
Suðurnesjabær

Margfölduð áhrif þegar gasmengun og svifryk blandast
Líkur eru á áframhaldandi loftmengun í Vogum og Suðurnesjum í dag. Áhrif á loftgæði margfaldast þegar gasmengun frá eldgosinu blandast við svifryk frá gróðureldum á svæðinu. Vonir eru bundnar við að mikil úrkoma slökkvi eldana næsta sólarhringinn.

Kviknaði í eldhúsinu um miðja nótt
Brunavarnir Suðurnesja slökktu í nótt eld í fjölbýli í Garði. Húsið er töluvert skemmt en sá eini sem var inni í húsinu slapp.

Félagsheimilið lagt í rúst um hábjartan dag
Döpur sjón blasti við Reynismönnum á sunnudagskvöldið þegar þeir komu að félagsheimilinu sínu við fótboltavöllinn en það hafði verið lagt í rúst. Einhver hafði þá brotist þar inn á milli klukkan 14 og 17 á sunnudaginn og gengið berserksgang.

Eitrað fyrir ketti í Sandgerði
Rétt rúmlega eins árs gamall köttur drapst í Sandgerði fyrir tveimur vikum eftir að hafa innbyrt mikið magn frostlagar. Talið er að eitrað hafi verið fyrir kettinum.

Sérsveitin kölluð til vegna manns sem skaut úr haglabyssu
Sérsveitin var kölluð til aðstoðar lögreglunnar á Suðurnesjunum í gærkvöldi vegna manns sem hafði skotið úr haglabyssu. Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum, segir athæfið hafi ekki beinst að neinum. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð.

Margt enn á huldu um sprenginguna á flugvellinum
Rannsókn á lítilli sprengju sem sprakk á Keflavíkurflugvelli fimmtudaginn síðastliðinn heldur áfram og málið er enn óupplýst. Ekki er vitað með hvaða tilgangi sprengjunni var komið fyrir né hver beri ábyrgð á henni.

Enginn liggur undir grun vegna sprengingarinnar
Enginn hefur verið handtekinn og enginn liggur undir grun vegna sprengju sem sprakk á salerni í brottfararsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á fjórða tímanum í gær.

Sprengja sprakk í Leifsstöð: „Einhvers konar víti“
Minniháttar sprenging varð á salerni í brottfararsal Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar á fjórða tímanum í dag. Einn starfsmaður flugstöðvarinnar hlaut minniháttar áverka en þurfti ekki að leita sér læknisaðstoðar.

Smakkaði skötu í beinni: „Sjitturinn, kött!“
Efnt var til skötuveislu í grunnskólanum í Garði í kvöld, um hásumar. Magnús Hlynur tók stöðuna á skipuleggjendum og rak upp óp þegar hann bragðaði á kæstri skötunni.

Skipstjórinn var drukkinn og skipaði stýrimanni að sigla á brott
Skipstjóri og stýrimaður fraktskipsins Longdawn játuðu sök þegar mál ákæruvaldsins á hendur þeim var þingfest í dag. Þeim var gefið að sök að hafa skilið skipstjóra strandveiðibátsins Höddu HF eftir í sjávarháska, eftir að hafa siglt skipinu á bátinn. Þá játaði skipstjórinn að hafa verið drukkinn.

Davíð fær engin svör í bráð frá Golfklúbbi Sandgerðis
Lárus Óskarsson, formaður Golfklúbbs Sandgerðis, segist hættur við að gefa út yfirlýsingu vegna máls Davíðs Jónssonar og fjölskyldu.

Rekinn umsvifalaust úr klúbbnum í miðju meistaramóti
Davíð Jónsson var rekinn umsvifalaust úr Golfklúbbi Sandgerðis ásamt sonum hans tveimur í miðju meistaramóti. Von er á yfirlýsingu frá Golfklúbbi Sandgerðis vegna málsins.

Lögreglan kölluð til er hundur lék lausum hala á Reykjanesbrautinni
Lögreglan var kölluð til klukkan hálf ellefu í gærkvöldi vegna hunds sem lék lausum hala á Reykjanesbrautinni skammt frá Grænásbraut. Umferð var stöðvuð á brautinni af stórum sendiferðabíl sem þveraði veginn á meðan vegfarendur reyndu að ná hundinum.

Matvöruverslun rís á nýjum reit við Keflavíkurflugvöll
Ný verslun Nettó opnar steinsnar frá Keflavíkurflugvelli. Í síðustu viku var fyrsta skóflustunga tekin við Aðaltorg í Reykjanesbæ. Verslunin verður 1400 fermetrar og að sögn Samkaupa, eigenda Nettó, verður hún öll hin glæsilegasta.

Trillan komin í land
Björgunarsveitum barst tilkynning snemma í morgun um vélarvana trillu utan við Stafsnes á Reykjanesskaga. Einn var um borð í trillunni sem siglt var með í togi til Sandgerðis

Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík
Framkvæmdastjóri Kadeco á Ásbrú á Keflavíkurflugvelli segir það draumaverkefni að fá að stýra allri uppbyggingunni, sem mun eiga sér stað á næstu árum á Ásbrú og svæðinu í kringum Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann segir mikið kallað eftir því að fá starfsfólk Kadeco á erlendan vettvang til að kynna verkefnið.

