Ferðaþjónustan og vaskurinn Fyrr í dag buðu Samtök ferðaþjónustunnar (SAF) til morgunfundar sem tileinkaður var sérstakri umræðu um íslenska ferðaþjónustu og virðisaukaskatt. Skoðun 22. maí 2024 17:00
Hátt verð fæli ferðamanninn frá Íslandi Blikur eru á lofti þegar kemur að bókunum ferðamanna á hótelgistingu hér á landi í sumar. Færri bókanir voru í apríl heldur en verið hefur. Formaður Félags fyrirtækja í hótel og gistiþjónustu segir Ísland dýrt og það sé farið að hafa áhrif. Viðskipti innlent 22. maí 2024 16:39
Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað Fyrsta áætlunarflugi Icelandair til Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum var fagnað með borðaklippingu, bæði við brottför frá Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær og einnig við komuna til Pittsburgh í gærkvöldi. Félagið hefur aldrei áður flogið til Pittsburgh en borgin er sextándi áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku og sá tólfti í Bandaríkjunum. Viðskipti 17. maí 2024 06:01
Fóru í fyrsta flugið milli Calgary og Keflavíkurflugvallar Kanadíska flugfélagið WestJet fór í dag í sínar fyrstu ferðir milli Calgary í Albertafylki og Keflavíkurflugvallar. Fyrsta fluginu var sérstaklega fagnað í morgun þar sem forstjóri Isavia og framkvæmdastjóri frá WestJet klipptu á borða áður en flogið var frá Keflavíkurflugvelli. Viðskipti innlent 16. maí 2024 15:52
Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela Opinn kynningarfundur vegna útboðs Íslandshótela á hlutabréfum félagsins fyrir skráningu á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hefst klukkan 10 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi. Samstarf 16. maí 2024 09:31
Náttúruminjasafn Íslands má sinna sýningahaldi! Samkeppniseftirlitið hefur nú lokið skoðun á kvörtun Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) og Perlu norðursins hf. (PN) frá því í janúar í fyrra vegna áforma Náttúruminjasafns Íslands, eins þriggja höfuðsafna landsins ásamt Þjóðminjasafni Íslands og Listasafni Íslands, um að starfrækja sýningu með ríkisframlagi í nýjum höfuðstöðvum safnsins á Seltjarnarnesi. Skoðun 16. maí 2024 09:31
Verðmetur Íslandshótel 45 prósentum yfir útboðsgengi fyrir minni fjárfesta Hlutafjárvirði Íslandshótela er metið á ríflega 41 milljarð króna samkvæmt nýrri verðmatsgreiningu vegna hlutafjárútboðs hótelkeðjunnar, umtalsvert meira sé miðað við útboðsgengið í tilfelli minni fjárfesta. Hlutabréfagreinandi telur að ferðaþjónustufyrirtækið, sem verður hið fyrsta til að fara á markað hér á landi, búi yfir tækifærum til vaxtar og tekjurnar fari að nálgast tuttugu milljarða á næsta ári. Innherji 15. maí 2024 17:56
Viltu koma í ferðalag? Ferðamál, ferðamennska og ferðamálafræði hefur verið ástríða mín lengi, og ég trúi því að nám í ferðamálafræði sé lykillinn að því að skilja ferðaþjónustuna og ferðamennsku og hvernig hún getur haft jákvæð áhrif á samfélagið okkar. Ferðamálafræði býður upp á einstakt tækifæri til að kafa djúpt í þessa spennandi og þverfaglegu námsgrein. Skoðun 15. maí 2024 17:00
Alfa Framtak bætir við hótelsamstæðuna og kaupir Magma Framtakssjóður Alfa Framtak hefur gengið frá kaupum á Magma hóteli sem er þrjá kílómetra frá Kirkjubæjarklaustri. „Við höfum trú á íslenskri ferðaþjónustu,“ segir fjárfestingarstjóri sjóðastýringarinnar. Innherji 13. maí 2024 19:23
„Í dag fæ ég næstum því bara hrós við matarborðið“ Pétur Óskarsson framkvæmdastjóri hjá Katla Travel og formaður SAF finnst gaman að elda og elskar ítalska eldhúsið og að vinna með villibráð sem hann veiðir sjálfur. Pétur segir börnin sín betur kunna að meta matseldina hans nú en þegar þau voru yngri. Atvinnulíf 11. maí 2024 10:00
