Íslendingar auka framlög sín til öryggis- og varnarmála Fjárhagslegur stuðningur Íslands við Úkraínu í fyrra og á þessu ári er um 4,5 milljarðar króna. Ísland er að auka framlög sín almennt til öryggis- og varnarmála eins og önnur ríki Atlantshafsbandalagsins. Bandalagið hefur áhyggjur af auknu samstarfi Rússa og Kínverja og umsvifum Kína á Kyrrahafi. Erlent 5. apríl 2023 19:31
Bretar hindra útsendingu frá erindi eftirlýsts umboðsmanns barna Bretar hafa beitt neitunarvaldi sínu til að koma í veg fyrir að sent verði út frá fundi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, þar sem umboðsmaður barna í Rússlandi mun flytja erindi í gegnum fjarfundarbúnað. Erlent 5. apríl 2023 10:28
Finnar boðnir velkomnir í Atlantshafsbandalagið Hvítur og blár fáni Finnlands var dreginn að húni við höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Brussel til marks um inngöngu landsins í dag. Landamæri Rússlands og NATO tvöfaldast að lengd með inngöngu Finna. Erlent 4. apríl 2023 15:26
Endurnýja tryggingar á Nordstream-gasleiðslunni Tvö stór þýsk tryggingafélög endurnýjuðu tryggingu á Nordstream 1-gasleiðslunni sem skemmdarverk voru unnin á í haust. Það er sagt benda til þess að ekki hafi verið útilokað að leiðslan verði tekin aftur í notkun einhvern daginn. Viðskipti erlent 4. apríl 2023 11:49
Kona handtekin vegna dráps á þekktum hernaðarbloggara Rússnesk yfirvöld segjast hafa handtekið unga konu í tengslum við dráp á þekktum hernaðarbloggara á kaffihúsi í Pétursborg um helgina. Upptökur frá kaffihúsinu sýna að kona afhenti bloggaranum styttu af honum sjálfum rétt áður en sprengja sprakk. Erlent 3. apríl 2023 10:06
Stuðningsmaður innrásar Rússa lést í sprengingu á veitingastað Prigozhins Rússneski stríðsbloggarinn Vladlen Tatarsky lést eftir öfluga sprengingu á veitingastað í Pétursborg í dag. Veitingastaðurinn er sagður í eigu Yevgeny Prigozhin, stofnanda Wagner-hópsins alræmda. Erlent 2. apríl 2023 19:01
Rússneskir hermenn illa þjakaðir af áfengisneyslu Fjölmörg slys meðal rússneskra hermanna, þar með talið dauðsföll, má rekja til óhóflegrar áfengisneyslu að sögn breska varnarmálaráðuneytisins. Erlent 2. apríl 2023 13:59
Forysta Rússa í öryggisráðinu „versti brandari í heimi“ Rússar sitja nú í stóli forseta öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þrátt fyrir mótmæli Úkraínumanna og annarra landa. Síðast þegar Rússar gegndu sama embætti réðust þeir inn í Úkraínu. Erlent 1. apríl 2023 11:06
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: „Það er verið að slátra þeim“ Yfirmenn úkraínska hersins við Bakhmut segja bardaga þar hafa farið Úkraínumönnum í vil. Formaður herforingjaráðs Bandaríkjanna lýsti átökunum nýverið sem „slátrun“ á Rússum en úkraínskir hermenn segja varnir bæjarins þó hafa verið verulega kostnaðarsamar. Erlent 1. apríl 2023 08:00
Segja Rússa ætla að bjóða Norður-Kóreu mat fyrir vopn Rússar hyggjast gera út sendinefnd til Norður-Kóreu, sem mun bjóða þarlendum ráðamönnum mat fyrir vopn. Þetta sagði John Kirby, talsmaður Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, í gær. Erlent 31. mars 2023 08:08
