úr bílnum og reyndust heil á húfi. Innlent 29.7.2021 20:11
Úr greiningardeildinni í lögreglustjóraembætti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Birgi Jónasson í embætti lögreglustjóra á Norðurlandi vestra frá 19. júlí. Innlent 19.7.2021 17:56
Aurskriða inn í íbúð, ónýtur bíll og týndur köttur en buguð Bryndís fagnaði Það féll aurskriða inn í íbúðina hennar, kötturinn týndist, bíllinn bilaði og hún veiktist en stóð samt uppi sem sigurvegari í mikilvægum fótboltaleik í Garðabæ í gærkvöld. Þetta er ekki handrit að bíómynd heldur vika í lífi Bryndísar Rutar Haraldsdóttur. Íslenski boltinn 7.7.2021 14:00
Rýmingu í Varmahlíð aflétt Rýmingu á öllum húsum í Varmahlíð í Skagafirði hefur verið aflétt. Þetta ákvað almannavarnanefnd Skagafjarðar á fundi sem hófst klukkan 19 í kvöld. Rýming hefur verið í gildi fyrir húsin við Laugaveg 15 og 17 síðan á þriðjudag þegar aurskriða féll á húsin. Innlent 2.7.2021 22:08
Aflétta rýmingu á enn einu húsi í Varmahlíð Almannavarnanefnd Skagafjarðar fundaði í dag og tók ákvörðun um að rýmingu á húsi við Norðurbrún 7 í Varmahlíð skyldi aflétt frá og með klukkan 21 í kvöld. Rýming er þó enn í gildi fyrir Laugaveg 15 og 17 en aurskriða féll á húsin tvö í fyrradag. Innlent 1.7.2021 19:58
Aflétta rýmingu nokkurra húsa í Varmahlíð Almannavarnanefnd Skagafjarðar tók þá ákvörðun í dag að aflétta rýmingu nokkurra húsa í Varmahlíð frá og með klukkan níu í kvöld. Húsin voru rýmd eftir að aurskriða féll á hús í bænum í gær. Innlent 30.6.2021 19:21
Aurskriða í Tindastóli: „Helvíti mikill aur hérna niður hlíðina“ Viggó Jónsson, fyrrverandi umsjónarmaður skíðasvæðisins í Tindastóli í Skagafirði, segir að talsverðar skemmdir hafi orðið á skíðasvæðinu eftir að aurskriða féll í fjallinu. Tilkynnt var um skriðuna fyrr í dag þó að ekki sé að fullu ljóst hvenær hún féll. Innlent 30.6.2021 11:40
Aurskriða olli skemmdum á skíðasvæðinu í Tindastóli Í morgun barst lögreglunni á Norðurlandi vestra tilkynning um að aurskriða hafi fallið á skíðasvæðið í Tindastóli. Ljóst er að skemmdir hafa orðið á svæðinu. Innlent 30.6.2021 11:18
Rýming vegna aurskriðuhættu enn í gildi Rýming húsa við Laugaveg og Norðurbrún í Varmahlíð stendur, að minnsta kosti þar til fundur almannavarnarnefndar fer fram núna í morgunsárið. Tilkynning um framhaldið verður birt á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi vestra kl. 11. Innlent 30.6.2021 06:31
Aurskriða féll á tvö hús í Varmahlíð Aurskriða féll á tvö hús í Varmahlíð í Skagafirði um klukkan fjögur í dag. Ekkert manntjón varð vegna skriðunnar en talsvert tjón varð á húsunum tveimur sem urðu fyrir skriðunni. Þetta staðfestir Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra. Innlent 29.6.2021 17:17
Tveir fluttir með sjúkraflugi eftir harðan árekstur Harður árekstur tveggja bifreiða varð á Siglufjarðarvegi við Kýrholt í dag. Að sögn lögreglu voru ökumennirnir báðir einir í bifreiðum sínum. Innlent 9.6.2021 15:27
Hiti við 20 gráður fyrir norðan Ekki mátti miklu muna að hitinn færi upp í 20 gráður á Norðurlandi í dag. Á þremur stöðum sýndu mælar Veðurstofunnar meira en 19 gráður, bæði í Skagafirðinum og á torfum í Eyjafirði. Innlent 26.5.2021 17:00
„Hefði ekki tekist án samtakamáttar“ Hörðum sóttvarnaaðgerðum í Skagafirði verður aflétt á miðnætti eftir ákvörðun almannavarna þess efnis, sem telur sig hafa náð tökum á hópsmitinu. Fimm greindust með kórónuveiruna innanlands í gær, þar af fjórir í Skagafirði. Innlent 16.5.2021 13:43
Ekki þörf á að framlengja staðbundnar aðgerðir Aðgerðastjórn almannavarna á Norðurlandi vestra ákvað í dag að óska ekki eftir framlengingu reglugerðar sem sett var sérstaklega fyrir Skagafjörð og Akrahrepp vegna hópsmits á svæðinu. Aðgerðirnar, sem gilda til morgundagsins, verða því ekki í gildi umfram það. Innlent 15.5.2021 20:03
Fyrsti sigur Tindastóls í sögu efstu deildar kominn í hús Tindastóll tók á móti ÍBV í Pepsi Max deild kvenna í dag. Þetta var þriðji leikur ÍBV á tímabilinu, en aðeins annar leikur Tindastóls. Tindastóll vann góðan 2-1 sigur og er þar af leiðandi komið með sinn fyrsta sigur í sögu efstu deildar kvenna í knattspyrnu. Íslenski boltinn 15.5.2021 15:06
„Ekki ólíklegt að það bætist eitthvað við af smitum“ Þrír greindust með veiruna á Sauðárkróki í gær en allir voru í sóttkví. Þrettán eru í einangrun í bænum en 256 eru í sóttkví. Innlent 13.5.2021 18:01