Erlent

Ní­tján lík sögð hafa fundist eftir flug­slys í Washington

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Ef marka má miðla vestanhafs verður að teljast ólíklegt að margir finnist á lífi.
Ef marka má miðla vestanhafs verður að teljast ólíklegt að margir finnist á lífi. Getty/Andrew Harnik

Óttast er um örlög farþega og áhafnar flugvélar American Airlines sem féll í Potomac-ána nærri Reagan-alþjóðaflugvellinum fyrir utan Washington eftir árekstur við herþyrlu rétt fyrir klukkan 21 að staðartíma.

Alls voru 64 um borð í vélinni, fjórir áhafnarmeðlimir og 60 farþegar. Þeirra á meðal voru skautafólk, þjálfarar og fjölskyldur þeirra. Þá virðast þrír hafa verið í þyrlunni. 

Fregnir hafa borist af því að nítján lík hafi fundist.

Miklar aðgerðir standa yfir á vettvangi en enn sem komið er hefur enginn fundist á lífi. Um 300 manns koma að björgunarstörfunum en aðstæður eru erfiðar og vatnið í ánni ískalt.

Um er að ræða Bombardier CRJ700 farþegavél í innanlandsflugi sem var að koma frá Witchita í Kansas. Hún lenti á Sikorsky UH-60 Black Hawk þyrlu frá Fort Belvoir í Virginíu í aðfluginu að Reagan.

Öllum brottförum og lendingum á flugvellinum hefur verið frestað.

Leitað er úr lofti og úr bátum á ánni.AP/Alex Brandon

Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tjáð sig um málið á Truth Social og segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir slysið og virðist telja sökina liggja hjá flugturninum og þyrluflugmanninum. „EKKI GOTT!!!“ segir forsetinn.

Fréttin hefur verið uppfærð.

Mikill viðbúnaður er við ána.AP/Alex Brandon
Leitað stendur yfir og mörg köfunarteymi mætt á vettvang. Aðstæður eru hins vegar sagðar afar erfiðar.AP/Alex Brandon
Fjölmiðlar voru beðnir um að draga úr lýsingu til að auðvelda leit á vatninu.epa/Shawn Thew



Fleiri fréttir

Sjá meira


×