Íslenski boltinn

Ekki nógu góð fyrir toppbaráttu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Fylkismenn sömdu við Jóhannes Karl Guðjónson og Ingimund Níels Óskarsson fyrir komandi sumar.
Fylkismenn sömdu við Jóhannes Karl Guðjónson og Ingimund Níels Óskarsson fyrir komandi sumar. Vísir/Ernir
Fréttablaðið hefur nú birt spá sína yfir liðin fjögur sem verða um miðja deild í Pepsi-deildinni í sumar, það er liðin sem sigla mögulega lygnasta sjóinn í sumar.

Keflvíkingar hlustuðu ekki á hrakspár í fyrra og voru flottir framan af í deildinni auk þess að komast alla leið í bikarúrslitaleikinn. Liðið endaði samt í áttunda sæti og verður á sama stað næsta haust.

„Þetta verður svipað sumar. Þeir verða aðeins fyrir ofan fall en ég held að styrkur liðsins sé þjálfarinn Kristján Guðmundsson. Hann þekkir allt í Keflavík mjög vel og hefur náð miklu út úr fótboltamönnum í Keflavík,“ segir Hjörvar Hafliðason, sparkspekingur Pepsi-markanna.

Víkingar komu öllum á óvart og tryggðu sér sæti í Evrópukeppni í fyrsta sinn í 23 ár síðasta sumar en Fréttablaðið spáir að liðið verði þremur sætum neðar í ár. Það urðu miklar breytingar á Víkingsliðinu milli tímabila.

„Þeir eru búnir að missa mjög sterka leikmenn, þar á meðal Ingvar úr markinu og Aron Elís sem er mjög stór biti fyrir Víkinga. Þeir hafa ekki náð að fylla þessi skörð og þá sérstaklega í markinu. Það er alltaf erfitt að fylgja eftir svona góðu tímabili eins og í fyrra. Nú er búist við meira af þeim og þeir eru ekki lengur óþekkta liðið,“ segir Hjörtur Hjartarson, sparkspekingur Pepsi-markanna.

Valsmenn misstu af Evrópukeppninni í lokaumferðinni í fyrra en undanfarin ár hafa verið flöt á Hlíðarenda og liðið hefur ekki komist í Evrópukeppni síðan það varð síðast meistari 2007. Ólafur Jóhannesson, þrefaldur Íslandsmeistari sem þjálfari FH og fyrrverandi landsliðsþjálfari, er tekinn við Valsliðinu en telur sjálfur að liðið sé ekki nógu gott til þess að berjast um Evrópusætið.

„Valsliðið virðist vera í millibilsástandi, ekki nógu gott til að blanda sér í toppbaráttuna og allt of gott til til að lenda í fallbaráttu. Ég held að Valsmenn leggi ofuráherslu á að komast í Evrópueppni og geta þar með blandað sér í toppbaráttuna fyrir alvöru á næstu árum,“ segir Hjörtur.

Fylkismenn hafa styrkt sig vel á undirbúningstímabilinu og þeir ættu að geta hækkað sig um eitt sæti frá því í fyrra. Fylkismenn gátu komist í Evrópukeppni með sigri á föllnu liði Fram á lokadegi en klúðruðu því á ævintýralegan hátt. Hjá Fylkismönnum snýst allt um heimkomu Ásgeirs Barkar Ásgeirssonar og Ingimundar Níels Óskarssonar enda fara þar einn besti varnarsinnaði miðjumaður deildarinnar og einn af betri sóknarmönnunum.

„Fylkismenn munu verða rétt fyrir neðan toppbaráttuna og verða í baráttu við Val og Víking um sætin fyrir neðan efstu fjögur. Til þess að Fylkismenn geti gert atlögu að Evrópusæti þá þarf Albert Brynjar Ingason að skora 12 til 15 mörk, Ingimundur Níels þarf að eiga frábært tímabil og þeir félagar Jóhannes Karl Guðjónsson og Ásgeir Börkur að ná vel saman á miðjunni. Varnarleikurinn er óvissuþáttur,“ segir Óskar Hrafn Þorvaldsson, einn af sérfræðingum Vísis í spánni fyrir Pepsi-deildina.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×