Bólusetningar

Óska eftir kælibílum til að anna umframeftirspurn hjá útfararstofum og líkhúsum
Yfirvöld í tveimur sýslum í Oregon í Bandaríkjunum hafa óskað eftir flutningabifreiðum með kæligeymslum til að höndla þann fjölda líka sem nú safnast upp á sjúkrahúsum, útfararstofum og líkbrennslum.

Fyrsta dauðsfallið á Nýja-Sjálandi sem tengt er bóluefninu frá Pfizer
Yfirvöld á Nýja-Sjálandi hafa tilkynnt um fyrsta dauðsfallið sem er talið tengjast bólusetningu með Covid-19 bóluefninu frá Pfizer. Eftirlitsnefnd segir konuna líklega hafa látist af völdum hjartavöðvabólgu í kjölfar bólusetningar.

Delta tvöfaldaði líkur á sjúkrahúsinnlögnum
Fólk sem smitaðist af delta-afbrigði kórónuveirunnar var tvöfalt líklegra til að þurfa að leggjast inn á sjúkrahús en þeir sem fengu alfa-afbrigðið sem var algengast við upphafi faraldursins í Bretlandi.

Átta hafa sótt um bætur vegna aukaverkana eftir bólusetningu
Átta hafa sótt um bætur til Sjúkratrygginga Íslands vegna aukaverkana í kjölfar bólusetninga gegn Covid-19. Ekki er búið að fara yfir umsóknirnar en forsenda greiðslu eru klár orsakatengsl milli bólusetninganna og meints tjóns.

Aflétting aðgerða: 500 mega koma saman ef þátttakendur framvísa niðurstöðum hraðprófs
Engar takmarkanir verða á sundstöðum og líkamsræktarstöðvum þegar nýjar sóttvarnareglur taka gildi. Þá mega 200 koma saman á íþróttaæfingum og á veitingahúsum og skemmtistöðum. Aðgerðirnar eiga að taka gildi 28. ágúst næstkomandi og gilda í þrjár vikur.

Stöðva notkun bóluefnis Moderna eftir að agnir fundust í lyfjaglösum
Heilbrigðisyfirvöld í Japan og bóluefnaframleiðandinn Moderna hafa ákveðið að bíða með notkun 1,6 milljón bóluefnaskammta eftir að agnir fundust í nokkrum skömmtum af 560 þúsund skammta framleiðslulotu.

Dregur nokkuð úr vörninni eftir því sem mánuðirnir líða
Vísindamenn segja nokkuð draga úr vörn bóluefna Pfizer og AstraZeneca eftir því sem líður frá bólusetningu. Við þessu sé þó að búast og að bóluefnin veiti áfram góða vörn.

Missti stjórn á sér og stuggaði við mótmælandanum
Faðir barns sem fékk bólusetningu í morgun hálf sér eftir að hafa stuggað við mótmælanda sem hrópaði að börnunum að þau væru að fara að láta sprauta í sig efnavopni. Hann kveðst kannast við manninn og viljað koma honum í burtu frá börnunum.

Myndir af Arnarhóli sagðar af Covid-mótmælum í Frakklandi
Myndbandi af Íslendingum að fagna gengi karlalandsliðsins í fótbolta á Evrópumeistaramótinu árið 2016 hefur verið dreift víða í Frakklandi og myndbandið sagt af mótmælum gegn svokölluðum bólusetningarvegabréfum.

Mótmælandi hrópaði á foreldra og börn sem biðu eftir bólusetningu
Mótmælandi lét ókvæðisorð falla að foreldrum sem biðu með börnum sínum í röð eftir bólusetningu fyrir utan Laugardalshöll í morgun.

Varaði við „þjóðernis-bólusetningarstefnu“
Tedros Adhanom Ghebreyesus, aðalframkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, varaði við þjóðernis-bólusetningastefnu og óréttlæti í bólusetningum á fundi með utanríkisráðherra Ungverjalands í gær.

Um tveir þriðju boðaðra barna mættu í bólusetningu
Um fjögur þúsund börn úr tveimur árgöngum mættu til bólusetningar í Laugardalshöll í dag. Tveir árgangar voru bólusettir, börn fædd 2006 og 2007, og var nokkuð jafnræði milli árganga ef litið er til mætingar. Þetta er fyrsti dagurinn þar sem börn undir sextán ára aldri eru bólusett við Covid-19 á höfuðborgarsvæðinu.

Bóluefni Pfizer fær fullt markaðsleyfi í Bandaríkjunum
Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna (FDA) hefur samþykkt alfarið notkun bóluefnis Pfizer og BioNTech við kórónuveirunni í Bandaríkjunum. Hingað til hefur bóluefnið verið notað í skjóli neyðarleyfis. Talið er að ákvörðunin gæti hvatt fleiri Bandaríkjamenn til að láta bólusetja sig.

Hefja notkun á heimalöguðu bóluefni
Forseti Taívans reið á vaðið í dag og var á meðal þeirra fyrstu sem fengu nýtt innlent bóluefni gegn kórónuveirunni. Gagnrýnisraddir eru þó uppi um að notkun efnisins hafi verið samþykkt of hratt.

Fleiri foreldrar sem hringi og vilja koma börnum fyrr að
Bólusetningar hjá tólf til fimmtán ára börnum hófust í Laugardalshöll í morgun. Básar hafa verið settir upp fyrir börn sem kvíða sprautinni og sjúkrarúmum fjölgað vegna hættu á yfirliði. Skólahjúkrunarfræðingar sjá um bólusetninguna.

