Sjálfstæðisflokkurinn

Kjóstu meiri árangur
Velferð er byggð á öflugu atvinnulífi, það er forsenda framfara. Þetta vitum við Sjálfstæðismenn. Það á að vera eftirsóknarvert að stofna og reka fyrirtæki á Íslandi. Við þurfum að tryggja stöðugleika, hóflega skattheimtu og einfalt regluverk.

Afvegaleidd umræða um áskoranir heilbrigðiskerfisins
Sem ráðherra nýsköpunar hef ég lagt sérstaka áherslu á að styðja við nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. Ég, eins og raunar langflestir starfsmenn heilbrigðiskerfisins sem ég hef rætt við, er sannfærð um nauðsyn þess að ryðja braut nýrra strauma, hugsunar og aðferða í heilbrigðiskerfinu.

Sjálfstæðismenn boða víst skattalækkanir á þá efnamestu
Í nýlegri grein skrifaði ég að Sjálfstæðisflokkurinn boðaði skattalækkanir handa þeim efnamestu með kosningaáherslunni sinni “Helmingum erfðafjárskatt og fjórföldum frítekjumarkið í 20 milljónir króna”.

Gætu kosið strategískt þegar svo margir flokkar eru á mörkunum
Samfylkingin og Viðreisn gætu myndað ríkisstjórn með einum eða tveimur flokkum í viðbót miðað við nýjustu könnun Maskínu. Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknar gæti verið í hættu á að ná ekki inn og fjölgun flokka á mörkum þess að ná inn þingmanni gæti boðið upp á strategíska kosningu.

Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur takist á í bergmálshelli
Ólafur Þ. Harðarson prófessor emiritus í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands mætir í Samtalið með Heimi Má í opinni dagskrá strax að loknum fréttum og Íslandi í dag á Stöð 2 í kvöld.Hann hefur lengst af farið fyrir kosningarannsóknum á Íslandi sem hófust árið 1983 og standa enn. Hann segir rannsóknir sýna að Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkurinn taki helst atkvæði frá hvor öðrum.

Loftslagskvíði Sjálfstæðisflokksins
Ég hef komist að því að þingmenn og ráðherrar Sjálfstæðisflokksins eru haldnir loftslagskvíða og pestin hafi herjað á þá um skeið. Í stað þess að leita sér lækninga hafa þeir hunsað einkennin.

„Við andlát manns lýkur skattskyldu hans“
Á vefsíðu Skattsins þar sem fjallað er um dánarbú segir meðal annars: „Við andlát manns lýkur skattskyldu hans.“ Fyrr má nú vera, en þessi setning segir þó aðeins hálfa söguna og er ekki fyllilega lýsandi fyrir raunveruleikann.

Ævintýralegar eftiráskýringar
Vextir lækkuðu aftur í gær. Það eru gleðitíðindi fyrir heimilin í landinu. Vaxtalækkunin skilar dæmigerðu heimili nærri 190 þúsund krónum í auknar ráðstöfunartekjur á ári. Það munar sannarlega um minna. Lækki vextir enn frekar má vænta þess að ráðrúm heimila aukist enn frekar.

Að vera stjórntækur að mati Viðreisnar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar var á dögunum í einhverskonar skjallspjalli með formanni Samfylkingarinnar í hlaðvarpi Björns Inga Hrafnssonar, Grjótkastinu.

Vaxtalækkun gleðitíðindi en vextir ennþá „allt of háir“
Formaður Sjálfstæðisflokksins er í skýjunum með vaxtaákvörðun morgunsins og segir að nú sé þjóðin að uppskera eftir aðhaldssama ríkisfjármálastefnu frá 2022. Formaður Samfylkingarinnar talar aftur á móti um skort á festu í ríkisfjármálum sem hafi bitnað á millistéttinni, vextir séu ennþá allt of háir.

Brugðist við vaxtalækkun: „Ævintýralegur halli“ og „verðbólga í frjálsu falli“
Stjórnmálamenn og verkalýðsforingjar eru meðal þeirra sem nú keppast við að bregðast við ákvörðun Seðlabankans um lækkun stýrivaxta og ljóst að einhverjir stjórnmálamenn reyni nú að nýta tíðindin sem tromp í kosningabaráttunni.

Örugg landamæri eru forgangsmál
Eitt af áherslumálum Sjálfstæðisflokksins er að styrkja íslensk landamæri og skal það engan undra. Staðan í heiminum, sem við förum ekki varhluta af, er alvarleg og kallar á að við höldum þétt utan um landamæri okkar.

100 þúsund á mánuði
Vextir eru ekki bara tölur á blaði. Lágir vextir gera fjölskyldum kleift að blómstra, fyrirtækjum að fjárfesta og samfélögum að dafna. Ódýrara fjármagn veitir súrefni inn í hagkerfið, skapar tækifæri og hvetur til nýsköpunar.

Eldri borgarar. Takið eftir
Framundan eru kosningar til Alþingis 30. nóvember n.k. Stjórnmálaflokkar eru að birta þessa dagana stefnumál sín og línurnar farnar að skýrast. Við getum því farið að mynda okkur skoðanir m.t.t. hvað eldri borgurum kemur best.

„Finnst þér þetta litlir kjúklingavængir í höndunum á mér?“
Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins segist ekkert vera sérstaklega mikið fyrir sterkan mat. Hann er líklega með stærstu hendur nokkurs frambjóðenda en þetta er sannreynt þegar skorað er á hann í puttastríð.

