Krefjast frekari svara um Leiðréttinguna Ingvar Haraldsson skrifar 4. júlí 2015 07:00 Katrín segist ekki hafa fengið svör við öllum spurningum sínum um Leiðréttinguna. vísir/daníel
Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri-grænna, ásamt níu þingmönnum stjórnarandstöðunnar, þar á meðal Árna Páli Árnasyni, formanni Samfylkingarinnar, og Birgittu Jónsdóttur, þingmanni Pírata, hafa farið fram á að ný skýrsla verði gerð um niðurfærslu verðtryggðra fasteignalána. Þingmennirnir segja að í skýrslu Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um Leiðréttinguna sem kom út á mánudaginn komi ekki fram svör við öllum spurningum sem Katrín Jakobsdóttir lagði fram um aðgerðina á Alþingi í nóvember. „Þetta er rosalega stór aðgerð og því finnst okkur mikilvægt að það ríki sem mest gegnsæi um allar upplýsingar. Þess vegna leggjum við þessa beiðni fram, til þess að fá svör um það sem okkur fannst ekki nægjanlega svarað í skýrslunni,“ segir Katrín. Þingmennirnir spyrja hvernig heildarupphæð Leiðréttingarinnar skiptist milli beinnar höfuðstólslækkunar og frádráttarliða. Þá spyrja þeir einnig hvernig lækkun húsnæðislána skiptist milli tíunda eftir tekjum og eignum allra framteljenda árið 2014 en ekki bara þeirra sem sóttu um lækkun húsnæðislána. Katrín á ekki von á því að svör við spurningunum fáist fyrr en þing kemur saman á ný í haust.
Alþingi Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Fleiri fréttir Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Sjá meira