Örvunarskammtar draga verulega úr smithættu í Ísrael
Þriðji skammturinn af bóluefni Pfizer dró verulega úr líkum á smiti og alvarlegum veikindum hjá sextugu fólki og eldra borið saman við þá sem fengu tvo skammta samkvæmt upplýsingum ísraelskra heilbrigðisyfirvalda.

Bólusetningar barna hefjast í Laugardalshöll
Bólusetningar barna á aldrinum 12 til 15 ára hefjast í Laugardalshöll í dag en áætlað er að um 10 þúsund börn á höfuðborgarsvæðinu verði bólusett þar í dag og á morgun.

Börn leitað til umboðsmanns vegna bólusetningar
Börn hafa leitað til embættis umboðsmanns barna vegna bólusetninga sem hefjast á morgun. Umboðsmaður leggur áherslu á að börn og foreldrar gefi sér tíma til þess að ræða ávinning og áhættu bólusetninga til þess að unnt sé að taka upplýsta ákvörðun.

Von á rúmlega tíu þúsund börnum í Laugardalshöll á morgun og þriðjudag
Von er á rúmlega tíu þúsund börnum í Laugardalshöll á morgun og hinn þegar ráðist verður í bólusetningu barna á höfuðborgarsvæðinu. Foreldrar eru beðnir um að fylgja börnum sínum.

Vilja að farið verði varlega í fulla bólusetningu á börnum
Tveir hjartalæknar leggja til að varlega verði farið í fulla bólusetningu hjá börnum. Þeir skora á sóttvarnayfirvöld að gefa ekki fleiri skammta af bóluefnum en nauðsynlegt er með tilliti til ávinnings og áhættu.

Telur ólíklegt að bólusetningum barna verði mótmælt í Laugardalshöll
Á Íslandi hafa nú 262.291 verið fullbólusettir gegn veirunni en örvunarbólusetningar hafa staðið yfir í vikunni hjá fólki sem fékk bóluefni Janssen fyrr í sumar. Aðeins um helmingur þeirra sem fékk boð í örvunarbólusetningu þáði það boð.

Um vegna áhættu og ábata
Reglur um sóttkví barna og ungmenna munu valda uppnámi á næstu vikum. Það blasir við að þúsundir barna munu lenda í sóttkví og fullbólusettir foreldrar þeirra og systkini í mörgum tilvikum. Skólastarf verður slitrótt.

Efast um þörfina á örvunarskömmtum
Efasemdaraddir eru uppi á meðal heilbrigðisvísindamanna um þörfina á því að gefa fólki örvunarskammta af bóluefni gegn kórónuveirunni. Ekki sé ljóst að virkni efnanna gegn alvarlegum veikindum minnki með tímanum og þá sé brýnna að bólusetja þá sem hafa enn ekki verið bólusettir víðsvegar um heim.

Delta mallar og breiðist hratt út í Flórída
Delta afbrigði kórónuveirunnar er í mikilli og vaxandi útbreiðslu í Flórída í Bandaríkjunum. Þannig voru 532 Covid-sjúklingar á Babtista sjúkrahúsum í ríkinu á miðvikudag, tvöfalt fleiri en þegar veiran fór á flug í júlímánuði.

Uppgangur mislinga og mænusóttar vegna skertrar heilbrigðisþjónustu áhyggjuefni
Framkvæmdastjóri UNICEF á Íslandi segir stöðu bólusetninga alþjóðlega mikið áhyggjumál. Nauðsynlegt sé að framlínufólk í heiminum öllum sé bólusett gegn Covid sem fyrst því hætta steðji ekki aðeins af kórónuveirunni heldur fjölda annarra sótta sem herji nú á í fátækari ríkjum.

Þvingað samþykki?
Á mánudag var íbúum hjúkrunarheimila boðin þriðja sprautan vegna Covid-19. Þau voru með þeim fyrstu til að fá sprautur, milli jóla og nýárs. Almenningi var einnig boðin önnur eða þriðja sprautan í Laugardagshöll.

Virkni bóluefna Pfizer og AstraZeneca gegn delta virðist dvína
Greining á gögnum frá Bretlandi bendir til þess að virkni bóluefna Pfizer og AstraZeneca gegn delta-afbrigði kórónuveirunnar dvíni nokkuð að þremur mánuðum liðnum. Þau veita þó áfram sterka vernd gegn alvarlegum veikindum.

Örvunarskammtar ríku þjóðanna eins og að útdeila öðru björgunarvesti á meðan aðrir drukkna án vestis
Embættismenn Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar eru harðorðir í garð þeirra þjóða sem byrjað hafa að útdeila örvunarskömmtum á bóluefni gegn kórónuveirunni á sama tíma og milljónir manna séu enn óbólusettir víða um heim. Er þessu líkt við það að gefa einstaklingum björgunarvesti númer tvö á sama tíma og aðrir séu án björgunarvestis.

Átta tilkynningar um lömun eða skerta hreyfigetu eftir bólusetningu
Lyfjastofnun hefur fengið alls átta tilkynningar um lömun eða skerta hreyfigetu í kjölfar bólusetninga. Alvarlegust þeirra er frá ungri konu sem fjallað var um að hefði lamast fyrir neðan mitti, stuttu eftir örvunarbólusetningu með bóluefni Moderna.

WHO varar við falsbóluefnum og kallar eftir að þau verði tekin úr umferð
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) segist hafa orðið þess áskynja að falsbóluefni við kórónuveirunni væru í umferð í Indlandi og Afríku. Þeir skammtar sem vitað er af hafa verið teknir úr umferð.