Málglaðasti þingmaðurinn talaði í þrjá og hálfan sólarhring
Þingmenn Pírata vörðu langmestum tíma í pontu Alþingis á kjörtímabilinu sem nú er að ljúka. Þingmenn Framsóknarflokksins vörðu hins vegar minnstum tíma í ræðustól Alþingis að meðaltali. Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, er málglaðasti þingmaðurinn á Alþingi, ef tekið er mið af þeim tíma sem hann varði í pontu Alþingis á kjörtímabilinu.

Óheppilegt að setja Jón í ráðuneytið
Óheppilegt var að koma Jóni Gunnarssyni fyrir í matvælaráðuneytinu að mati Gísla Freys Valdórssonar, stjórnanda hlaðvarpsins Þjóðmála. Þetta kom fram í Pallborðinu á Vísi í gær.

Sjálfstæðisflokkurinn hafi misnotað aðstöðu sína í aðdraganda kosninga
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir þingkona Pírata segir Sjálfstæðisflokkinn, og dómsmálaráðherra, hafa misnotað aðstöðu sína í starfsstjórn þegar kynnt var ný landamærastefna fyrir helgi. Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, vísar þessu alfarið á bug.

Sérhagsmunagæsla Sjálfstæðisflokks, Framsóknar, VG og Miðflokks dæmd ólögleg
Það má ekki brjóta lög við lagasetningu á Alþingi. Þetta er nokkuð sem flestir skilja.

Sjálfstæðisflokkurinn vill afnema skyldu til jafnlaunavottunar!
Einn frasanna sem flæða af vörum Viðreisnarfólks þessa dagana er um „einfaldara líf“. Betra væri ef sá gállinn hefði verið á þeim þegar Viðreisn var í ríkisstjórn.

Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd á ekki að vera leikhús
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefur mikilvægt hlutverk; að sinna eftirliti þingsins í stærri málum, s.s. embættisbrotum ráðherra.

Endanleg fjárlög 2025: Hallinn jókst um 18 milljarða vegna kólnunar
Fjárlagafrumvarps ársins 2025 var í dag samþykkt sem lög frá Alþingi. Í fjárlögum er gert ráð fyrir 59 milljarða króna halla á afkomu ríkissjóðs, sem er 18 milljörðum meira en Sigurður Ingi Jóhannesson fjármálaráðherra lagði upp með við framlagningu frumvarpsins í september. Það er vegna hárra stýrivaxta sem hafa leitt til kólnunar hagkerfisins.

Bjarni sér ekki eftir að hafa endurnýjað stjórnarsamstarfið
Fjárlög næsta árs voru í dag afgreidd með ríflega 58 milljarða halla á síðasta þingfundi fyrir kosningar. Forsætisráðherra sér ekki eftir að hafa endurnýjað stjórnarsamstarfið eftir síðustu kosningar en segir lýðræðislegt að boða til kosninga þegar samstarfið hafi ekki gengið lengur upp.

Allir ráðherrar Sjálfstæðisflokksins auk matvælaráðherra voru fjarverandi
Framsóknarflokkurinn var eini stjórnarflokkurinn sem mætti með fullskipað lið til atkvæðagreiðslu á Alþingi þegar umdeild búvörulög voru samþykkt á Alþingi í mars. Helmingur þingmanna Sjálfstæðisflokksins og Vinstri grænna voru ekki viðstaddir atkvæðagreiðsluna. Enginn ráðherra Sjálfstæðisflokksins greiddi atkvæði um frumvarpið og ekki heldur Katrín Jakobsdóttir þáverandi forsætisráðherra sem þá var einnig starfandi matvælaráðherra í fjarveru Svandísar Svavarsdóttur sem var í veikindaleyfi.

Frelsi alla leið – dánaraðstoð
Frá því að ég var kosin á Alþingi haustið 2016 hef ég tekið upp málefnið dánaraðstoð á þinginu og lagt áherslu á mikilvægi þess að skapa frelsi í lífslokum. Ég hef lagt fram fyrirspurnir, þingsályktanir og skýrslubeiðnir um málefnið.

Brynjar verður ekki í stjórn Mannréttindastofnunar
Brynjar Níelsson tekur ekki sæti í stjórn Mannréttindastofnunar eins og staðið hafði til. Sigurður Kári Kristjánsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins tekur sætið þess í stað og vera formaður hennar.

Varist eftirlíkingar
Margir þeirra flokka sem nú eru í framboði skreyta sig með því að segjast vera hægri flokkar. Raunin er sú að það er aðeins einn flokkur í boði sem hefur barist fyrir frelsi og minni ríkisafskiptum í bráðum 100 ár.

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn jöfn í kosningaspá
Enn dalar fylgi Samfylkingarinnar samkvæmt niðurstöðum nýrrar kosningaspár úr smiðju Metils. Þær benda einnig til þess að hvorki Píratar, Sósíalistar né Vinstri græn nái manni inn á þing í komandi kosningum.

„Ég hafna þessari gagnrýni algjörlega“
Dómsmálaráðherra hafnar alfarið gagnrýni þingmanns Pírata á blaðamannafund sem hún hélt með Ríkislögreglustjóra í gær. Hún segir starfsstjórnir geta markað stefnu, og það sem kynnt var á fundinum sé ekki hennar stefna, heldur ráðuneytis hennar.

Segir fund ráðherra og lögreglustjóra til marks um spillingu
Stjórnarandstöðuþingmaður segir blaðamannafund ráðherra og lögreglustjóra bera vott um spillingu. Ný stefna og áætlun í landamæramálum voru kynntar á fundinum, þar á meðal áform um að koma á fót miðstöð við Keflavíkurflugvöll, þar sem hælisleitendur geti dvalið í allt að viku.