Brottfarirnar í apríl nokkuð færri en á síðasta ári Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 137 þúsund í nýliðnum apríl samkvæmt mælingum Ferðamálastofu. Um er að ræða fimm þúsund færri brottfarir en mældust í apríl í fyrra (-3,5 prósent). Ríflega þriðjungur brottfara voru tilkomnar vegna Bandaríkjamanna og Breta. Viðskipti innlent 10. maí 2024 13:23
Þrír dæmigerðir dagar skemmtiferðaskipafarþega í júlí Sú jákvæða þróun hefur átt sér stað undanfarin misseri að fjölgun hefur orðið á ferðum skemmtiferðaskipa hingað til lands. Frá sjónarhóli efnahagslífs, mannlífs og náttúru þetta afar jákvæð þróun, þá ekki aðeins vegna þess að skipin bæta mikilvægri gátt við samgönguleiðir til Íslands, heldur einnig vegna þess að engum hluta ferðaþjónustu er eins vel stýrt m.t.t. álags á innviði, náttúru og menningu. Skoðun 9. maí 2024 09:00
Öllum aðgerðum aflýst og flugfarþegar geta andað léttar Samningar voru undirritaðir milli SA fyrir hönd ISAVIA ohf. og samninganefnda starfsmanna Sameykis og FFR rétt í þessu og verkföllum sem boðuð höfðu verið á Keflavíkurflugvelli aflýst. Innlent 7. maí 2024 22:00
Farþegum fjölgaði og sætanýting um 85 prósent Flugfélagið Play flutti rúmlega 122 þúsund farþega í apríl 2024, sem er 19 prósent meira en í apríl á síðasta ári. Sætanýtingin í apríl 2024 var 85,1 prósent, sem er aukning frá apríl í fyrra þegar sætanýting var 80,8 prósent. Viðskipti innlent 7. maí 2024 11:18
Ferðamannastaðir Færeyja lokaðir vegna viðhalds Helstu ferðamannastaðir Færeyja voru lokaðir í þrjá daga í síðustu viku vegna viðhalds. Eitthundrað sjálfboðaliðar frá tugum landa unnu á meðan við að lagfæra göngustíga, girðingar og þess háttar, verkefni sem sexþúsund manns úr öllum heimshornum sóttu um að fá að taka þátt í. Erlent 6. maí 2024 23:09
Flugfélögin grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða Íslensku flugfélögin ætla að grípa til ráðstafana vegna verkfallsaðgerða starfsmanna á Keflavíkurflugvelli sem að óbreyttu hefjast á fimmtudag og föstudag. Ótímabundið yfirvinnu- og þjálfunarbann hefst seinnipartinn á fimmtudag. Innlent 6. maí 2024 18:52
Yfir milljón farþegar fyrstu fjóra mánuði ársins Heildarfjöldi farþega Icelandair var 307 þúsund í apríl, fjórum prósentum fleiri en í apríl 2023. Það sem af er ári hefur félagið flutt meira en eina milljón farþega. Viðskipti innlent 6. maí 2024 17:36
Kostnaður vegna endurskipulagningar hjá Arctic Adventures litar afkomuna Talsvert var um einskiptiskostnað hjá Arctic Adventures vegna starfsmannabreytinga og endurskipulagningar á innra starfi félagsins á árinu 2023. Þótt tekjur hafi aukist um 37 prósent dróst hagnaður nokkuð saman af þeim völdum. Fyrirtækið keypti Kerið í Grímsnesi í fyrra en samkvæmt fjárhagsupplýsingum frá Arctic Adventures námu fjárfestingar í fasteignum og landi tæplega tveimur milljörðum. Innherji 6. maí 2024 16:48
Bjóða farþegum að breyta ferðum vegna mögulegs verkfalls Íslensku flugfélögin tvö, Icelandair og Play, mun bjóða farþegum sem ferðast frá Íslandi að flýta eða seinka flugferðum sínum á föstudag, en áætlanir flugfélaga í millilandaflugi gætu raskast þann dag komi til aðgerða starfsmanna Sameykis og FFR hjá Isavia á Keflavíkurflugvelli. Innlent 6. maí 2024 15:50
Hægagangur í viðræðum við flugvallarstarfsmenn og styttist í aðgerðir Áætlanir flugfélaga í millilandaflugi gætu raskast á fimmtudag og föstudag komi til aðgerða starfsmanna Sameykis og FFR hjá Ísavía á Keflavíkurflugvelli. Dauflegt er yfir kjaraviðræðum stéttarfélaganna tveggja við Samtök atvinnulífsins. Innlent 6. maí 2024 12:14
