Annað tapið í röð eftir að titillinn var í höfn Nýkrýndir Spánarmeistarar Barcelona máttu þola 3-2 tap er liðið heimsótti Real Valladolid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Var þetta annað tap Börsunga í röð eftir að liðið tryggði sér titilinn. Fótbolti 23. maí 2023 22:02
HK tók mikilvæg stig gegn Fylki HK vann sterkan 1-0 sigur er liðið tók á móti Fylki í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í Kórnum í kvöld. Fótbolti 23. maí 2023 21:18
„Hef reynt nánast allt til að benda á þá ömurlegu stöðu sem við búum við“ Óli Stefán Flóventsson, þjálfari karlaliðs Sindra frá Höfn í Hornafirði, er kominn í leyfi frá þjálfarastörfum sökum þess að hann kveðst vera að bugast vegna stuðningsleysis af hálfu bæjarfélagsins og skorts á aðstöðu á Höfn. Fótbolti 23. maí 2023 20:04
Stefna að milljarða uppbyggingu á félagssvæði KA Undirritaður var samningur á milli Akureyrarbæjar og Knattspyrnufélags Akureyrar (KA) um uppbyggingu íþróttamannvirkja á félagssvæði KA. Samningurinn er framhald af viljayfirlýsingu milli aðila sem var undirrituð í desember 2021. Áætlaður kostnaður við keppnisvöllinn, stúkumannvirkið og félags- og búningsaðstöðuna er rúmlega 2,6 milljarðar á núverandi verðlagi. Fótbolti 23. maí 2023 19:51
Sjö handteknir grunaðir um kynþáttaníð í garð Vinícius Júnior Spænska lögreglan hefur handtekið sjö einstaklinga vegna gruns um að hafa beitt brasilíska knattspyrnumanninn Vinicius Junior, leikmann Real Madrid, kynþáttaníði. Fótbolti 23. maí 2023 18:45
Sjáðu atvikið: Hitnaði í kolunum er Sveinn Aron braut á Arnóri í Svíþjóð Íslendingaslagur gærdagsins í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, á milli IFK Norrköping og Elfsborg, bauð upp á allt sem góður Íslendingaslagur ætti að bjóða upp á. Fótbolti 23. maí 2023 16:00
AC Milan hafi áhuga á Alberti: Fetar hann í fótspor langafa? Forráðamenn ítalska stórliðsins AC Milan fylgjast grannt með stöðu mála hjá íslenska landsliðsmanninum Alberti. Fótbolti 23. maí 2023 15:25
Leika fyrir luktum dyrum næsta árið eftir að tólf manns létu lífið Heimaleikir salvadorska knattspyrnufélagsins Alianza FC næsta árið verða leiknir fyrir luktum dyrum en knattspyrnusamband El Salvador hefur kveðið upp dóm sinn í kjölfar troðnings sem varð á leikvangi félagsins og dró tólf manns til bana. Fótbolti 23. maí 2023 14:30
Kominn með nóg eftir óþverra helgarinnar: Íhugar að yfirgefa Spán Vinicus Jr., leikmaður Real Madrid á Spáni, íhugar nú alvarlega að yfirgefa félagið og spænsku úrvalsdeildina eftir að hafa fengið sig fullsaddan af aðgerðarleysi deildarinnar gegn kynþáttaníði. Vinicius upplifir sig einan í baráttunni. Fótbolti 23. maí 2023 11:30
Phil Neville tók kast á blaðamannafundi: „Sýndu smá helvítis virðingu“ Phil Neville, þjálfari Inter Miami, var illa fyrir kallaður á blaðamannafundi eftir 3-1 tap liðsins fyrir Degi Dan Þórhallssyni og félögum í Orlando City í MLS-deildinni í Bandaríkjunum. Fótbolti 23. maí 2023 11:01
Mikill áhugi á kröftum Arnórs sem hefur farið á kostum Næstu vikur hjá Arnóri Sigurðssyni verða fróðlegar. Mikill áhugi er á leikmanninum, sem hefur farið á kostum með IFK Norrköping í Svíþjóð á láni frá rússneska félaginu CSKA Moskvu í Rússlandi. Fótbolti 23. maí 2023 10:05
Myrkur yfir Jesústyttunni til stuðnings við Vinicius Slökkt var á ljósunum við hina frægu Jesústyttu í Ríó de Janeiro í Brasilíu í gærkvöld, í eina klukkustund, til að sýna stuðning við Vinicius Junior vegna kynþáttaníðsins sem hann hefur orðið fyrir á Spáni. Fótbolti 23. maí 2023 07:59
Þakka ótrúlegan stuðning eftir að kveikt var í velli félagsins Skoska neðri deildarliðið Dunipace FC hefur þakkað stuðningsfólki sínu fyrir ótrúlegan stuðning og fjárhagslega aðstoð eftir að kveikt var í gervigrasvelli liðsins fyrir ekki svo löngu. Fótbolti 23. maí 2023 07:00
Dæmdi úrslitaleik HM og nú úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu Pólverjinn Szymon Marciniak mun dæma úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á milli Inter og Manchester City sem fram fer á Atatürk-vellinum í Istanbúl í Tyrklandi þann 10. júní. Fótbolti 22. maí 2023 23:30
Arsenal stórhuga í sumar Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal er stórhuga í sumar eftir að hafa misst enska meistaratitilinn í knattspyrnu úr greipum sér. Liðið stefnir á að bæta við sig nokkrum þekktum stærðum til að það gerist ekki aftur. Enski boltinn 22. maí 2023 23:00
