Flug
78 79 80 81 82 83 84 85 86 … 173 ›
Vill sjá alþjóðaflugvöll á Geitasandi í Rangárvallasýslu Atvinnuflugmaður á Hvolsvelli, sem er jafnframt bóndi í Landeyjunum vill sjá að alþjóðaflugvöllur verði byggður á Geitarstandi á milli Hellu og Hvolsvallar. Hann segir veðuraðstæður sérstaklega góðar á svæðinu fyrir flug, auk þess sem svæðið sé bara sandur og því auðvelt og ódýrt að byggja þar flugvöll. Innlent 1.5.2021 13:04
Fyrsta áætlunarflugið til Tenerife í morgun Fyrsta áætlunarflug Icelandair til Tenerife lagði af stað frá Keflavíkurflugvelli á níunda tímanum í morgun. Flogið verður einu sinni í viku til Tenerife í maí en gert er ráð fyrir að fljúga tvisvar til þrisvar í viku þegar áhrif kórónuveirufaraldursins dvína. Viðskipti innlent 1.5.2021 09:47
Flugfélögin sem boða komu sína í sumar Von er á allt að tuttugu flugfélögum með áætlunarflug um Keflavíkurflugvöll í sumar. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir að fyrsta júlí ætti að vera orðið nokkuð auðvelt að taka á móti ferðamönnum á Íslandi. Viðskipti innlent 30.4.2021 20:31
Björn Thoroddsen flugstjóri er látinn Björn Thoroddsen, flugstjóri og listflugmaður er látinn, 84 ára að aldri. Innlent 30.4.2021 11:19
Flugslys á Hólmsheiði Lítil tveggja manna fisflugvél brotlenti við flugvöllinn á Hólmsheiði í kvöld. Tveir voru í vélinni og voru báðir fluttir á slysadeild. Hvorugur er sagður alvarlega slasaður. Tilkynning um slysið barst Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu um klukkan korter fyrir níu í kvöld. Innlent 29.4.2021 21:39
Tap Icelandair tæpir fjórir milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Heildartekjur Icelandair drógust saman um 73 prósent á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og námu 7,3 milljörðum króna. Lækkun tekna er helst rakin til heimsfaraldurs covid-19 sem hélt áfram að hafa gríðarleg áhrif á starfsemi félagsins en sætaframboð dróst saman um 92 prósent á milli ára á fyrsta ársfjórðungi. Vegna áframhaldandi óvissu í ljósi heimsfaraldursins mun félagið ekki gefa út afkomuspá fyrir árið 2021. Viðskipti innlent 29.4.2021 19:44
Fyrsta flug Play áætlað 24. júní? Stjórnendur Play hafa ákveðið að fyrsta flug félagsins fari í loftið 24. júní næstkomandi, hefur ViðskiptaMogginn eftir heimildarmönnum. Samkvæmt sömu einstaklingum sé áfangastaðurinn „hernaðarleyndarmál“ en tilkynnt verði um hann á næstunni. Viðskipti innlent 28.4.2021 06:36
Byggjum upp Egilsstaðaflugvöll! Þrátt fyrir víðsjá í efnahagsmálum er sannfæring mín að nauðsyn sé að horfa til framtíðar varðandi uppbyggingu innviða landsins. Við megum ekki láta það kröfuharða verkefni sem heimsfaraldurinn er byrgja framtíðarsýn. Skoðun 23.4.2021 08:36
Play birtir lista yfir stærstu hluthafa sína Flugfélagið Play hefur birt lista yfir 16 stærstu hluthafana í félaginu. Félagið lauk nýlega hlutafjárútboði þar sem fjárfest var fyrir rúmlega fjörutíu milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði vel á sjötta milljarðs króna. Viðskipti innlent 21.4.2021 12:28
Telja losun færast í fyrra horf strax á þessu ári Tímabundinn samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda vegna kórónuveirufaraldursins í fyrra gengur nær algerlega til baka á þessu ári ef marka má spá Alþjóðaorkumálastofnunarinnar (IEA). Útlit er fyrir mestu aukningu í losun á milli ára í meira en áratug. Erlent 20.4.2021 14:05
United Airlines hyggst fljúga til Keflavíkur í sumar Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur tilkynnt að það hyggist hefja aftur flug til Íslands nú í sumar. Flogið verður frá Keflavík til New York og Chicago. Viðskipti innlent 19.4.2021 12:59
Forstjóri Play: „Þetta verður erfitt, flókið og hratt“ Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segist aldrei hafa verið „eins spenntur fyrir neinu á ævinni og tækifærinu sem Play hefur til að ná árangri.“ Félagið býr sig nú undir að hefja starfsemi og er um þessar mundir meðal annars auglýst eftir framkvæmdastjórum fjármálasviðs og sölu- og markaðssviðs. Viðskipti innlent 17.4.2021 10:54
Mögnuð tilfinning að taka flugprófið yfir eldgosi „Ég fékk fyrst áhuga á flugi þegar ég var í níunda eða tíunda bekk þegar það kom flugmaður í grunnskólann minn og hélt kynningu um flug,“ segir Birta Óskarsdóttir, nýútskrifaður atvinnuflugmaður. Lífið 17.4.2021 07:31
Raquelita Rós og Þórhildur Rún nýir forstöðumenn hjá Isavia Raquelita Rós Aguilar og Þórhildur Rún Guðjónsdóttir hafa verið ráðnar sem nýir forstöðumenn hjá Isavia. Viðskipti innlent 16.4.2021 08:57
Samgöngustofa veitti röng og misvísandi svör þegar WOW air var í basli Samgöngustofa er gagnrýnd harðlega í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar á falli WOW air. Viðskiptalegir hagsmunir flugfélagsins virðist í einhverjum tilvikum hafa verið hafðir að leiðarljósi. Viðskipti innlent 14.4.2021 15:08
Um bólusetningu flugáhafna Víða um heim leggja yfirvöld áherslu á að bólusetja flugáhafnir sínar til að liðka fyrir bæði nauðsynlegum vöruflutningum og endurreisn ferðaþjónustunnar. Þegar bólusetningarferli flugáhafna víðsvegar um heiminn eru skoðuð bendir flest til þess að íslenskar áhafnir séu mjög aftarlega i ferlinu. Skoðun 14.4.2021 12:01
Fiskisund og Birta í hópi stærstu hlutahafa Play Fjárfestingafélagið Fiskisund, sem Einar Örn Ólafsson fjárfestir fer fyrir, og lífeyrissjóðurinn Birta verða í hópi þriggja stærstu hluthafa Play í kjölfar nýafstaðins hlutafjárútboðs hins verðandi flugfélags. Viðskipti innlent 14.4.2021 07:10
Fastagestur á gosstöðvunum á flugvél sem pabbi hans smíðaði Arnar Þór Emilsson flugmaður sem lenti lítilli vél við gosstöðvarnar í morgun er líklega einn fárra flugmanna hér á landi sem flýgur flugvél sem pabbi hans smíðaði. Vélin er tveggja manna og auðvelt að lenda svo til hvar sem er, til dæmis á Fagradalsfjalli. Innlent 12.4.2021 15:19
Birgir Jónsson nýr forstjóri Play Birgir Jónsson hefur verið kynntur til sögunnar sem forstjóri flugfélagsins Play. Hann staðfestir ráðninguna við fréttastofu. Túristi og Fréttablaðið greindu fyrst frá. Viðskipti innlent 12.4.2021 13:35
Hættustigi lýst yfir þegar vél með skakkt hjól þurfti að lenda Hættustigi var lýst yfir á Keflavíkurflugvelli á fjórða tímanum í dag þegar í ljós kom að nefhjól einkaþotu sem tekið hafði á loft frá flugvellinum hafði skekkst. Mikill viðbúnaður var á vellinum þegar vélin lenti, en engan sakaði. Innlent 10.4.2021 16:34
Flugvél Emirates þurfti að losa sig við eldsneyti fyrir lendingu í Keflavík Boeing 777 flugvél flugfélagsins Emirates, sem var á leið frá Dubai til Toronto í Kanada, þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli nú síðdegis. Vélin þurfti að losa sig við eldsneyti til að létta vélina svo að hún fengi að lenda á flugvellinum og gerði það yfir Hafnarfirði. Innlent 9.4.2021 18:08
Ráðin í starf markaðsstjóra Flugakademíunnar Alexandra Tómasdóttir hefur verið ráðin í starf markaðsstjóra Flugakademíu Íslands. Alexandra starfaði áður sem markaðsstjóri Private Travel þar sem hún hóf störf árið 2016. Viðskipti innlent 8.4.2021 13:14
Ferðamannastraumurinn hefst líklega ekki fyrr en í haust Sex sinnum fleiri komur og brottfarir verða um Keflavíkurflugvöll um páskana en í fyrra. Þær eru þó tífalt færri en árið 2019. Ferðamálastjóri telur eldgosið í Geldingadölum verða fjölfarnasta ferðamannastað landsins næstu misseri en er ekki bjartsýnn á sumarið. Innlent 30.3.2021 19:00
Tvö ár frá falli WOW Air: „Við gleymdum okkur í velgengninni“ „Ég á erfitt með að trúa því að þegar séu liðin tvö ár frá því að WOW air flaug sitt síðasta flug og ég þurfti að horfast í augu við þá staðreynd að þessu ótrúlega ævintýri væri lokið,“ svona hefst færsla Skúla Mogensen, eigandi hins fallna flugfélags WOW air, sem hann birti á Facebook í kvöld. Viðskipti innlent 28.3.2021 21:37
„Farþegum er bara blandað saman“ Íslendingur sem ferðaðist hingað til lands frá Kaupmannahöfn um helgina segir farir sínar ekki sléttar eftir flug með Icelandair frá til Keflavíkur nú um helgina. Vélin kom til Kaupmannahafnar hálffull af farþegum frá Stokkhólmi. Viðskipti innlent 28.3.2021 16:24
Engan sakaði þegar flugvél þurfti að lenda vegna reyks í flugstjórnarklefa Kafbátaeftirlitsflugvél á vegum bandaríska sjóhersins af gerðinni P8 var nýfarin á loft á Keflavíkurflugvelli í morgun þegar hún þurfti að lenda vegna reyks í flugstjórnarklefa. Innlent 28.3.2021 11:42
Hefðu átt að velja annan varaflugvöll áður en lagt var í „martraðarflugið“ Illa var staðið að vali á varaflugvelli miðað við veðurskilyrði þegar flugvél Icelandair var flogið til Manchester 23. febrúar 2017. Þá var óveðursboðum ekki gerð nægilega góð skil í flugáætlun umræddan morgun. Þetta kemur fram í lokaskýrslu rannsóknarnefndar samgönguslysa sem birt var í dag. Innlent 26.3.2021 20:19
Með „einhver örlítil einkenni“ sem hann tengdi engan veginn við Covid Tvöfalt fleiri eru í sóttkví í dag en í gær eða um þrettánhundruð manns. Einn þeirra sex sem greindist smitaður af kórónuveirunni í gær var utan sóttkvíar. Flugmaður hjá flugfélaginu Erni smitaðist í gær og var utan sóttkvíar. Innlent 26.3.2021 20:00
Þynging og sýkna í innherjasvikamáli í Icelandair Landsréttur staðfesti í dag þriggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir Kristjáni Georg Jósteinssyni í Icelandair-innhverjasvikamálinu. Þá var dómur yfir Kjartani Jónssyni þyngdur úr átján mánuðum í tvö ár. Kjartan Bergur Jónsson, sem fékk fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm í héraði, var sýknaður í Landsrétti. Viðskipti innlent 26.3.2021 16:21
Aflýsa öllum flugferðum vegna smits flugmanns Þorri starfsfólks flugfélagsins Ernis er í sóttkví eftir að kórónuveiru smit „læddist inn fyrir dyrnar“ líkt og það er orðað í stöðuuppfærslu á Facebooksíðu flugfélagsins. Innlent 26.3.2021 13:49