Verslun

Optical Studio opnar í Kringlunni
Nýlega fagnaði gleraugnaverslunin Optical Studio þeim áfanga að hafa opnað glæsilega verslun í Kringlunni.

Segir verðbreytingar eðlilegar og til marks um mikla samkeppni
Framkvæmdastjóri Krónunnar hafnar því að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð eftir að ný verðgátt fór í loftið. Verðbreytingar séu eðlilegar og til marks um mikla samkeppni. Samkeppniseftirlitið mun fylgjast með framvindu mála.

Alvarleg staða ríki á fákeppnismarkaði
Alvarleg staða ríkir á fákeppnismarkaði og samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja lítil að sögn formanns VR sem segir vísbendingar um að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð sitt nokkrum dögum áður en ný verðgátt var opnuð almenningi, óásættanlegar. Auka verði samkeppni.

Tók eftir lækkunum samkeppnisaðila í aðdraganda Verðgáttar
Framkvæmdastjóri Bónus segist hafa tekið eftir verðbreytingum hjá samkeppnisaðilum í aðdraganda birtingu Verðgáttar. Rekstrarstjóri Nettó vísar ásökununum á bug.

Lítill minnihluti á Alþingi stöðvar stuðning við tollfrelsi Úkraínu
Alþingi er á lokametrunum fyrir sumarleyfi þingmanna og voru fjölmörg frumvörp ýmist afgreidd sem lög eða til lokaumræðu á þinginu í dag. Nokkur tími fór hins vegar einnig í umræður um að Alþingi mun ekki framlengja undanþágu á tollum á innfluttum landbúnaðarafurðum frá Úkraínu á þessu þingi vegna andstöðu nokkurra þingmanna.

Vísbendingar um verðsamráð verslana eftir útgáfu Verðgáttar
Vísbendingar eru um að matvöruverslanir hafi samræmt vöruverð sitt örfáum dögum áður en ný verðgátt var opnuð almenningi. Í sumum tilfellum var verð hækkað þar sem varan reyndist dýrari annars staðar.

Neytendur geta borið saman matvöruverð þriggja verslunarrisa
Vefurinn Verðgáttin er nú komin í loftið en hún gerir neytendum kleift að fylgjast með þróun verðlags helstu neysluvara í stærstu matvöruverslunum landsins; Bónus, Krónunni og Nettó. Í Verðgáttinni munu neytendur sjá vöruverð gærdagsins og verðsögu vörunnar.

Breyta merkinu án ótta við hæðni netverja
Nýtt útlit lágvöruverslunarinnar Krónunnar var frumsýnt í dag. Daði Guðjónsson, markaðsstjóri Krónunnar segir mikla spennu ríkja fyrir breytingunum og segist ekki hræðast gagnrýni netverja á nýja merkinu.

Lindex opnar nýja verslun í Hafnarfirði
Lindex á Íslandi opnar á morgun, fimmtudag, nýja verslun fyrir barnafatnað í Firðinum í miðbæ Hafnarfjarðar. Verslunin er sú tíunda sem opnuð er á landinu.

Boozt tekur forystu í samfélagslegri ábyrgð og lokar á óþarfa vöruskil
Netverslunarrisinn Boozt setur markið hátt í umhverfismálum og samfélagslegri sjálfbærni og hefur tekið forystu í ábyrgum rafrænum viðskiptum á Norðurlöndunum. Gloria Tramontana, forstöðumaður á sviði sjálfbærni og umhverfismála hjá Boozt, segir tískuiðnaðinn í heild standa frammi fyrir miklum áskorunum í þessum málaflokkum og þurfi að sýna ábyrgð.

Sendur ungur til Danmerkur vegna agaleysis á Akureyri
Fyrir tveimur árum síðan kom netfataverslunin Boozt inn á íslenska markaðinn. Með látum má segja. Velti til dæmis netversluninni Asos úr sessi með markaðshlutdeild á aðeins örfáum vikum. Og samkvæmt frétt Innherja Vísis haustið 2021, versluðu Íslendingar fatnað hjá Boozt fyrir tæpan milljarð fyrsta hálfa árið. „Það ætlaði allt um koll að keyra,“ er kannski orðatiltæki sem ætti vel við hér.

Bónus opnar verslun í Norðlingaholti
Ný verslun verslunarkeðjunnar Bónus opnaði í dag við Norðlingabraut í Norðlingaholti.

Ragnhildur Steinunn nýr eigandi tveggja húsgagnaverslana
Fjölmiðlakonan Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir hefur ásamt eiginmanni sínum og öðrum hjónum fest kaup á húsgagnaverslununum DUXIANA og Gegnum glerið.

Svona er Keflavíkurflugvöllur að breytast
Keflavíkurflugvöllur er að breytast og stækka til muna. Margir veitingastaðir og verslanir eru að hverfa og nýtt kemur inn.

Ný verslun Eyesland á Keflavíkurflugvelli styðst við gervigreind
„Hér var mikið stuð og allir sammála um að vel hefði tekist til. Sjálfri finnst mér þetta vera ein flottasta gleraugnaverslun í heimi,“ segir Sigrún Andersen, framkvæmdastjóri Provision en splunkuný verslun undir merkjum Eyesland var opnuð í vikunni á Keflavíkurflugvelli.

