
Reykjavík

Fundu lyfjaleifar við Klettagarða, í Tjörninni og í Kópavogslæk
Leifar af ýmsum lyfjum og hormónum fundust í sýnum sem voru tekin úr hafinu við Kletttagarði í Reykjavík, í Tjörninni og í Kópavogslæk. Efnin eru á evrópskum vaktlista yfir efni sem eru talin ógn við vatnaumhverfi.

Rosaleg röð í skimun sem nær langt upp í Ármúla
Mikið álag virðist vera við sýnatöku Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu í dag. Sýnataka vegna kórónuveirunnar sem veldur Covid-19 fer fram í Orkuhúsinu á horni Grensásvegar og Suðurlandsbrautar.

Eldur í lyftara á vörulager í Súðarvogi
Slökkvilið var kallað út um klukkan fjögur í nótt eftir að eldur kom upp í lyftara innanhúss á vörulager í Súðarvogi í Reykjavík í nótt.

Fimm smitaðir í Klettaskóla og 70 börn í sóttkví
Tveir nemendur Klettaskóla, sérskóla fyrir börn með þroskahömlun, og þrír starfsmenn sem sinna nemendum þar hafa greinst með kórónuveiruna.

Starfsmaður Hrafnistu með kórónuveiruna
Starfsmaður dvalarheimilisins Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi greindist í dag með kórónuveiruna.

Vesturbæingar ánægðastir með göngugötur en Grafarvogsbúar neikvæðastir
Ánægja með göngugötur í miðborginni eykst á milli ára. Fólk sem nýtir sér göngugötur er almennt ánægðara með þær en fólk sem heimsækir þær sjaldnar.

Nýta lokun til að skipta út einstaka sýningum og huga að safneign
Söfnum Reykjavíkurborgar verður lokað frá og með deginum í dag til og með 19. október. Er það gert í ljósi hertra sóttvarnaraðgerða vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar.

Enginn hænsnakofi hjá Felix og Baldri
Fjölmiðlamaðurinn Felix Bergsson og Baldur Þórhallsson, prófessor við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands, fengu ekki leyfi frá borginni að vera með hænsnakofa við lóð sína við Starhaga 5 í vestur í bæ.

Loka pósthúsinu við Síðumúla eftir smit
Pósthúsið í Síðumúla verður lokað í dag vegna Covid-19 smits sem kom upp hjá starfsmanni. Aðrir starfsmenn hafa verið sendir í sóttkví og verða prófaðir í dag.

Malbikið á Kjalarnesi stóðst alls ekki kröfur
Miklu munaði á að malbik sem lagt var á kafla á Kjalarnesi í sumar stæðist kröfur. Tveir létust á hálu malbikinu í sumar og leiða niðurstöður rannsóknar í ljós að hvorki kröfum um hemlunarviðnám hafi verið fullnægt né kröfum um holrýmd. Kaflinn hefur verið malbikaður upp á nýtt.

Sundlaugum verði lokað á höfuðborgarsvæðinu
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir leggur til við heilbrigðisráðherra að sundlaugum verði lokað á höfuðborgarsvæðinu næstu vikur á meðan verið sé að ná tökum á kórónuveirufaraldurinn hér á landi.

Slitu borgarstjórnarfundi vegna ástandsins
Borgarstjórnarfundi var slitið rétt í þessu þar sem borgarstjóri fór yfir stöðu mála vegna nýjustu þróunar í COVID-19 smitum á höfuðborgarsvæðinu.

Breiðholtslaug lokað eftir smit starfsmanns
Breiðholtslaug verður lokuð næstu daga vegna sótthreinsunar og úrvinnslusóttkvíar starfsmanna eftir að smit kom upp hjá einum starfsmanni.

Fjögurra gesta gistiskýlisins á Granda enn leitað eftir að smit kom þar upp
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar enn fjögurra gesta gistiskýlisins úti á Granda til að færa þá í sóttvarnahúsið á Rauðarárstíg eftir að einn gestur gistiskýlisins greindist með Covid-19.

