Uppgjörið: Stjarnan - KR 4-2 | Frábær byrjun Stjörnunnar skildi KR-inga eftir í reyk Smári Jökull Jónsson skrifar 29. maí 2025 21:15 Emil Atlason var öflugur í dag. Vísir/Anton Brink Stjarnan vann 4-2 sigur á KR þegar liðin mættust í Bestu deildinni í Garðabæ í kvöld. Frábær byrjun Stjörnunnar lagði grunninn að sigri liðsins. Leikurinn byrjaði heldur betur með trukki. Þegar rúm mínúta var liðin skoraði Emil Atlason fyrir Stjörnuna þegar hann slapp í gegnum vörn KR og lyfti boltanum yfir Halldór Snæ Gerogsson í marki KR. Einfalt en árangursríkt. Skömmu síðar skoraði Alex Þór Hauksson síðan glæsilegt mark og tveimur mínútum eftir mark Alex Þórs skoraði Benedikt Warén. Staðan orðin 3-0 eftir ellefu mínútna leik og framundan fjallstindur að klífa fyrir KR-inga. Eftir þetta fikraði Stjarnan sig aftar á völlinn og KR var mun meira með boltann. Þeir sköpuðu sér tækifæri og hefðu vel getað verið búnir að skora mark áður en Aron Sigurðarson tók af skarið á lokasekúndum fyrri hálfleiks og skoraði með góðu skoti. Staðan í hálfleik 3-1 og mark Arons opnaði leikinn heldur betur fyrir KR. Sú von dó þó ansi fljótt í síðari hálfleiknum. Eftir fremur rólega byrjun komst Örvar Eggertsson skyndilega aleinn í gegnum vörn KR sem mistókst að spila hann rangstæðan. Örvar hafði allan tíma í heiminum og kláraði frábærlega framhjá Halldóri í markinu. Eftir mark Örvars voru úrslitin ráðin. Bæði lið fengu færi og KR hélt áfram að sækja en tókst ekki að finna netmöskvana fyrr en á síðustu sekúndum leiksins. Þá skoraði Hjalti Sigurðsson gott skallamark eftir sendingu frá Róberti Elís Hlynssyni. Lokatölur 4-2, úrslit sem gefa ekki endilega rétta mynd af leiknum en fyrstu ellefu mínútur leiksins voru banabiti KR-inga í kvöld. Stjarnan lyftir sér upp í 5. sætið í afar jafnri Bestu deild. KR er í 8. sæti með jafnmörg stig og fjögur önnur lið og einu stigi á eftir landsbyggðarliðunum ÍBV og KA. Atvik leiksins Mark Örvars á 56. mínútu drap leikinn eftir að KR hafði komið sér í stöðu til að gera þetta að alvöru leik með því að skora á síðustu sekúndum fyrri hálfleiks. Mark Örvars tók hins vegar allan vind úr gestunum og þó þeir hafi fengið færi eftir það var um of háan tind að klífa. Stjörnur og skúrkar Alex Þór Hauksson var kominn með mark og tvær stoðsendingar eftir ellefu mínútur. Erfitt að toppa það. Emil Atlason skoraði mjög gott mark á annari mínútu leiksins og gaf síðan fína stoðsendingu á Örvar í fjórða markinu. Hjá KR var Aron líflegur og Matthias Præst kom sér í nokkur færi sem hann nýtti hins vegar ekki nógu vel. Hjalti Sigurðarson sat eftir í vörninni í fyrsta markinu og spilaði Emil réttstæðan og varnarlínan í heild gerði ekki nógu vel í fjórða markinu heldur. Dómarinn Gunnar Oddur Hafliðason gaf sex gul spjöld sem var fullmikið miðað við hvernig leikurinn spilaðist. Annars var Gunnar Oddur með ágæt tök á leiknum og aðstoðardómararnir líka. KR-ingar vildu rangstöðu bæði í fyrsta og fjórða marki Stjörnunnar. Í fyrra markinu gerði aðstoðardómarinn hárrétt í að flagga ekki og í því fjórða held ég sömuleiðis að rétt hafi verið að flagga ekki. Að minnsta kosti var það svo tæpt að á myndbandi var erfitt að greina hvort um rangstöðu væri að ræða. Stemmning og umgjörð. Eðlilega var góð stemmning Stjörnumegin fyrstu mínúturnar, það væri það hjá öllum stuðningsmönnum ef liðið þitt væri búið að skora þrjú mörk á fyrstu ellefu mínútum leiksins. Hrós dagsins fá hins vegar stuðningsmenn sem sungu allan tímann, líka á tólftu mínútu í stöðunni 3-0. Ung stuðningsmannasveit Stjörnunnar og aðeins eldri sveit KR-inga sungust aðeins á undir lokin og stemmningin heilt yfir skemmtileg. Umgjörðin hjá Stjörnunni upp á tíu. Viðtöl Besta deild karla Stjarnan KR Íslenski boltinn Fótbolti