Taka stikkprufur á meðan ný lausn sannar gildi sitt í Bónus
Viðskiptavinir Bónus á Smáratorgi geta nú gripið sér skanna við inngang verslana og skannað vörur beint ofan í poka á leið sinni um verslunina. Nýja sjálfsafgreiðslulausnin heitir Gripið og greitt eins og samnefnd verslun sem lagði upp laupana snemma á öldinni. Helsti samkeppnisaðilinn Krónan hefur í hálft annað ár boðið upp á svipaða lausn þar sem viðskiptavinir geta skannað vörur með notkun apps.

Sekta verslanir í Kringlu og Smáralind
Þrettán verslanir í Kringlunni og Smáralind hafa verið sektaðar fyrir skort á verðmerkingum.

Ostabúðin á Fiskislóð gjaldþrota
Engar eignir fundust í þrotabúi Ostabúðarinnar veisluþjónustu sem var með starfsemi á Fiskislóð á Granda þar til búðinni var lokað í fyrra. Kröfur í þrotabúið námu rúmum 26 milljónum króna að því er fram kemur í Lögbirtingablaðinu í dag.

Ráðin nýr verkefnastjóri á sviði sjálfbærni hjá Krónunni
Heiðdís Inga Hilmarsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri á sviði sjálfbærni hjá Krónunni.

Starfsfólkið himinlifandi með breytinguna
Eigendur útivistarverslunarinnar GG sport hafa ákveðið að stytta opnunartíma sinn og loka verslunum sínum klukkan 17. Fylgja þeir þar með fordæmi fleiri verslunareigenda sem hafa tekið svipuð skref. Annar eigendanna segir starfsfólk verslunarinnar vera himinlifandi með breytinguna.

Matvörugátt þriggja verslana opnar brátt
Neytendur munu geta borið saman verð á matvælum í sérstakri Matvörugátt sem opnuð verður innan fárra daga. Þrjár verslanir eru þátttakendur í verkefninu.

Fyrsta fathöllin neitar að láta nota sig sem mátunarklefa
Stofnendur Nebraska við Barónsstíg vilja blanda saman veitingastarfsemi og fataverslun og gera það af einstakri smekkvísi. Í Íslandi í dag er kíkt í heimsókn og litið á vandaða innréttingu og ýmsar forvitnilegar flíkur.

Fundu hæsta verðið oftast í Iceland og Heimkaupum
Hæsta verðið var oftast að finna í Iceland og Heimkaupum í nýrri verðlagskönnun sem Alþýðusambandið framkvæmdi þann 9. maí síðastliðinn. Bónus var oftast með lægsta verðið en næst oftast var Fjarðarkaup.

Forstjóri S4S segir að breyta þurfi opnunartímum verslana
Forstjóri S4S segir að kominn sé tími til að breyta opnunartíma verslana. Erfitt sé að halda fólki í verslunarstörfum og taka þurfi mið af styttingu vinnuvikunnar í verslunum. Ný kynslóð lifi ekki til að vinna heldur öfugt.

Uppgjör smásala sýna að þeir eru ekki að maka krókinn á tímum verðbólgu
Verðmatsgengi Haga er 14 prósentum yfir markaðsgengi þrátt fyrir nokkra lækkun á matinu sem gert var eftir að verslunarsamsteypan birti síðasta uppgjör. Hlutabréfagreinandi segir að miðað við fréttaflutning mætta halda smásölufyrirtæki væru að svíngræða á tímum verðbólgu en uppgjör sýni að svo sé ekki.

Fjölskylduvænni vinnustaður: Hvetur fleiri verslanir til að loka klukkan fimm
„Kauphegðun fólks hefur breyst svo mikið síðustu árin en opnunartími sérverslana hefur ekki þróast í samræmi,“ segir Úlfar Finsen, eigandi Módern húsgagnaverslunarinnar. „Í dag er mesta traffíkin til okkar á milli klukkan eitt og þrjú á daginn en færri sem koma á milli klukkan fimm og sex.“

Girðing og myndavélar ekki stöðvað ferðamenn við að létta á sér
Engin salernisaðstaða er við helsta verslunarkjarna Djúpavogs og ferðamenn kasta af sér þvagi við bensínstöðina. Heimastjórn og íbúar í nágrenninu eru ósátt við stöðuna.

María tekur við af Birni Sveinbjörns hjá NTC
María Greta Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fataverslunarinnar NTC. Hún tekur við af Birni Sveinbjörnssyni sem verður fjármálastjóri NTC. Hann hefur starfað sem framkvæmdastjóri félagsins síðan 2007.

Gamestöðin færir sig úr Kringlunni yfir í netheima
Gamestöðin mun loka verslun sinni í Kringlunna næstkomandi sunnudag. Eigandi verslunarinnar segir að ekki sé hægt að keppa við netverslunina í leikjatölvunum sjálfum. Gamestöðin er þó ekki hætt í rekstri þar sem hún lætur til skarar skríða á heimavelli - í netheimum.

Framtíð netverslunar í Hörpu
Ráðstefnan Framtíð netverslunar verður haldin í Silfurbergi í Hörpu föstudaginn 19. maí.