Tyrkland leggur blessun sína yfir umsókn Finnlands Finnland og Svíþjóð óskuðu eftir því að ganga inn í Atlantshafsbandalagið, NATO, á síðasta ári í kjölfar innrásar Rússlands í Úkraínu. Umsóknin hefur strandað á Tyrklandi en nú hefur tyrkneska þingið samþykkt umsóknina. Öll aðildarríki bandalagsins hafa því nú samþykkt inngöngu Finnlands. Erlent 30. mars 2023 22:16
Gögnum um tölvuárásir Rússa lekið til fjölmiðla Rússneska netöryggisfyrirtækið Vulkan hefur hjálpað herafla og leyniþjónustum Rússlands náið við netárásir og gagnaöflun. Auk þess hafa starfsmenn fyrirtækisins þjálfað starfsmenn leyniþjónusta Rússlands og tekið þátt í að dreifa falsfregnum og ýta undir upplýsingaóreiðu. Erlent 30. mars 2023 19:00
Rússar handtaka blaðamann Wall Street Journal fyrir njósnir Rússneska leyniþjónustan FSB segist hafa handtekið blaðamann bandaríska blaðsins Wall Street Journal fyrir meintar njósnir. Blaðamaðurinn gæti átt yfir höfði sér allt að tuttugu ára fangelsi verði hann fundinn sekur um njósnir. Erlent 30. mars 2023 08:33
Muratov óttast að verið sé að undirbúa Rússa undir kjarnorkustyrjöld „Tvær kynslóðir hafa lifað án ógnarinnar af kjarnorkustyrjöld. En það tímabil er liðið. Mun Pútín ýta á kjarnorkuhnappinn eða ekki? Hver veit? Enginn veit það. Það er enginn sem getur svara því.“ Erlent 30. mars 2023 06:58
Kallar eftir samstöðu með Pútín Rússar þurfa að fylkja liði um Vladimír Pútín, forseta Rússlands, því stríðsrekstri ríkisins mun ekki ljúka í bráð. Þetta segir talsmaður Pútíns sem segir einnig að Rússar eigi í stríði við Vesturlönd. Erlent 29. mars 2023 13:17
Selenskí sagður uggandi vegna forsetakosninganna vestanhafs Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefur áhyggjur af því að mögulegar breytingar á hinu pólitíska landslagi Vestanhafs muni hafa áhrif á gang stríðsins í Úkraínu. „Bandaríki skilja að ef þeir hætta að aðstoða okkur þá vinnum við ekki,“ sagði forsetinn í viðtali við AP. Erlent 29. mars 2023 08:07
Myndband af úkraínskum „nasistum“ tekið upp á yfirráðasvæði Rússa Utanríkisráðuneyti Rússlands birti í gær myndband sem sagt var sýna úkraínska hermenn áreita konu og barn og skjóta á þau, fyrir að tala rússnesku. Myndbandið átti að vera til marks um að úkraínskir hermenn væru nasistar en ráðuneytið fjarlægði það eftir að í ljós kom að það var tekið upp á yfirráðasvæði Rússa í austurhluta Úkraínu. Erlent 28. mars 2023 13:43
ÓL-verðlaunahafi dó í stríðinu i Úkraínu Úkraínski hnefaleikamaðurinn Maksym Galinichev dó í stríðinu í Úkraínu en hann var aðeins 22 ára. Sport 28. mars 2023 09:30
Á leið aftur til Úkraínu eftir þjálfun í Bretlandi Bretar eru búnir að þjálfa úkraínska hermenn í notkun Challenger 2 skriðdreka, sem framleiddir eru í Bretlandi. Hermennirnir og skriðdrekarnir eru nú á leið til Úkraínu. Þjóðverjar hafa einnig að afhent Úkraínumönnum átján Leopard 2 skriðdreka. Erlent 27. mars 2023 15:36
NATO fordæmir „hættulega“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn Atlantshafsbandalagið fordæmir „hættulega og ábyrgðarlausa“ orðræðu Rússa um kjarnorkuvopn. Vladimír Pútín Rússlandsforseti ákvað í gær að flytja slík vopn yfir til Hvíta-Rússlands. Erlent 26. mars 2023 16:10