Rúnar Páll: Þetta er ekki búið fyrr en þetta er búið Stjarnan og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í 8. umferð Bestu deildar karla í Garðabænum í kvöld. Eftir að Fylkir hafði komist í 1-2 jöfnuðu Stjörnumenn með marki undir lokin. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, var súr í leikslok. Íslenski boltinn 22. maí 2023 22:10
Var mjög dramatískur og mjög spennandi leikur Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, var að vonum ánægður með dramatískan sigur á Þór/KA í Bestu-deild kvenna í fótbolta. Dramatískt mark Freyju Karínar Þorvarðsdóttur á loka mínútu leiksins var það sem skildi liðin að í lokin. Íslenski boltinn 22. maí 2023 22:01
Rúnar Kristinsson: Leikmennirnir sýna að þeir hafi trú á verkefninu Þjálfari KR, Rúnar Kristinsson, var feginn þegar flautað var til leiksloka á Fram vellinum fyrr í kvöld. Hans menn náðu í langþráðan 1-2 sigur á Fram og hysjuðu sig upp úr fall sætunum. Rúnar var þó á því að mikil vinna sé framundan og þeir séu alls ekki hólpnir. Fótbolti 22. maí 2023 21:43
Newcastle í Meistaradeildina á næstu leiktíð Newcastle United mun spila í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Þetta varð staðfest þegar Newcastle gerði markalaust jafntefli við Leicester City í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í kvöld. Enski boltinn 22. maí 2023 21:16
Tíu stig dregin af Juventus sem tapaði gegn Empoli | Rómverjar í basli Rétt áður en leikur Empoli og Juventus í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hófst kom í ljós að 10 stig höfðu verið dæmd af félaginu. Fótbolti 22. maí 2023 20:47
Sjálfsmark Arnórs Ingva gaf Elfsborg sigur gegn Norrköping Arnór Sigurðsson kom Norrköping yfir í Íslendingslag gegn Elfsborg í sænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Það dugði hins vegar ekki þar sem Elfsborg kom til baka og vann 2-1 sigur þar sem Arnór Ingvi Traustason setti boltann í eigið net. Þá vann Kalmar 1-0 útisigur. Fótbolti 22. maí 2023 19:15
„Bað strákana afsökunar“ Alfreð Finnbogason gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Lyngby í gær þegar hann fékk að líta rauða spjaldið í 4-0 tapi gegn OB í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 22. maí 2023 16:30
Forseti La Liga drullar yfir Vinícius Junior Javier Tebas, forseti La Liga, hefur brugðist við ummælum Vinícius Junior, leikmanns Real Madrid, um að spænska úrvalsdeildin tilheyri núna rasistum. Fótbolti 22. maí 2023 14:31
Mæta til leiks með ellefu stiga refsingu hangandi yfir sér Ítalska knattspyrnusambandið fer fram á að ellefu stig verði dregin af Juventus fyrir að falsa bókhald félagsins á árunum 2019-2021, varðandi kaup og sölur á leikmönnum. Fótbolti 22. maí 2023 12:02
Titillinn rann úr greipum PSG og Berglind fékk bara korter á allri leiktíðinni Landsliðskonan Berglind Björg Þorvaldsdóttir var líkt og jafnan áður í vetur ekki í leikmannahópi PSG í stórleiknum við Lyon í gær, þar sem úrslitin réðust í frönsku 1. deildinni í fótbolta. Fótbolti 22. maí 2023 10:30
„Spænska úrvalsdeildin tilheyrir rasistum“ Vinícius Júnior, leikmaður Real Madrid, segir að spænska úrvalsdeildin tilheyri rasistum eftir að hann varð fyrir kynþáttaníði í tapinu fyrir Valencia, 1-0, í gær. Fótbolti 22. maí 2023 09:30
Ólga á Spáni eftir óþverra gærkvöldsins: „Getur ekki haldið áfram svona“ Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Real Madrid, var harðorður í garð stjórnenda spænsku úrvalsdeildarinnar eftir að Vinicius Junior, leikmaður Real Madrid varð fyrir kynþáttaníð í leik með liðinu í gærkvöldi. Fótbolti 22. maí 2023 07:00
Kynþáttaníð setti ljótan blett á sigur Valencia á Real Madrid Real Madrid mátti þola eins marks tap gegn Valencia á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 21. maí 2023 22:31
Mbappé gerði út um vonir Auxerre í byrjun leiks Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain unnu í kvöld 2-1 sigur á Auxerre á útivelli í frönsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 21. maí 2023 20:57
Ótrúlegar senur er Manchester United hélt titilvonum sínum á lífi Manchester United hélt titlvonum sínum á lífi með hreint út sagt ótrúlegum 2-1 sigri á grönnum sínum í Manchester City í efstu deild kvenna í knattspyrnu á Englandi. Fótbolti 21. maí 2023 19:47
Uppgjörið, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍA 2-0 | Afbragðsafgreiðsla Ísaks innsiglaði sigurinn Íslenski boltinn