Átök í sóttvarnarhúsinu við Rauðarárstíg
Laust fyrir klukkan hálfátta í gærkvöldi var lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynnt um mann í sóttkví sem var að strjúka frá sóttvarnarhúsinu á Rauðarárstíg.

Sendiráð Bandaríkjanna festi kaup á 500 fermetra einbýlishúsi í eigu Andra og Valgerðar
Andri Már Ingólfsson, fyrrverandi aðaleigandi Primera Air sem var tekið til gjaldþrotaskipta haustið 2018, og Valgerður Franklínsdóttir hafa selt einbýlishús sitt við Sólvallagötu 14 en eignin var skráð á Valgerði.

Lögregla kölluð til vegna átaka 12 ára barna
Skömmu fyrir klukkan hálftíu í gærkvöldi barst lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu tilkynning um líkamsárás í Hafnarfirði.

Smit kom upp í félagsmiðstöðinni Öskju
Askja er félagsmiðstöð fyrir unglinga í Klettaskóla.

Líkamsræktarhluta Mjölnis lokað en öðru íþróttastarfi haldið áfram
Mjölnir hefur sent fyrirspurn til yfirvalda til að fá nánari upplýsingar um hvernig fyrirhugaðar aðgerðir hafi áhrif á starfsemina.

Röktu fólk til Irishman Pub með kortafærslum
Greiðslukortafærslur hafa verið nýttar við smitrakningu. Til að mynda til að finna út hverjir voru útsettir fyrir smiti á Irishman Pub.

Segja leigubílstjóra hafa sýnt frekar slæma hegðun í umferðinni
Í tilkynningu segir að lögregluþjónar hafi horft á leigubílstjóra í eftirlitsmyndavélum og séð þá aka ítrekað eftir gangstéttum og göngugötum og þeir hafi sömuleiðis stöðvað á gatnamótum og truflað umferð.

Smit á leikskóla í Seljahverfi
Smit hefur komið upp á leikskólanum Seljaborg í Seljahverfi í Breiðholti.

Brunaútkall í Sorpu beint eftir brunann á Skemmuvegi
Eldur kom upp í pressugámi á endurvinnslustöð Sorpu á Granda

Vilja ekki að fólk á aldrinum 18 til 29 komi í heimsókn á Hrafnistu
Aðeins einn gestur má heimsækja hvern íbúa og er mælst til þess að viðkomandi sé „nánast í sjálfskipaðri sóttkví.“

Smit hjá íbúa á Hrafnistu og allir í sóttkví
Íbúi á Hrafnistu Ísafold í Garðabæ greindist með kórónuveirusmit í kvöld.

Grunsamlegur maður reyndist eftirlýstur
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um grunsamlegar mannaferðir í miðborginni í dag.

Betri samgöngur ohf. orðið að veruleika
Ríkið og sex sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu, Garðabær, Hafnarfjörður, Kópavogur, Mosfellsbær, Reykjavík og Seltjarnarnes, hafa gengið frá stofnun opinbers hlutafélags um uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu.

Staðfesti fimm ára dóm fyrir gróft ofbeldi og nauðgun
Landsréttur staðfesti í dag fimm ára fangelsisdóm yfir karlmanni sem beitti sambýliskonu sína grófu ofbeldi og nauðgaði í íbúðargámi. Maðurinn hefur áður hlotið fangelsisdóm fyrir að beita sömu konu ofbeldi.

Handtekinn með öxi á almannafæri
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók mann í morgun sem hafði verið með öxi á almannafæri.

Þrífa á Fossvogsskóla sem aldrei fyrr
Náttúrufræðistofnun Íslands telur líklegt að umfangsmiklar framkvæmdir á liðnum misserum til að uppræta leka- og rakavandamál í Fossvogsskóla hafi borið árangur, m.a. með því að fjarlægja skemmt byggingarefni.