Viðræður „á viðkvæmu stigi“ og fundi frestað til morguns Fundi stéttarfélaga starfsmanna á Keflavíkurflugvelli og Samtaka atvinnulífsins með ríkissáttasemjara hefur verið frestað til morguns. Innlent 5. maí 2024 22:41
Frestun verkfalla kemur til greina Formaður Sameykis segir koma til greina að fresta verkfallsaðgerðum á Keflavíkurflugvelli. Hann fer bjartsýnn til fundar hjá ríkissáttasemjara og telur að mögulega verði hægt að ljúka samningum áður en aðgerðirnar skella á. Innlent 5. maí 2024 11:12
Fjöldi verkfallsboðana á Keflavíkurflugvelli áhyggjuefni Forstöðumaður hjá Samtökum atvinnulífsins segir áhyggjuefni hversu oft stéttarfélög með starfsmenn á Keflavíkurflugvelli boði til verkfalla. Samtökin muni fara fram á frestun aðgerða þegar sest verður aftur við samningaborðið. Innlent 3. maí 2024 19:02
Hvar er Reykjavegur? Árið 1995 vorum við Pétur Þorleifsson, ferðagarpur og rithöfundurt, fengnir til þess verkefnis að hanna langa gönguleið á Reykjanesskaga. Verkefnið var unnið undir stjórn Péturs Rafnssonar, þá formanns Ferðamálasamtaka höfuðborgarsvæðisins, á vegum sérstakrar samstarfsnefndar nær allra sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum. Skoðun 3. maí 2024 15:01
Samþykktu verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli Félagsmenn í Félagi flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) og Sameykis, stéttarfélags í almannaþjónustu, hafa samþykkt verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli. Um 80% félagsmanna FFR greiddu atkvæði með aðgerðunum. Innlent 2. maí 2024 14:29
Hagfræðin á Heimildinni Í samfélagsumræðunni undanfarið hefur það orðið að nokkurs konar samkvæmisleik að halda því fram að ferðaþjónusta eigi sök á flestu sem miður hefur farið í hagkerfinu undanfarin ár. Að sögn sjálfskipaðra sérfræðinga um efnahagsmál er hún orsök almennrar þenslu, verðbólgu, hárra stýrivaxta og framboðsskorts á húsnæðismarkaði. Skoðun 2. maí 2024 10:30
Icelandair flýgur til Færeyja að nýju Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Færeyja á ný eftir tuttugu ára hlé. Utanríkisráðherrar Íslands og Færeyja fagna áfanganum sem og flugstjóri fyrstu flugferðarinnar. Flogið verður fimm til sex sinnum í viku gegnt flugfélaginu Atlantic Airways sem hefur verið að fljúga á milli tvisvar til þrisvar í viku. Innlent 1. maí 2024 23:00
Íslensk fjara á lista yfir bestu strendur heims Eystri-Fellsfjara við Jökulsárlón er á lista yfir bestu strandir heims að mati ferðamálasérfræðinga. Þar er hún í fertugasta og fyrsta sæti af fimmtíu. Listinn er uppfærður á hverju ári og áður var Reynisfjara einnig á honum. Innlent 1. maí 2024 13:24
Hlutabréfaverð flugfélaganna fellur og smærri fjárfestar færa sig í Alvotech Hlutabréfaverð íslensku flugfélaganna Icelandair og Play hefur fallið um næstum 50 til rúmlega 60 prósent á þremur mánuðum. Heildarvísitalan hefur á sama tíma lækkað um sjö prósent. Hlutabréfagreinandi segir að líklega hafi smærri fjárfestar og einstaklingar fært fjárfestingar sínar úr Icelandair í Alvotech. Það eru gerðar minni væntingar en áður til flugrekstrar samhliða minni eftirspurn eftir ferðum til Íslands. Innherji 30. apríl 2024 18:08
Boða verkfallsaðgerðir á Keflavíkurflugvelli í maí Samninganefndir Sameykis og FFR, félags flugmálastarfsmanna ríkisins, hafa efnt til atkvæðagreiðslu um vinnustöðvun félagsfólks sem starfar hjá ISAVIA ohf. Verkfallsaðgerðirnar hefjast 9. maí verði þær samþykktar, en atkvæðagreiðslunni um þær lýkur 2. maí. Innlent 29. apríl 2024 15:24