Rússar ráðast í landflutninga með kjarnorkuvopn Rússar ætla að flytja kjarnorkuvopn yfir til Hvíta-Rússlands. Að minnsta kosti tíu flugvélar verða staðsettar í landinu sem borið geta kjarnaodda. Erlent 25. mars 2023 20:26
Hafa skráð tugi aftaka á stríðsföngum Starfsmenn Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna (OHCHR) hafa skrásett fjölda aftaka á stríðsföngum, bæði úkraínskum og rússneskum, í átökunum í Úkraínu. Mun erfiðara sé þó að fá upplýsingar frá Rússum og fá aðgang að föngum í haldi þeirra. Erlent 24. mars 2023 14:35
Rússar skjóta föstum skotum á utanríkisráðherra Rússneska sendiráðið í Reykjavík skýtur föstum skotum á „nýja tísku“ í orðfæri íslenskra embættismanna í tengslum við innrás Rússa í Úkraínu. Sendiráðið nefnir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra sérstaklega, sem notaði orðin „þið megið fokka ykkur,“ í tengslum við baráttuanda Úkraínumanna gegn Rússum. Orðin voru ekki hennar eigin, að sögn ráðherrans. Innlent 23. mars 2023 17:32
Rússar geti farið heim með skriðdrekana sína óttist þeir um þá John Kirby, talsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna, segir að ef Rússar óttist um skriðdreka sína í Úkraínu, sé einfalt fyrir þá að keyra skriðdrekana aftur til Rússlands. Ráðamenn í Rússlandi hafa kvartað yfir því að Bretar séu að senda Úkraínumönnum skot úr rýrðu úrani. Erlent 23. mars 2023 16:03
Selenskí þakklátur Íslandi Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, segist vera þakklátur Íslandi fyrir að viðurkenna hungursneyðina í Úkraínu á árunum 1932-1933 sem hópmorð. Alþingi samþykkti í morgun þingsályktunartillögu þess efnis. Erlent 23. mars 2023 14:32
„Myndi 100 prósent láta svæðin aftur í hendur Úkraínu“ Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída og mögulegur forsetaframbjóðandi, segir orð sín um stríðið í Úkraínu hafa verið misskilin og að Vladimir Pútín Rússlandsforseti sé sannarlega stríðsglæpamaður. Erlent 23. mars 2023 07:13
Myndir af eldflaugaárás Rússa á fjölbýlishús Rússar skutu eldflaug á fjölbýlishús í Zaporizhzhia í Úkraínu í dag. Sprengingin náðist á eftirlitsmyndavél og var mjög kröftug eins og þar sést. Erlent 22. mars 2023 20:01
Ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu Bandaríkjamenn segja ekki trúverðugt að Kínverjar miðli málum í Úkraínu. „Það er ekki á neinn hátt raunhæft að ætla Kínverjum að vera hlutlausir,“ sagði John Kirby, talsmaður Hvíta hússins í þjóðaröryggismálum, í gær. Erlent 22. mars 2023 07:11
Rússar reyna að fá hernaðarstuðning frá Kína Forsetar Kína og Rússlands hafa talað almennt um að efla samskipti þjóðanna á fundi símum í Moskvu í dag en ekkert hefur komið fram um hernaðaraðstoð. Rússar eru mun háðari Kína en áður á ýmsum sviðum vegna refsiaðgerða Vesturlanda. Erlent 21. mars 2023 19:41
Fá eldri skriðdreka en fá þá fyrr Yfirvöld í Bandaríkjunum ætla að flýta skriðdrekasendingum til Úkraínu. Í stað þess að senda nýja M1A2 Abrams skriðdreka, sem mun taka allt að tvö ár, stendur til að gera upp og senda eldri týpur. Erlent 21. mars 2023 17:09
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent