Rússland

Rússar vona að samtöl Pútín og Trump verði ekki opinberuð
Þetta sagði Dmitry Peskov, talsmaður Pútín, í morgun varðandi opinberun uppskriftar símtals Trump og Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu.

Sömdu við hann um leið og hann losnaði úr fangelsinu
Rússneska félagið Zenit St Petersburg hefur gert eins árs samning við Aleksandr Kokorin en leikmaðurinn var að sleppa úr fangelsi.

Maður leiksins fékk AK-47 riffil í verðlaun
Savely Kononov, markvörður íshokkí liðsins Izhstal, sem leikur í B-deildinni í Rússlandi fékk heldur betur athyglisverð verðlaun á dögunum.

Rússar segja njósnara fyllibyttu án aðgangs að leyndarmálum
Yfirvöld og fjölmiðlar í Rússlandi hafa í kjölfar þess að opinbert var að Bandaríkin hefðu komið rússneskum njósnara til Bandaríkjanna, unnið hörðum hönum að því að grafa undan manninum.

Loftárásir Bandaríkjamanna, Rússa og Sýrlandshers taldar stríðsglæpir
Óbreyttir borgarar féllu í árásum síðasta árið, að sögn rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna.

Rússar gefa lítið fyrir fréttir um njósnara í Kreml
Kremlverjar fullyrða að meintur njósnari Bandaríkjanna hafi hvorki verið hátt settur né haft aðgang að Pútín forseta, þvert á það sem bandrískir fjölmiðlar hafa sagt.

CIA kom mikilvægum njósnara undan eftir fund Trump með Rússum
Njósnarinn var sá hæst setti sem Bandaríkin höfðu í Kreml og veitti mikilvægar upplýsingar um afskipti Rússa af forsetakosningunum árið 2016.

Stjórnarflokkur Putin missir þrettán sæti í borgarstjórnarkosningum í Moskvu
Stjórnarflokkur Rússlands, flokkurinn Sameinað Rússland, beið mikinn ósigur í kosningum til borgarstjórnar Moskvu sem fóru fram á sunnudag.

Skamma Facebook og Google fyrir „afskipti“ af kosningum í Rússlandi
Rússneska eftirlitsstofnunin Roskomnadzor gagnrýndi tæknifyrirtækin Facebook og Google í dag og sagði fyrirtækin hafa dreift pólitískum auglýsingum í Rússlandi.

Úkraínumenn og Rússar skiptust á föngum
Úkraínumenn og Rússar skiptust á föngum í dag eftir leynilegar viðræður á milli yfirvalda ríkjanna.

Bauðst til að selja Trump nýja hljóðfráa eldflaug
Vladimir Pútín, forseti Rússlands, segir að Rússar muni framleiða nýjar tegundir eldflauga sem voru áður bannaðar í sáttmála á milli Rússlands og Bandaríkjanna (INF) sem rann út í síðasta mánuði.

Höfnuðu kröfu saksóknara um að svipta mótmælendur forræði yfir börnum sínum
Í stað þess að svipta tvenn hjón forræði ákváðu rússneskir dómstólar í dag að aðvörun væri nægileg. Saksóknarar höfðu farið fram á að hjónin yrðu svipt forræði eftir að þau tóku þátt í mótmælum stjórnarandstæðinga.

Vilja samkomulag um olíusölu sem fyrst
Yfirvöld Íran munu segja skilið við kjarnorkusamkomulagið svokallaða verði nýtt samkomulag ekki gert fyrir lok þessarar viku.

Ísland passi fullkomlega í innviðaverkefni Kínverja
Á meðan varaforseti Bandaríkjanna hefur áhyggjur af innrásum Kína og Rússlands inn á Norðurslóðir setur Kína ekkert út á frekari þróun tvíhliða sambands Íslands við Bandaríkin.

Áframhaldandi mótmæli marka lengstu mótmælaöldu í Rússlandi í fleiri ár
Þúsundir Rússa flykktust um götur Moskvu í dag til þess að krefjast frjálsra kosninga til borgarráðs þann 8. september næstkomandi.

Líklegt að uppáhalds hershöfðingi Napóelons hafi fundist undir dansgólfi
Fornleifafræðingar munu í dag kynna niðurstöðu á DNA-greiningu á jarðneskum leifum sem fundust undir dansgólfi í rússnesku borginni Smolensk í sumar. Vonir standa til að leifarnar séu af Charles-Étienne Gudin, uppáhalds hershöfðingja Napóelon Bónaparte, sem lést í innrás Napóleons í Rússland á 19. öldinni.

Vilja meira en 115 milljónir dollara í bætur frá Boeing vegna MAX-vélanna
Rússneska flugvélaleigufyrirtækið Avia hefur höfðað mál á hendur bandaríska flugvélaframleiðandanum Boeing vegna 737 MAX 8-vélanna sem voru kyrrsettar um allan heim fyrr á þessu ári eftir tvö mannskæð flugslys.

Flutti fréttir með úðarann í andlitinu | Myndband
Rússneski íþróttafréttamaðurinn Evgeniy Evnevich sýndi af sér aðdáunarverða fagmennsku er hann flutti fréttir frá heimavelli CSKA Moskvu í gær.

Ekki fræðilegur möguleiki að Rússum verði boðið í hópinn á ný
Forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins segir að á síðustu árum hefðu Rússar sýnt að þeir séu ekki lengur í hópi þeirra landa sem hafa mannréttindi, lög og reglur og frjálslynt lýðræði í hávegum.

Navalny sleppt úr haldi
Rússneska stjórnarandstæðingnum Alexei Navalny hefur verið sleppt úr haldi en hann hefur setið inni í þrjátíu daga eftir að hafa hvatt til mótmæla til þess að krefjast kosninga í Rússlandi.

Rússar skjóta „fullvaxta“ vélmenni út í geim
Rússar skutu eldflaug sem inniheldur vélmenni á stærð við fullorðna manneskju út í geim í dag. Áfangastaður vélmennisins er Alþjóðlega geimstöðin (ISS).

Rússnesk frjálsíþróttakona lést á miðri æfingu
Rússneska frjálsíþróttakonan, Margarita Plavunova, lést á æfingu í vikunni eftir að hún fékk hjartaáfall.

Mældu geislavirkni í Noregi eftir sprenginguna í Rússlandi
Ekki liggur fyrir hvort að geislavirkt joð sem greindist í Norður-Noregi sé ættað frá spreningu í litlum kjarnaofni í norðvestanverðu Rússlandi.

Fékk máva í hreyflana
Tuttugu og þrír farþegar rússneskrar farþegaþotu eru slasaðir eftir að vélin flaug inn í fuglasverm og þurfti að nauðlenda á engi nærri Moskvu.

Fjögur ár frá viðskiptaþvingunum Rússa: „Mikilvægt fyrir alla að alþjóðalög haldi“
Fjögur ár eru í dag frá því að Rússar lögðu viðskiptabann á Ísland. Bannið var svar við alþjóðlegum þvingunaraðgerðum gegn Rússlandi sem Ísland tekur þátt í. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi segja of mikla hagsmuni í húfi og ekki sé hægt að réttlæta þáttöku Íslands í þvingunaraðgerðunum.

Yfirvöld í Rússlandi tjá sig um sprenginguna: „Slysin gerast, því miður“
Yfirvöld í Rússlandi hafa loks tjáð sig sprenginguna sem varð á tilraunasvæði rússneska hersins í nágrenni við borgina Severodvinsk á fimmtudag

Geislun margfaldaðist eftir sprenginguna í Rússlandi
Mælingar veðurstofu Rússlands á geislun í Severodvinsk stangast á við yfirlýsingar varnarmálaráðuneytisins um að engin aukning hafi orðið í geislun eftir sprengingu á æfingarsvæði hersins í síðustu viku.

Óttast að dularfullar sprengingar tengist nýjum kjarnavopnum
Kjarnorkustofnun Rússlands viðurkenndi í fyrsta skipti í gær að sprenging hefði orðið í litlum kjarnaofni á fimmtudag. Sjö fórust.

Fimm látnir eftir kjarnorkuslys í Rússlandi
Minnst fimm eru látnir og þrír slasaðir eftir að eldflaug sprakk á tilraunasvæði við strendur Norður-Íshafsins í Rússlandi á fimmtudag.

Fimm nú sagðir látnir í eldflaugarslysi í Rússlandi
Engin skýring hefur verið gefin á geislavirkni sem mældist eftir sprenginguna og tilkynning um aukna geislun hvarf skyndilega af netinu í dag.