800 nýjar íbúðir byggðar á Ásbrú
Um átta hundruð nýjar íbúðir verða byggðar á Ásbrú í Reykjanesbæ á næstu árum, auk þess sem nokkrir nýir grunn- og leikskólar verða byggðir, ráðstefnuhöll, verslanir, veitingahús og hótel svo eitthvað sé nefnt. Framkvæmdirnar munu kosta um 140 milljarða króna.

Genginn úr meirihlutasamstarfi vegna meints trúnaðarbrests
Magnús S. Magnússon, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Suðurnesjabæ, segir trúnaðarbrest meðal Sjálfstæðismanna í bæjarstjórninni hafa valdið því að hann gekk úr meirihlutasamstarfinu. Meirihlutinn klofnaði í tveimur atkvæðagreiðslum á bæjarstjórnarfundi í gærkvöldi.

Meirihlutinn í Suðurnesjabæ klofinn
Bæjarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins klofnaði í tveimur atkvæðagreiðslum á bæjarstjórnarfundi í kvöld. Varðaði málið aðallega staðsetningu gervigrasvallar sem bærinn hyggst reisa.

„Fróðleiksfúsi“ slær í gegn í Sandgerði
„Fróðleiksfúsi“ í Sandgerði stendur svo sannarlega undir nafni því hann miðlar fróðleik í gegnum spjaldtölvu um öll dýrin á náttúrugripasafninu á staðnum, sem er hluti af Þekkingarsetri Suðurnesja.

Ósætti í Suðurnesjabæ vegna staðsetningar gervigrasvallar
Ósætti ríkir í bæjarstjórnmálunum í Suðurnesjabæ vegna ágreinings um staðsetningu nýs gervigrasvallar. Á síðasta fundi bæjarráðs ákváðu fulltrúar meirihltua Framsóknar og Sjálfstæðsflokksins að leggja fram tillögu um að gervigrasvöllurinn yrði reistur í Sandgerði en ekki í Garði.

Tvíburafolöld mætt í heiminn í Suðurnesjabæ
Tvíburafolöld komu í heiminn á bænum Melabergi á Stafnesi í Suðurnesjabæ í gærkvöldi. Það kom jörp hryssa og brúnn hestur og hafa þau fengið nafnið Hula og Háski. Systkinin komu vel undan nóttinni og voru farin að hlaupa saman í morgun.

Rýna í aðgerðir almannavarna síðustu sex mánuði á Reykjanesi
Í dag fer fram rýnifundur ríkislögreglustjóra á aðgerðum almannavarnadeildar og annarra viðbragðsaðila á aðgerðum síðustu sex mánaða á Reykjanesi. Dómsmálaráðherra ávarpaði fundinn í morgun. Um 70 manns sitja fundinn í heild sinni. Fundarstjóri er Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn.

Umtalsverðar breytingar á skipulagi Keflavíkurflugvallar
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar hefur samþykkt að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Keflavíkurflugvallar. Um er að ræða umtalsverða breytingu á gildandi skipulagi en meginbreytingin felst í að aðlaga núverandi deiliskipulagsáætlun í „átt að nýrri þróunaráætlun Keflavíkurflugvallar eins og eðlilegt þykir“.

Skipstjórinn og stýrimaðurinn fluttir til Reykjanesbæjar
Tveir menn sem grunaðir eru um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í gærnótt eru í haldi lögreglunnar á Suðurnesjum. Þeir sitja í fangaklefa í Reykjanesbæ.

Skipstjórinn og tveir stýrimenn handteknir vegna sjóslyssins
Skipstjóri skipsins Longdawn hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa yfirgefið mann í sjávarháska við Garðskagavita í nótt. Allt bendir til þess að fraktskipið hafi rekist í strandveiðibát manns sem lenti í sjónum en var naumlega bjargað. Auk skipstjórans eru tveir stýrimenn í haldi lögreglunnar í Vestmannaeyjum.

Fékk sting í hjartað þegar hann sá nafnið á bátnum
Arnar Magnússon strandveiðisjómaður sem kom skipverja bátsins sem hvolfdi í nótt til bjargar, segir liggja í augum uppi að flutningaskip hafi klesst á bátinn. Sjálfur var hann nýkominn í land úr veiðitúr þegar Margrét Björk Jónsdóttir hitti hann í Sandgerði. Hann segir yndislegt að félagi hans til fjörutíu ára hafi komist lífs af. „Þetta fer ekki alltaf svona vel.“

Vísbending um að flutningaskip hafi hvolft bátnum
Lögreglan rannsakar hvort erlent flutningaskip tengist því að að strandveiðibát hvolfdi norðvestur af Garðskaga í nótt. Manni var bjargað úr sjónum en litlu mátti muna að illa færi. Skemmdir á stefni flutningaskipsins benda til áreksturs.

Manni bjargað úr sjónum í nótt eftir að bátur hans sökk
Manni var bjargað á þriðja tímanum í nótt þegar strandveiðibátur sökk norðvestur af Garðskaga. Viðbragðsaðilar voru kallaðir út vegna málsins en það var skipstjóri annars strandveiðibáts sem bjargaði manninum úr sjónum.

Matvöruverslun og íbúðir steinsnar frá Keflavíkurflugvelli
Stefnt er að því að reisa fjölda íbúða, matvöruverslun og fleira í móa skammt frá Keflavíkurflugvelli á næstu árum. Framkvæmdastjóri verkefnisins segir það bæta þjónustustig flugvallarins til muna.